Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Page 32
32 DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. AIARS1983. Sigríður Jóna Þorbergsdóttir lést 20. mars. Hún fæddist í Efri-Miðvík í Aðalvík, dóttir hjónanna Oddnýjar Finnbogadóttur og Þorbergs Jónsson- ar. Sigríöur giftist Olafi Helga Hjálmarssyni, en hann lést árið 1974. Þau eignuðust sjö börn. Otför Sigríðar verður gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Viggó Alfred Oddsson lést 7. mars. Hann fæddist í Vatnskoti í Þingvalla- sveit 2. desember 1932, sonur hjónanna Katrínar Sylvíu Símonardóttur og Odds Helgasonar. Viggó lauk námi í rennismíði frá Vélsmiðjunni Hamri hf. Viggó réð sig til starfa til Siiöur- Afríku árið 1963. Vann hann fyrstu 3 árin í Ródesíu, en síðan í Jóhannesar- borg, þar sem hann starfaði til dauða- dags sem yfirmaður hjá stjórfyrirtæki. Viggó var maður vel ritfær og í aldar- f jórðung birtust greinar hans í ýmsum blöðum hér. Viggó starfaði í ýmsum félögum, var meðal annars formaður Bindindisfélags ökumanna hér og á Ródesíuárum sínum var hann varafor- maður Norræna félagsins í Salisbury. Minningarathöfn hans verður gerð í Dómkirkjunni í dag kl. 15. Torfi Guðbjörnsson bókargerðar- maöur lést 18. mars. Hann fæddist 5. desember 1907. Foreldrar hans voru Jensína Jensdóttir og Guðbjörn Guð- brandsson. Hann var kvæntur Rósu Jónatansdóttur. Eignuðust þau eina, dóttur. Otför Torfa verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Snorri Ólafsson, Suðurgötu 63 Hafnar- firði, verður jarðsunginn í dag frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 13.30. Þorkell S. Gunnarsson, Bankastræti 11 Rvk, verður jarðsunginn miöviku- daginn 30. mars kl. 10.30 frá Nýju kapellunni í F ossvogi. Ólafur Guttormsson, Stýrimannastig 3, erlátinn. Oddur A. Sigurjónsson, fyrrverandi skólastjóri, Hólagötu 24 Vestmanna- eyjum, lést í sjúkrahúsi Vestmanna- eyja aðfaranótt 26. mars. Utförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 2. apríl kl. 17. Tilkynningar Unglingaleiðtoga- námskeið í Noregi 24.-30. júlí 1983 Iþróttasamband Noiegs hefur boðiö Iþrótta- sambandi tslands aö senda átta fulltrúa á námskeið fyrir unglingaleiötoga sem haldið veröur dagana 24.—30. júlí 1983 í Dombásun sem er þjálfunar- og íþróttamiðstöö norska íþróttasambandsins. Iþróttasamband Noregs greiöir uppihalds- kostnað og ferðakostnað vegna námskeiðsins innan Noregs. Þátttakendur greiða kostnað við ferðir til og frá Noregi en munu njóta afsláttar á fargjaldi samkv. samningi ISt og Flugleiða. Héraðssamböndin eru beðin að láta skrifstofu ISI vita fyrir 15. apríl nk. ef einhverjir innan þeirra íþróttahéraða vilja nota boð þetta. Félag einstæðra foreldra — stór flóamarkaður Stór flóamarkaður veröur haldinn 9,—10. apríl. Öskað er eftir öllu mögulegu dóti á flóa- markaðinn, tilvalið að taka til í geymslunni, voriö er í nánd. Upplýsingar í síma 11822 á skrifstofutíma og eftir kl. 19.00 í síma 32601. Sækjum heim. Alliance Francaise Byrjendanámskeið í frönsku fyrir íslensk börn og unglinga. 