Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Síða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
35
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Sjónvarpið hefur hvet jandi áhrif á bóklestur:
„Glápiö ernefni-
lega auglýsing”
Hanna Sigurbjörnsdóttir bókavörður
Sólheimasafniö er litiö og
vingjamlegt bókasafn í Vogahverfinu.
Þar hittum viö Hönnu Sigurbjörns-
dóttur sem hefur starfaö í tuttugu ár
viö safnið og er nú aö taka viö börnun-
um sem hún afgreiddi í upphafi komn-
um aftur með sín börn.
Finnst þér bamabækurnar hafa
batnað meö árunum?
„Það er eiginlega ekki hægt fyrir
okkur hér aö setja neinn mælikvaröa
um þaö. Bækurnar eru orönar opnari,
fjalla um kynferöismál og foreldra-
vandamáliö. Þaö eru einkum erlendar
bækur, danskar, sænskar. Ekki eins
norskar. Islensku barnabækumar í
dag eru yfirleitt prýöilegar. Börn vilja
á ákveönum aldri mikla spennu í
bókum.” Hún sýnir mér bækur sem
eru sérlega vinsælar. Sumar þeirra
eru meira fyrir unglinga og sumar eru
jafnmikiö lesnar af fullorönum.
Hjálpiö þið krökkunum að velja ?
„Já, ef viö finnum aö þeir eru í
vandræöum þá spyrjum viö þá aö
hverju þeir séu aö leita. Ég bendi þeim
á bækur sem mér hafa þótt
skemmtilegar og strákunum mínum
þóttu skemmtilegar. ’ ’
Hún segir mér frá því að bækur
hverfi alltaf af safninu um leið og það
er fariö aö lesa þær í útvarpi.
Hvenær fara krakkar aö fara yfir í
fulloröinsdeildina ?
„Strákarnir eru ekki nema 12—13
ára þegar þeir fara að spyrja um
Hammond Innes og Alistair McLean.”
Byrja þeir á afþreyingunni?
„Þaö eru undantekningar ef þeir
lesa annaö. Þaö eru bara lestrar-
hestamir á skólabækumar sem gera
þaö.” Við komum að sögustundinni
sem er klukkustund á viku í safninu.
Þá er lesin bók fyrir börnin. Hvaö em
þetta gamlir krakkar sem koma í
sögustundina?
„Þeir em þriggja t-il sex ára.
Stundin vekur áhuga þeirra á aö nota
safnið seinna. Þaö skiptir miklu máli
að bömin læri aö nota söfnin. Foreldr-
ar kvörtuöu oft yfir því aö bömin
héngju á söfnunum og nenntu.ekki að
lesa skólabækumar. En það er nú
þannig aö þeir sem em duglegastir í
skóla lesa lika mest af skáldsögum.”
Finnst þér áhugi hafa minnkaö fyrir
bókum meö sjónvarpi og videoi?
„Mér fannst strax vakna áhugi með
sjónvarpinu. Ef kemur mynd um
eitthvað sérstakt, til dæmis frá Afríku,
þá fer fólk strax aö leita aö bókum um
efniö. Okkur fannst sjónvarpið strax
hafa hvetjandi áhrif. Ef fjaUað er um
áhugaveröan mann, finn ég áhugann
aukast fyrir honum. Glápið er
nefnilega auglýsing. ”
Er bókin á undanhaldi?
„Langt frá því. Ég á tólf bamabörn
og þau eru alltaf lesandi.”
BOKEN KOMMER
SOKEN KOMMER
BOKEN KOMMER
BOKEN KÖMME8
BOKEN KOMMER
BOKEN KOMMER
EOKEN KOMMER
boken kommer
kommír
' kowimcr
KOMM«"
Hanna Sigurbjörnsdóttir bókavörður i Sólheimabókasafninu. Á borðinu situr barnabarn hennar, Ásta
Sigurbjörnsdóttir. Hún er fjögurra áraogiæs. DV-myndE.O.
„Ég erómótiþvi að segja bömum hvaðþau eigi að lesa," segir Sissa.
SissaíPennanum:
,Krakkamir
i dag em
lestrarhestar’
„Mér finnst vanta meira af góðum
íslenskum höfundum sem þekkja inn
á litlu börnin,” segir Sissa í
Pennanum þegar við biöjum hana
um að segja okkur álit sitt á barna-
bókum. Sissa hefur langa reynslu ai
því aö afgreiða og leiöbeina um val á
bamabókum og öðrum bókum.
Sissa segir okkur eiga mikiö af
góöum höfundum sem fullnægi
þessum skilyröum en þeir mættu
vera fleiri. „Myndabækurnar eru aö
dala,” segirhún.
Hvers vegnaerþað?
„Það er held ég pínulitiö málið og
stafagerðin. Svo eru foreldrarnir
ekki hrifnir af þeim. Þeir segja viö
bömin: „Þú færö ekki svona bók. Ég
vilgefa þér almennilega bók.”
„Eg er á móti því aö segja bömum
hvaö þau eigi aö lesa,” segir Sissa
Við verðum aö fara eftir bömunum.
Eg vil selja barni myndabók ef þaö
vill fá hana. Þegar krakkamir eldast
þá fara þeir aö vilja góðar bækur.”
