Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Side 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
NYIR STÖÐUMÆL-
AR VIÐ FRAKKA-
STÍG OG VITASTÍG
Þeir sem leggja bílum sínum við
Frakkastíg og Vitastíg eiga von á því
innan tíðar að þurfa að borga í stöðu-
mæla, beggja vegna götunnar. Bílum
hefur lengst af verið lagt beggja vegna
en aðeins verið stöðumælar vinstra
megin. Nú á hins vegar að setja stöðu-
mæla hægra megin líka, 6—7 við hvora
götu. Er þetta gert til þess að auka
bílastæði í nágrenni viö Laugaveginn
því þð að beggja vegna gatnanna hafi
verið lagt hefur fram til þessa verið
ólöglegt að leggja öðrum megin. Ekki
spillir heldur fyrir að með þessu fæst
aukið fé inn.
Guttormur Þormar yfirverkfræðing-
ur sagðist ekki geta sagt alveg um það
hvenær mælarnir yrðu settir upp.
Reynt verður að bíða eftir því að frost
fari úr jörðu þannig að ekki þurfi aö
sprengja fyrir þeim. Jafnframt því að
þessir mælar verða settir upp verða
aðrir teknir niður við Bárugötu og
Ránargötu þannig að í heild fjölgar
mælunumekkert.
Stööumælar í borginni eru nú um
þúsund. Áður borguðu menn í þá með
krónupeningum. Nú er hins vegar búið
að breyta þeim nær öllum þannig að
það þarf 5 krónu pening í þá. Algengt
mun vera að fólk setji ennþá krónu í
mælinn og haldi síöan að hann sé
bilaöur. Svo er langoftast ekki, aöeins
þarf stærri pening.
Þeim sem ætla að versla viö Lauga-
veg má líka benda á nýtt bílastæði við
Lindargötu þar sem hægt er að leggja
ókeypis. Þaö er á milli Frakkastígs,
Skúlagötu, Vatnsstígs og Lindargötu.
Ekiö er inn á það frá Frakkastíg og
Vatnsstíg. Þetta stæði er sáralítið
notað þó kaupmenn og starfsfólk í
verslunum leggi þar bílum sínum
nokkuð. Þó að spölur sé að labba upp á
Laugaveg getur það borgað sig ef lengi
þarf að dvelja og hætta er á því að
stöðumælistíminn renni út.
DS
Eitt tilbrigði af páskatertunni. Þessi er skreytt með aprikósusnciðum og rifnu
suðusúkkulaði dreift yfir snelðarnar. Á miili ávaxtasnciðanna er stráð
söxuðum möndlum eða hnetum. Á litlu myndinni er sýnt hvernig botninn er
skorinn í sundur þegar hann er orðinn kaldur.
Páskaterta
með
tilbrigöum
Páskaterta
4egg
11/2 dl strásykur
1 dl hveiti
ldlkartöflumjöl
2 tsk. lyftiduft
Bragðefni ef vill:
1 tsk. vanillusykur
eða
rifinn börkur af 1 sitrónu
Egg og sykur þeytt mjög vel
saman. Þurrefnum síöan
blandaö vel saman viö. Hellt í
vel smurt form (ca 2 lítra). Á
meöfylgjandi mynd má sjá að
kakan hefur ekki verið bökuð í
venjulegu kringlóttu kökuformi,
heldur aflöngu, og er þaö ágætis
tilbreyting.
Kakan er bökuð i 200 g
heitum ofni, neðst í ofninum.
Bökunartími 30—35 mínútur.
Þegar búið er að taka
kökubotninn úr forminu er hann
skorinn langsum í tvennt, látinn
kólna samt fyrst.
Á milU botnanna má setja sitt
lítið af hverju. Til dæmis epla-
mauk, fersk jarðaber (fryst),
þeyttan rjóma og blanda saman
við hann líkjör, sérríi eða niður-
söxuðum ávöxtum (úr dós). í
verslunum er bæði hægt að
kaupa tilbúinn „fromage” og
eins duft í pökkum sem auðvelt
er að laga gott fromage úr. Það
gæti verið ein hugmyndin að
setja fromage á milli botnanna.
Sama hvað sett er á milli, verður
tertan ljúffengari ef það er gert
daginn áður en á að gæða sér á
góðmetinu.
Þeir sem vilja baka stærri
tertu en tveggja botna, tvö- eða
þrefalda uppskriftina eða meira
eftir þörfum. Athuga þarf að því
stærra sem formið er og meira í
því, þarf lengri bökunartíma.
Þeyttur rjómi settur yfir botn-
ana. Til skreytingar niðursoðnir
ávextir, rifið suðusúkkulaði,
hnetur eða möndlur. Þetta er
aðeins uppástunga, möguleik-
arnir eru í höndum bakaranna.
-ÞG
Séð niður Frakkastíginn frá Njáisgötu. Nú á næstunni verða þeir sem leggja bílum sinum hægra megin
götunnar einnig að borga istöðumæli. D V-mynd Bj. Bj.
Message
rafmagns-
ritvélar
Litla Message 860 ST rafmagnsritvélin eralvöru ritvél. Letur-
borðið er fullkomið með dálkastilli. Vélin er stöðug og traust,
en tekur þó sáralítið pláss.
Message 990 CR er eins byggð og 860 ST vélin en hefur leið-
réttingarborða að auki.
Message 860 ST eða 990 CR er tilvalin ritvél fyrir minni fyrir-
tæki, í skólann eða á heimilið.
VERÐ FRÁ KR. 8.250,-
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
Hverfisgötu 33 — Slmi 20560 — Pósthólf 377
Reykjavík