Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Helmut Schmidt geríst rit- stjóri Helmut Schmidt, fyrrum kanslari V-Þýskalands, mun hefja; störf sem meöritstjóri vikublaðsins Die Zeit þann 1. maí næstkomandi. Hinn er núverandi ritstjóri blaðsins, MaronDoenhoff. Die Zeit þykir mjög ábyrgt blað og er mjög virt í Þýskalandi. Einkanlega gefa menn gaum skrifum þess um stjórnmál í V- Þýskalandi. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs komst blaðið í fyrsta sinn í 400 þúsund eintaka útbreiðslu. Skömmu eftir að stjórn Schmidts var felld í atkvæða- greiöslu þingsins í október í vetur lýsti hann því yfir að hann mundi draga sig út úr stjórnmálum að loknum þingkosningunum, sem fóru fram núna í mars. — Willy Brandt, forveri hans í kanslara- embættinu, var og er formaður sósíaldemókrata. Hjávondufólki Maður, sem sekur var fundinn um að hafa drepið foreldra sína, fékk að yfirgefa réttarsalinn frjáis maður níu mánuðum síöar. Hinn 21 árs gamli Charles Ireland fékk skilorðsbundið 2ja ára fangelsi, því að dómarinn tók tiliit til þess að árum saman hafði hann sætt mjög illri meðferð af for- eldrum sínum. Þau höfðu barið hann með svipu, neytt hann til að sofa um nætur í hundakofanum og þrælaö honum út á sveitabæ þeirra sextán stundir á dag, kauplaust. armanna Bulent Ecevit, fyrrum forsætis- ráðherra Tyrklands, segist hafa fengið leyfi herlagayfirvalda í Tyrklandi til þess að sækja alþjóðaþing jafnaðarmanna í Portúgal í næsta mánuði. Síðan herinn tók völdin í Tyrklandi 1980 hefur Ecevit þrívegis veriö fangelsaður fyrir gagnrýni á herforingjastjórnina. Honum var boðið á jafnaðar- mannaþingið, því aö flokkur hans, Lýðveldis- alþýðuflokkurinn, tald- ist sósíalískur. Ecevit afþakkaði í fyrstu, því aö flokkur hans, eins og mestöll önnur stjórnmálastarf- semi, er bannaðurí Tyrklandi. Honum og konu hans barst þá annað boð um að sitja þingiö sem sérstakir gestir og fengu þau leyfi yfirvalda til utanfararinnar. Ecevit, sem eru bönnuð afskipti af stjómmálum í tíu ár, fékk í desember að heimsækja Norður- löndin. Votviðrasamt á Kúbu Um ein milljón Kúbumanna gáfu eftir sjálfviljug frídagsinn um helgina til þess að starfa við sjálf- boðaliðastörf að landbúnaði. tJr- hellisrigningar síðustu vikur hafa valdiö miklum vanda í landbúnaði Kúbu. I þessari sjálfboðavinnu tóku þátt stéttarfélög öll og æskulýðs- félög og unnu viö að fjarlægja sorp, skera sykurreyr og tína tómata og annað grænmeti sem lá undir skemmdum á blautum ökrunum. Þetta hefur verið votviðra- samasti vetur á Kúbu í manna minnum eða í hálfa öld að minnsta kosti og eru nú hafnar umræður um að aðstoðar sé þörf frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Græningjar setja lit á Bonn-þingið Sambandsþingið í Bonn mun ganga til kosninga um kanslara V-Þýska- lands, þegar þingið veröur sett í dag. Engin eftirvænting ríkir um kjör Helmuts Kohls í kanslaraembættið, en þeim mun meiri um fyrstu mætingu græningja á þingfundi. Hinir róttæku græningjar, semkomu 27 mönnum á þing í síöustu kosningum, ætla að marséra til þingfundar undir blómum og stórum boröa meö friöar- táknum. — Þykir líklegt aö þeirra Eiginkona Helmut Kohl fagnaði vel kjöri bónda síns í kanslaraembættið fyrr í vetur en minni eftirvænting verður um kosninguna í dag. þingseta eigi eftir að gera þingstörfin litríkari en hingaö til hefur þekkst í 33 ára sögu Bundestag. Nýliðamir unnu strax í gær sinn fyrsta sigur í þinginu, þegar aðrir flokkar beygðu sig undir kröfu þeirra um stólaval í þingsalnum. Græningjar vildu sitja fyrir miðjum sal en hótuöu aö standa ailan fyrsta þingfundinn ef þeim yrði raðað til vinstri í salnum, eins og