Finnst þér bækur í dag betri en
áöur?
„Þetta er mikið þaö sama. Þetta
hoppar svolítiö. Þegar bókaútgáfan
Vaka gaf út bók meö gátum þá hafði
ekki komið út bók meö gátum lengi.
Þessi bók stoppaöi ekki. Það er
vegna þess, held ég, aö fjölskyldan
tekur þátt í gátubókunum meö
krökkunum og þeir hafa þá eitthvað
til aö tala um viö aöra heima.
Krakkar lesa myndabækur og
spennubækur og þeir gleyma þeim
um ieiö. Þetta eru aöallega
myndimar. Svo eru krakkar sem
vilja bara myndabækur af því aö
þeir kunna ekki að lesa og vilja þá
láta lesa fyrir sig. Þá finnst mér for-
eldramir vera frekar á móti þvi og
vilji fá þau til aö lesa öðmvisi
bækur.”
Lesa krakkar i dag minna en
áöur?
„Nei, nei, nei, nei,. Krakkarnir í dag
eru lestrarhestar.”
Em þetta sömu bækur og vom á
markaönumfyrir 10—15ámm?
„Nei, þá voru Nonnabækumar og
erlendar seríubækur eins og Nancy-
bækumar og Frank og Jói vinsælast-
ar.”
Kaupa krakkarnir sjálfir bækur
eða eru það mest f ullorðnir?
„Bækumar sem em keyptar em
mest afmælisgjafir og jólagjafir.
Sumir safna fyrir eigin bókum. ÞaÖ em
til bom sem em bókasjúk og safna fyrir
eigin bókum. Þau selja blöð og þess
háttartil að eiga fyrirþeim.”
Nú tefjum viö Sissu ekki lengur
því hún hefur eins og venjulega
mörgumaösinna.
BARNA OG UNGUNGABÆKUR
EIGA AÐ VERA SPENNANDI
Lóa Erlingsdóttir og Stella Ingvarsdóttir skoða úrvalið á Sólheimabóka-
safninu. DV-mynd E.Ó.
„Viö komum svona tvisvar,
þrisvar í viku,” sögöu Stella Ingvars-
dóttir og Lóa Erlingsdóttir 12 ára.
Þær sátu viö borð í barnabókasafni
Sólheimabókasafnsins. önnur var aö
lesa DV, hin teiknimy.idasögu.
Hvaö finnst ykkur skemmtileg-
astaölesa?
„Dularfullar bækur. Allar
spennandi bækur.”
Sitjiö þiö héma og lesiö?
„Já, Vikuna, til dæmis.”
Hvaö hafiö þiö komiö lengi?
„Frá svona 8—9 ára aldri.”
Hvað ætliö þiö að taka meö ykkur
heimnúna?
önnur sýnir mér bunka af mynda-
sögum.
Kaupið þið mikið af bókum?
„Við fáum mest gefins, í afmælis-
gjöf og svoleiðis.”
Farið þið eitthvaö á fulloröins-
bókasafnið?
Nei, þær fara aldrei þangað.
Hvernig eiga góöar barna- og
unglingabækur aö vera?
„Spennandi.”
Nancy og
svikahrapparnir
Eiga þær aö gerast í útlöndum eöa
á Islandi?
„Það er dálitiö gaman ef þær ger-
astálslandi.”
Hvaö takið þið margar bækur þeg-
arþiökomiö hingað?
„Þær geta fariö upp í 10 til 15.”
Finnst ykkur einhverjar bessara
bóka leiöinlegareöa asnalegar?
Þær em sammála um þaö.
Hvemig þá?
„Æ, langdregnar og svoleiöis.”
Hvort lesiö þiö meira af mynda-
sögumeöa hinsegin bókum?
,JVIeira af hinsegin,” segir Stella.
„Ég er búin að lesa allar þessar
myndasögur.”
Hvað emð þiö aö lesa heima hjá
ykkur núna?
„Eg er aö lesa Nancy bækur
núna,” segir önnur. Eg er aö lesa
Nancy ogsvikahrappamir.”
Hún vill ekki rekja efniö af því að
hún er ekki komin svo langt.
Hvaö gerir Nancy?
„Mér finnst hún stundum vera
einum of,” segir Stella. „Hún er
leynilögreglukona og getur alltaf
bjargaö öllu. Þaö em kannski
margir búnir aö reyna að leysa mál og
svo kemur hún og leysir það.”
Hún er ekki flugfreyja?
„Nei.”
Hætti ekki að lesa
Sumir segja að þaö endi meö því aö
fólk hætti aö lesa vegna þess aö þaö
er komiö sjónvarp, video og kvik-
myndir.
„Æ, ég veit þaö ekki,” segir
önnur. „Mér finnst ekkert gaman að
horfa á video.”
Finnst ykkur video ekkert
skemmtilegt?
„Nei, ég myndi aö minnsta kosti
ekki hætta aö lesa bækur vegna
þess.”
Hvaö með f yndnar bækur?
„Okkur finnst gaman aö lesa
fyndnar bækur. Gallinn er bara aö
þaö er svo lítið til af þeim. ’ ’