Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Síða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
9
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
íbúar Kristjaníu
vilja hassið burt
Kristjanía, sem notiö hefur sér-
réttinda innan borgarskipulags Kaup-
mannahafnar, er sögð á hraöfara
niöurleiö og ástæöan er sögö vera fíkni-
efnaverslunin.
Kona ein sem býr í Kristjaníu hefur
skrifaö opið bréf til lögreglustjóra
Kaupmannahafnar þar sem hún lýsir
undrun sinni yfir því aö lögreglan skuli
I
Hasshöndlarar fara sinu fram í
Kristjaníu, óáreittir af lögreglunni
sem fælist grjótkastið.
ekki skipta sér af fíkniefnasölunum.
„Þaö fólk sem stendur núna á
Seljendastræti eru ekki smákarlamir
sem höndla meö hass vegna þess aö
þeir hafa trú á annarri menningu, eöa
eitthvaö í þeim dúr.
Þaö em hópar sem gagngert koma
til Kristjaníu þeirra erinda einna aö
selja fíkniefni og haga sér dólgslega
meö uppvöðslu á ölkrám og víðar. Þeir
ganga sumir fram meö ofbeldi og hafa
í hótunum viö þá sem afþakka
hasskaup,” skrifarkonaní Politiken.
Lætur hún aö því liggja að lögreglan
horfi aðgerðarlaus á í von um aö spill-
ingin verði svo yfirgengileg aö menn
gefist upp á fríborginni Kristjaníu og
hætti viö hina sérstæöu tilraun meö
frjálslyndis tilveru hippa og bóhema
þar. Segir hún aö strjálar aögeröir lög-
reglunnar séu til einskis, enda telji
fíkniefnasalarnir sig algerlega óhulta í
Kristjaníu. Telur hún sig mæla fyrir
munn heimamanna þar, sem helst vilji
að borgarhlutinn verði hreinsaður af
fikniefnasölunum.
Lögreglustjóminn hefur svarað
þessu og segir aö lögreglan vilji allra
helst koma á eðlilegu ástandi í
Kristjaníu en treystist illa til að starfa
þar, þegar íbúarnir mæti henni jafnan
meö grjót- og flöskuhríð.
Sími27022
NÝ SKRIFVÉLABYLTING
BROTHER KYNNIR
MINNSTU SKRIFVÉL í HEIMI
SKÓLARITVÉLIN
BROTHER 3600
Ánægjulega
páskahelgi
EP-20 er bæði ritvél og reiknivél, skrifar á thermal pappír beint án litarbands eða á venjulegan
pappír með litarbandi. Leiðréttingar má gera á 16 stafa skermi áður en vélin ritar. Hefir rafhlöður og er
algjörlega hljóðlaus. Vegur aðeins 2,2 kg og kemst í venjulega skjalatösku án þess að taka nærri allt
plássið. Hin kjörna ferðaritvél. Tekur ekki afrit og hefir ekki Þ og Ð, en alls 132 stafi og alþjóðleg tákn
og merki.
MESTA BYLTING í RITUN SÍÐAN RITLISTIN VAR FUNDIN UPP.
Það er of langt mál að telja upp alla möguleika EP-20. Sjón er sögu ríkari. Komið og skoðið. Verð kr.
5.838.00
Borgarfell hf, Skólavörðustíg 23, sími 11372.
Rafmagnsritvél með ásláttarstilli, síbylju áfram, þremur síbylju-
lyklum og kvadroletri. Vegur aðeins 8,5 kg. í tösku. Japönsk
gæðavara.
Verðið er aðeins kr. 6.622.00 samkv. gengi 21.3. 1983. 1 árs
ábyrgð. BROTHER RITVÉLAR HAFA VERIÐ KJÖRNAR RITVÉL-
AR OLYMPÍULEIKANNA í LOS ANGELES 1984
Borgarfell hf, Skólavöröustíg 23, sími 11372
Smáauglýsingadeild
verður opin um páskana
sem hér segir:
30. mars kl. 9—18.
Skírdag ti/páskadags — lokað.
Mánudaginn 4. apríl kl. 18—22
og birtist þá auglýsingin í fyrsta blaði eftir
páska þriðjudaginn 5. apríl.
Frægt
hrossakyn
íhættuafvírus
Einhver vírusveiki hefur komið
upp á því fræga Lipizzaner-hrossa-
ræktarbúi í Styría í Austurríki. Sex
hryssur drápust og um þrjátíu
folöld en forráðamenn búsins telja
sig hafa komist fyrir veikina.
Lipizzanerhestar em einstakir
og ræktunin byggö á aldagömlu
kyni. Þessir hestar em þjálfaðir til
sýninga í hinum heimsfræga
„Spánska reiöskóla” Vínarborgar.