26. mars hefst á vegum AF byrjendanám- skeið í frönsku fyrir íslensk böm og unglinga. Kennt verðurá laugardögum í húsnæði AF, Laufásvegi 12, og verða hóparnir tveir. Hópurl: 7— llára, hópur2:11—15ára 6 þátttakendur verða í hvorum hópi og er hver kennslutími ein klukkustund. Kennarar eru íslenskir. Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði talaös og ritaðs máls án þess að fara út í fræðilega greiningu. Aðferðin sem stuðst er við hefur í mörg ár verið notuð með góðum árangri, einkum í Bretlandi og Kanada þar sem margir nemendur byrja frönskunám strax á barna- skðlaaldri (7—8ára). Kennsla fellur niður 2. apríl (páskar) en ann- ars verður kennt á hverjum laugardegi fram til 28. maí. Námskeiðin hefjast svo aö nýju eftir sumarleyf i, í lok september. Ef aðsókn reynist mikil að námskeiðunum er hægt að mynda fleiri hópa. ATH. Þeir foreldrar sem hyggjast innrita böm sín á námskeiðin eru vinsamiegast beðnir að hafa ef tirf arandi atriði í huga: 1) Bömin verða sjálf að vilja koma og hafa áhuga á að læra frönsku. 2) Mikilvægt er að fylgst sé með að börnin mæti í alla tímana (nema veikindi eða önnur ðfyrirsjáanleg atvik komi upp og sé þá haft samband við kennara). 3) Eingöngu er tekið við bömum sem þegar hafa góð tök á mððurmálinu, eiga hvorki í vandræðum með lestur né skrift og hafa áhuga á að læra erlend mál. Nánari upplýsingar fást hjá AF, Laufásvegi 12, alla virka daga kl. 17—19 (s: 23870). Innrit- un fer fram á sama stað og tíma. Gjald fyrir bækur og námskeið tímabilið 26. mars til 28. maí (9 tímar og 2 bækur) er kr. 600,-. Styrktarsjóður aldraðra tekur með þökkum á móti framlögum í sjóð- inn (minningargjöfum, áheitum, dánargjöf- um). Tilgangur hans er að styrkja eftir þörf- um og getu hvers konar gagnlegar fram- kvæmdir, starfsemi og þjónustu i þágu aldr-1 aðra með beinum styrkjum og hagkvæmum lánum. Gefanda er heimilt að ráðstafa gjöf sinni í samráði við stjórn sjóðsins til vissra stað- bundinna framkvæmda eða starfsemi. Gefendur snúi sér til Samtaka aldraðra, Laugavegi 116, simi 26410, klukkan 10—12 og 13—15. Námsstefna um samhæfingu (integrering) í almennum skólum. I.andssamtökin Þroskahjálp gangast fyrir námsstefnu (symposium) í umboði Norrænu samtakanna NFFU (Nordiska Förbundet Psykisk Utvecklingshamning) um efnið „En skola för alla” dagana 18.—22. apríl nk. að Hótel Loftleiðum. Sérfræðingar í kennslumáÞ um þroskaheftra á öllum Norðurlöndunum munu sækja þessa námsstefnu en þar verður fjallað um samhæfingu á námi þroskaheftra í hinum almenna skóla og samræmdar aðgerðir í þeim málum á Norðurlöndum. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40—50 manns. Þarf að sækja um þátttöku fyrir 7. apríl nk. á skrifstofu Þroskahjálpar í Nóatúni 17,105 Reykjavík, simi 29901. NFPU-samtökin eru 20 ára á þessu ári. Bæði einstaklingar og félagasamtök á öllum Norðurlöndunum eiga aðild að þeim Þau hafa frá upphafi haft 6—8 námsstefnur um málefni vangefinna á hverju ári, gefa út vandaö tímarit, Psykisk Utvecklingshamn- ing — og halda Norðurlandaþing 4. hvert ár, síðasta þing í Reykjavík 1979. Það næsta verður í