Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Eining um neyð
Nokkurs taugatitrings
hefur gætt í herbúöum
Alþýðubandalagsins eftir að
sjálfstæðismenn sneru út úr
slagorði þeirra, „Eining um
íslenska leið” svo úr var
„Eining um íslenska
NEYД. Fyrir nokkru birtist
svo grein í Morgunblaðinu
eftir Friðrik Sophusson. Með
greininni f ylgdi mynd af slag-
orðamerki Alþýðubanda-
lagsins en búið var að breyta
slagoröinu á ofangreindan
hátt. Þá gerðist það, eftir því
sem Sandkorni er sagt, að
höfundur merkisins, Gísli B.
Björnsson, hringdi í Friðrik
og krafðist þess að höfundar-
réttur sinn að merkinu væri
virtur.
Tíu prósent
munur
Áfram segir sama saga:
Gísli ku hafa haldið því
fram að ekki væri heimilt að
nota merki annars manns
vegna höfundarréttar nema
merkinu væri breytt sem
næmi að minnsta kosti tiu
prósentum frá upprunalegri
útgáfu. Lögfróðir menn kann-
ast að vísu ekki við þessa
höfundarréttarreglu en leik-
menn benda á að vist sé
meira en tiu prósent munur á
leiðog neyð!
Öllu fer aftur
Nýlega birtist með Stak-
steinum Morgunblaðsins úr-
klippa úr Tímanum, og var
það svohljóðandi fyrirsögn
sem hafði birst í því blaði sl.
þriðjudag: „Forsætisráð-
herra fer ekki fram.”
Ekki virtist Staksteinahöf-
undur hafa tekið eftir hinni
dýpri merkingu Tímafyrir-
sagnarinnar, og mun Stak-
steinum heldur hafa farið aft-
ur.
Nú stendur tii að Flug-
leíðir, það ágæta fyrirtæki,
haldi uppi áætlunarferðum
frá Kaupmannahöfn til
Akureyrar i sumar, svona á
að giska einu sinni í viku.
Þetta gæti að sjálfsögðu
orðiö mikil lyftistöng fyrir
ferðamannaþjónustu þar
fyrir norðan og er það gott.
En einn er galli á gjöf
Njarðar. Þegar Akureyrar-
flugvöilur verður alþjóða-
flugvöllur þyriti þar að vera
frihöfn eins og á Keflavík.
Fyrir því þari þó sérstaka
lagaheimild, en þingið situr
ekki lengur og slíka heimild
því ekki að fá. Nema, segja
bjartsýnir menn, ríkis-
stjórnin setji um það bráða-
birgðalög! Annað eins hefur
nú gerst.
Blaðamatur
Hvað er blaðamatur? Rit-
stjóri á útlensku stórblaði
sagði, að þegar hundur bíti
mann, væri það ekki frétt.
En þegar maður biti hund,
væri það hins vegar frétt.
Nú er komin alíslensk skil-
greining á hugtakinu „blaða-
matur”.
„Blaðamatur” er krydd-
síld i kvöldvorrósaroUu!
Listaraunir
Stjórnmálaflokkarnir
leggja höfuðáherslu á það að
hafa að minnsta kosti einn
vel þekktan einstakling á
framboðslistum sínum í
hverjum kosningum. Þetta
eru gjarna iþróttamenn,
listamenn eða frægir sérvitr-
ingar. Kratar í Norðuriands-
kjördæmi eystra leituöu að
frægu andliti á sinn lista og
fundu Alfreð Gislason, hand-
knattleiksmann, eina mestu
skyttu landsliðsins. Hann er
nú í framboði fyrir Alþýðu-
flokkinn fyrir norðan og
frétti af því nokkuð jafn-
snemma og kjósendur i kjör-
dæminu, þ.e. þegar listinn
var lesinn upp i útvarpinu.
Ekki mun hann þó hafa
kunnað fréttunum verr en
svo að hann hefur ekki dreg-
ið framboð sitt til baka.
Umsjón:
ÖlafurB.
Guðnason
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Stjörnubíó—Saga heimsins, 1. hluti
Nýscguskoðun Brooks
Mel Brooks leikur sjálfur mörg hlutverk, þar á meðal Móses.
Saga heimsins, 1. hiuti (History of the World,
part 1)
Leikstjóri, handritshöfundur og tramleiöandi:
Mel Brooks
Tónlist: John Morris
Aðalhlutverk: Mel Brooks, Dom deLuise,
Madeloine Kahn, Mary-Margaret Humes, Ron
Carey, Sid Caesar, Harvey Korman o.fl.
Sögumaður: Orson Welles
Bandarísk, frá 1981
Hinn gráhærði öldungur, Móses,
kemur fram undan klettum með
þrjár leirtöflur sem á eru höggnar
fimmtán klásúlur. Hann snýr ásjónu
sinni til himna og segir: Jæja, guð,
þá er ég búinn að.. . Hann missir
eina töfluna og hún brotnar.