ráð hafði verið fyrir gert. Kanslaranum virtist blöskra hvernig nýliðarnir höfðu sitt fram. Hann sagði: „Þetta er ekki spurning um hvar menn sitja, heldur hvað þeir gera og hvemig þeir styðja mál sitt rökum.” Hann lagði fram ráðherralista stjórnar sinnar í gær og munu ráðherr- arnir sverja embættiseiða á morgun. Tveir ráöherrar frjálslyndra víkja úr stjórninni, en kristilegu flokkamir báðir skipta þeirra embættum á milli sín. Genscher, leiðtogi frjálslyndra, heldur utanríkisráðherraembættinu. Hægri sveifía ÍSvíþjóó Hægrisveifla virðist nú vera meðal sænskra kjósenda, ef marka má niður- stöður úr skoðanakönnun SIFO- stofnunarinnar, sem birtar voru um helgina. Hægri flokkurinn fær 30% atkvæða samkvæmt könnuninni, en það er mesta fylgi sem borgaralegur flokkur hefur fengið í Svíþjóð síðan skoðana- kannanir hófust þar í landi. Samkvæmt könnuninni bæta allir borgaralegu flokkamir við sig fylgi frá síðustu könnun. Vinstri flokkarnir tapa báðir fylgi. Sósíaldemókratar fá 44,5% (-1,5 ), Hægri flokkurinn 30% (+1,0%), Miðflokkurinn 14% (+2,0%), Þjóðar- flokkurinn 4,5% (+0,5%), Vinstri- flokkurinn, kommúnistarnir 5,0% (- 0,5%). Skoðanakannanir þessar fara fram mánaðarlega og þykja nokkuð áreiðanlegar. -GAJíLundi. Laxarækt vex fískur umhrygg i Noregi —útflutningstekjuraflaxeldi farayfir3 milljaröa króna Laxeldi í Noregi hefur aukist um 50% á ári undanfarin ár, og þetta árið munu útflutningstekjur Norðmanna af laxarækt fara yfir þrjá milljaröa króna. Fáar framleiðslugreinar þykja eiga eins góðaframtíðarmöguleika. Margir eru komnir á biðlista um styrki til þess að hefja laxarækt en upp á síökastið hefur það opinbera dregið úr styrkveitingum. Til umræðu hefur komið að auka að nýju aðstoð við þá sem ætla að byrja fiskeldi. Sölusamlag fiskeldisstöðva gerir ráð fyrir að útflutningstekjur Norðmanna af fiskirækt muni fara upp í 1,5 milljarða norskra króna (um 4,5 milljarða ísl. kr.) á árinu 1985. Spá menn því að um aldamót skili fiskeldiö jafnmiklum fiski af sér og hinn hefð- bundni sjávarútvegur. Þaö hefur ekki verið eins mikill upp- gangur í silungsræktinni, því að Norð- menn hafa ekki getað selt silunginn annað en til Svíþjóðar og V-Þýska- lands. En umræður í Noregi snúast þessa dagana um að þörf sé á meiri fjölbreytni í fiskiræktinni og ótryggt að treysta á laxamarkaðinn einan. Enda er þegar hafin ræktun og eldi á þorski. Andropov og De Cueller á rökstólum Yuri Andropov, leiðtogi Sovétríkj- anna, hefur gefið til kynna í viðræðum við De Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann styðji tilraunir til þess að leysa Afghanistan- málið. Framkvæmdastjórinn er í Moskvu og áttu þeir Andropov langar viðræður í gær um helstu hættusvæðin í heiminum og möguleikana á að friða þau. Þar á meðal Afghanistan. Fáir trúa því samt að heimsókn De Cuellars framkvæmdastjóra muni breyta í miklu afstööu Kremlar til Afghanistan. Tass-fréttastofan sagði aö viðræðurnar í gær hefðu meðal annars verið um hlutverk Sameinuðu þjóðanna í að leysa alþjóðleg deilumál. — Talsmaður framkvæmdastjórans sagði að Andropov hefði látið í ljós stuðning við tilraunir De Cuellars til að koma sáttum á í Afghanistan. Ballett- dansari strýkur Enn einn sovéskur ballettdans- ari hefur strokiö vestur yfir járn- tjaldiö. Var Ijann í ballettflokki Eistlendinga, sem hefur verið á sýningarferð í Svíþjóö. Strauk hann skömmu áður en síðasta sýning flokksins hófst í Málmey. Honum hefur verið veitt hæli sem pólitískur flóttamaður íSvíþjóð. Lax að stökkva í fossi. Fáar framleiðslugreinar þykja eiga eins mikla framtíð fyrir sér í Noregi og Iaxeldið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.