Stavanger, Noregi, í ágúst nk. í gærkvöldi í gærkvöldi MARGT ER BETRA EN SJÓNVARP OG ÚTVARP Sjálfsagt er aö sem flestir láti skoðanir sínar í ljós á útsendingum sjónvarps og útvarps. En því er nú þannig farið hjá mér að mér finnst kvöldum oftast betur varið í allt annað en aö sitja yfir áðurnefndum fjölmiðlum. Það kemur fyrir að ég hlusta á lög unga fólksins en það vantar mikið á að þar séu góð lög á ferð. Með því skemmtilegasta í útvarpinu finnst mér þátturinn Á tali með Helgu Thorberg og Eddu Björgvinsdóttur. Þær eru einstakar, báöar tvær. Heldur finnst mér þungt yfir mánudagsmyndum sjónvarps og var þar norska leikritið í gærkvöldi engin undantekning. En ég held þó að allt sé betra en bresku myndirnar sem eru flestar langdregnar og væmnar svo margir sofna yfir þeim. Með besta sjónvarpsefninu finnst mér vera Glugginn, Á döfinni, Skonrokk og dönskukennslan Hildur. Þriggja- mannavist er sæmilegur þáttur en Löður var þó betri. Margrét Sverrisdóttir. Leiklist Bréfberi víkur fyrir Spékoppum Flosi Úlafsson, leikari og rithöfundur, er nú kominn norður yfir heiðar til Leikfélags Akur- eyrar en þar er hann nú að sviðsetja þýðingu sína á einum frægasta gamanleik Feydeaus. Flosi nefnir leikritið Spékoppa en Feydeau nefndi það Un purge bébé, eða Látiöi krakkann laxera. Georges Feydeau (1862—1921) er talinn í röð fremstu snillinga í því að semja góðan farsa. Á Islandi hefur Leikfélag Reykjavíkur sýnt eftír hann Fló á skinni og Þjóðfeikhúsið. Hvað varstu að gera i nótt?, Vert’ ekki nakin á vappi og Hótel Paradís en þetta er í fyrsta sinn sem LA er með verk hans á fjölunum. Frá ungmenna- félaginu Ármanni Undanfamar 6 vikur hafa staðið yfir æfingar hjá ungmennafélagi Ármanni á Kirkjubæjar- klaustri á leikritinu Bam í vændum eftir norska leikarann og leikritahöfundinn Sverre Gran. Þessum æfingum hefur stjórnað Jónína Kristjánsdóttir leikstjóri úr Keflavík. Ár- menningar hafa áður notið tilsagnar hennar í leiklist en það var sl. vetur er hún setti leikrit Jónasar Árnasonar, Skjaldhamra, upp hér á Kirkjubæjarklaustri. Leikritið Bam í vændum er gamanleikrit sem gerist nú á tímum ogireinir frá einni helgi í líf i Bing-Eriksen fjölskyldunnar. Með hlutverk í leiknum fara: Soffía Ragnarsdóttir, Júlíus Oddsson, Sólveig Davíðsdóttir, Sigmar Helga-, soii, Jóna Borg Jónsdóttir og Kristín Ásgeirs- dóttir. Ákveðið hefur verið að frumsýna leikritið í kvöld, þriðjudagskvöldið 29. mars, í Félags- heimilinu Kirkjuhvoli. Einnig eru fyrirhugað- ar sýningar víða á Suðurlandi m.a. í Árnesi, á Flúðum, í Gunnarshólma og Vík í Mýrdal. Spékoppar á Akureyri Leikfélag Akureyrar frumsýnir gamanleik- inn Spékoppa eftir Georges Feydeau miöviku- daginn 30. mars kl. 20.30. Flosi Ólafsson, leik- ari og rithöfundur, þýddi leikritið úr frönsku og er jafnframt leikstjóri. Jón Þórisson hann- ar ieikmynd og búninga og Viðar Garðarsson lýsinguna. Leikritið Spékoppar eða „Un purge bébé” var skrifað 1910 og er nú álitið eitt af meistara- verkum Frakkans Feydeau. Leikurinn gerist á heimili postulínsframleiðandans Flóvent í París. Hann hefur