Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 6
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Á útsölu Sambandsins sáum við meðai annars þessa Kínverja sem skoðuðu efnisstranga af miklum ákafa.
Á síðustu vorútsölunum:
Hagstæð kaup
gerð á sið-
ustu stundu
Tími útsölunnar er liöinn. I januar
og febrúar voru útsölur í nærri
hverri verslun. Nú er engin eftir. DV-
menn litu inn á tvær síðbúnar útsölur
núna fyrir helgina til þess að sjá þá
síðustu sem reyndu að spara sér
krónumar með því að versla fremur
á útsölum en annars staðar.
önnur þessi útsala mun reyndar
halda eitthvað áfram. Það er í
Lagernum á Smiðjuveginum. Þar er
hægt að ganga inn á næstunni og
kaupa sér föt á allt að verksmiðju-
verði.
Hin hætti um helgina. Það var út-
sala Sambandsverksmiöjanna í Hús-
gagnahöllinni á Bíldshöföa. Þegar
DV-menn litu þar inn seinnipartinn á
föstudag var h'ka mikiö um að vera
því greinilegt var aö menn ætluðu að
tryggja sér það sem eftir var. Þama
var líka hægt að fá fatnað af ýmsu
tagi, þar með talið skótau, garn,
klæði í fatnaö og gluggatjöld svo eitt-
hvað sé nefnt. Sumt var lítils háttar
gallaö en annaö stráheilt en hafði
verið sett til hliðar til að rýma fýrir
D V-myndir Einar Ólason.
nýjum birgðum. Hægt var aö fá fínar
ullarpeysur á 200 krónur, teppi í
bílinn á 100 krónur, gúmmískó á 45
krónur og poka fullan af garni á 60
krónur. Þessi útsala er sú fyrri sem
Sambandiö heldur á árinu, aftur
verður komiö í haust með nýja út-
sölu.
I Kópavoginum á útsölu Lagersins
var mun minna að gera. Þar var inni
ein ung stúlka að skoða föt. En hægt
er að kaupa föt þar, bæði innlend og
erlend, á töluvert lægra verði en í
búðum. Svo dæmi sé tekið kosta
þunnir nælonjakkar 490 krónur,
úlpur 895, buxur 295-470 og
karlmannapeysur 195—495.
DS
A thugað hvaða stærð herrann þurfi afskyrtu.
Skyldi eitthvað afþessum skóm passa?