„Heyrðu, þessi boðorð, þau eru víst
ekkinematíu.. .”
Eitthvað á þessa leið er eitt bestu
atriðanna í Sögu heimsins. Hinn
geggjaði húmor Mel Brooks er enn
við lýði og þessi nýja kvikmynd hans
er yfirfull af honum. Það er óhætt að
mæla með henni sem bráðfyndinni
mynd, en því miður þynnist grínið
dálítið þegar á líður og verður
myndin allt að því langdregin nokkr-
um sinnum. Myndir Mel Brooks hafa
haft þessi einkenni í mismiklum
mæli, vel er farið af stað, en svo er
eins og höfundurinn verði uppi-
skroppa með hugmyndir og verða
brandararnir allfimmaurakenndir
af þeim sökum. Þessu fylgir oft of-
leikur, sér í lagi hjá Brooks sjálfum.
Þó nafnið feli ekkert smáræði í sér
er aðeins borið niður á fáeinum stöð-
um í mannkynssögunni. I upphafi er
apinn aö verða að manni og er síðan
fylgst með hellisbúagengi nokkru.
Þar er verið að uppgötva helstu am-
boð mannsins og fer Sid Caesar þar á
kostum. Þá er vikiö ögn að Móses,
eins og áður gat, en síðan víkur sög-
unni til Rómar og er það lengsta
tímabilið í myndinni. I Róm ríkir
Sesar og keisaraynjan Kynóð.
Skemmtispekingurinn Comicus lend-
ir þar í útistöðum við keisara og á
fótum sínum fjör aö launa ásamt
umboðsmanni sínum, Swiftusi,
þrælnum Josephusi og Vestumeynni
Miriam. Flóttinn er makaiaus og ber
þau loks að landi í Galíleu. Þar hitti
þau m.a. Jesús og lærisveinana og
Leonardo da Vinci. Þessi saga og sú
um hellisbúana eru tvímælalaust
best lukkuðuhlutarmyndarinnar.
Þessu næst er spænski rannsóknar-
rétturinn tekinn fyrir á afar nýstár-
legan hátt, en loks víkur sögunni til
Parísar árið 1789, þar sem franska
stjómarbyltingin er um þaö bil að
hefjast. Loðvík XVI. ræður ríkjum,
gerspilltur. Alþýða manna hefur
misst þolinmæöina og til að forða
kóngi frá henni er hlandberi konungs
dubbaöur upp í gervi hans. Hann
lendir í klóm múgsins og skal nú
hengdur. En skyndilega berst hjálp-
in og úr óvæntri átt. Þannig endar
myndin, eru fyrirheit eru gefin um 2
hluta, væntanlega ekki síðri.
Saga heimsins er mjög vel unnin
kvikmynd, bæði hvað snertir mynda-
töku, leikmynd og gervi. Brooks
hefur löngum haft góða grínleikara í
myndum sínum og svo er einnig hér.
Helsti gallinn viö myndina er sá, eins
og áður sagði, að púðrið fer nokkuð
úr gríninu í seinni hlutanum og
verður þaö að skrifast á reikning
leikstjórans. Einhverjum kann líka
að þykja Mel Brooks guðlastari og
víst er húmorinn nokkuð oft neðan
mittis. En engu að síður er Saga
heimsins fyrsta flokks skemmtan og
er vel til þess fallin að auka fólki vor-
hug.
Pétur Ástvaldsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Tilkynning
til innflytjenda
Athygli innflytjenda er vakin á útkomu „Tollahandbókar I,
leiðbeiningum um tollskjöl”, sem fjármálaráðuneytiö hefur
nýverið gefið út. Er bókin til sölu hjá Bókabúð Lárusar
Blöndal.
Vegna bættra leiöbeininga um frágang aðflutningsskjala er
unnt að breyta starfsháttum hjá tollstjóraskrifstofunni í þá átt
að gera innflytjendum betri upplýsingar um hvernig einstakar
tollafgreiðslur eru á vegi staddar hverju sinni. Verður það
gert með starfi upplýsingafulltrúa. Einnig verður tekinn upp
sá háttur að fyrirspurnir um tollflokkun vöru veröa aö gera
skriflega og verður þeim svarað skriflega. Slíkum fyrir-
spurnum verður þá eftirleiðis ekki svarað í síma né í munn-
legum viðtölum. Sérstakt eyðublað er fáanlegt fyrir slíkar
fyrirspurnir.
Koma breytingar þessar til framkvæmda þriðjudaginn 5. apríl
nk.
TOLLST JÓRINN í REYKJAVÍK
22. mars 1983.
JUMBO
FRA
SAMSUNG
BYLGJUR: LW - MW - FM STEREO
SNERTITAKKAR — 12 WATTA MAGNARI
AMPS SJÁLFVIRKUR LAGALEITARI - 4 HÁTALARAR
LÁGMÚLA 7
REYKJAVÍK SÍMI 85333
SJÓNVARPSBÚÐIN
Verð kr.
7.315,- (stgr.)