fundið upp nýtt postulín, sem á að vera óbrjótandi, og látið steypa úr því næturgögn, Sem hann ætlar að reyna að selja franska hernum í stórum stíl. Af því til- efni hefur hann boðið yfirmanni í franska hermálaráðuneytinu, Kújón, í kvöldverð. En þeir eiga báðir óstýrilátar eiginkonur og auk þess er sonur Flóvents enn óþekkari, svo heimboðið fer öðruvísi en ætlað var. Leikarar í Spékoppum eru: Þráinn Karlsson (Flóvent), Sunna Borg (frú Flóvent), Marinó Þorsteinsson (Kújón), Ragnheiður Tryggva- dóttir (Rósa), Gunnar Ingi Gunnsteinsson (Dódó), Kristjana Jðnsdóttir (frú Kújón) og Theodór Júlíusson (Frans). Aðstoðarleikstjóri er Ragnheiður Tryggva- déttir, yfirsmiöur leikmyndar Bjarni Ingvarsson og búningameistari Freygerður Magnúsdóttir. önnur sýning á Spékoppum verður annan í páskum og þriðja sýning fimmtudaginn 7. apríl. Fyrirlestrar Laugardaginn 30. apríl flytui Julian Meldon D’Arcy, lektor í ensku, fyrirlestur sem nefnist Tálmyndir og átrúnaðargoð í Tess of the d’UrberviIles eftir Thomas Hardy. Ýmislegt Umhverfismálastyrkir Atlantshafsbandalagið (NATO) mun a arinu 1983 veita nokkra styrki til fræðirannsokna a vandamálum er varða opinbera stefnumotun i umhverfísmálum. Styrkirnír eru veittir a vegum nefndar bandalagsins, sem fjallar um vandamal nutúnaþjóðfélags og er æski- legt að sott verði um styrki tíl rannsokna er tengjast einhverju þeírra verkefna sem nu er fjallað um á vegum nefndarinnar. Gert er raö fyrir að umsækjendur hafi lok- ið háskólaprófi. Umsóknum skal skilað til utanrikisraðu- neytisins fyrir 31. mars 1983 og lætur raðu- neytið 1 te nanari upplysingar um styrkína, þ.a.m. framangreind verkefní. Utanrikisraöuneytið, Reykjavik, 4. mars 1983. Fundir Fuglaverndarfélag íslands Næsti fræðslufundur Fuglaverndarfélags Is- lands verður í Norræna húsinu þriðjudaginn 29. mars’83kl. 8.30. Magnús Magnússon sýnir þar nýja kvikmynd sem hann nefnir: Fuglar í dag — menn á morgun. Myndin er tekin í samráði við líf- fræðideild háskólans af fuglalífi á Mývatns- svæðinu. Að lokinni sýnhigu verður aðalfundur félags- ins. Öllum heimill aðgangur. Stjórnin. Aðalfundir Kvenfélag Hreyfils Aðalfundur kvenfélags Hreyfils verður hald- inn þriðjudaginn 29. mars í Hreyfilshúsinu kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. Spilakvöld Kvenfélag Kópavogs veröur með félagsvist þriðjudagmn 29. mars kl. 20.30 í félagsheimilinu. Félagsvist verður spiluð í kvöld (þriðjudag) í safnaðar- heúnili Hallgrímskirkju. Byrjað verður að spila kl. 20.30. Ný þriggja kvölda keppni byrj- ar. Ágóði af spilakvöldinu rennur til Hallgrímskirkju. íþróttir Skíðanámskeið Fram Fúnm daga námskeið fyrir börn, byrjendur og lengra komna frá 31. mars til 4. apríl kl. 14.00—16.00 alla dagana. Verð: Börn350. Unglingar450. Fullorðnú-750. Lyfta er innifalin. Vanir kennarar. Upplýsingar og innritun frá kl. 18.00—20.00 í súnum 36076, Guðmundur og 72166, Jón. Skíðadeild Fram. BELLA Óskaplega hata ég fólk sem svar- ar öllum spumingum með spum- ingu: Nei, á ég að gera það? / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.