Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 36
36 DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983. Svíðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Hársbreiddin skiptir máli Hárgreiðslumeistara- félag Islands hélt mikla hárgreiðslusýningu í veit- ingahúsinu Broadway sunnudaginn 6. mars síðastliðinn. Húsfyllir var á sýningunni. Á sýningunni sýndu 23 hárgreiðslu- og rakara- stofur það nýjasta í hár- tískunni og komu hvorki meira né minna en um 120 módel fram á sýningunni. Lögð var áhersla á að sýna það nýjasta í tískunni fyrir alla aldurs- hópa. Og þá voru klipp- ingarnar hinar fjölbreyti- legustu, stuttar og síðar og allt þar á milli, að sjálfsögðu. Heimsmeistarinn í hár- skurði, Siegfried Eben- hoch frá Þýskalandi, kom á sýninguna og sýndi góða takta. Á meðan á dvöl hans stóð hér á landi hélt hann námskeið fyrir hár- greiðslu- og rakarameist- ara. Þegar sjálfri sýning- unni var lokið tók við venjulegt ball þar sem dansinn dunaði dátt. Er ekki að efa að þar hafa margir tekið danssporin snyrtilegir um kollinn. Þess má geta að Hár- greiðslumeistarafélag ís- lands hefur haldið sýningu sem þessa einu sinni til tvisvar á ári á undanförnum árum og hafa þær ætíð þótt takast mjög vel. -JGH. Þessir herrar voru á meða/ 120 móde/a. Ljóst að karlmenn geta nú valið um margs konar herraklippingu. Eins og sóst á myndinni var stemmningin góð ó sýningunni og engir fóru íhársaman. Það varheldur ekki við öðru að búast. D V-myndir: Friðþjófur. Hún gerist sifellt djarfari, greiðslan. Hórmó sjá nokkur módel ó sýningunni sem vöktu óskipta athygli. Þessi greiðsla vakti mikla athygli. Módelið heitir Kata Hall og sú sem fór um hana höndum varHelga Bjarnadóttir hárgreiðslumeistari. Sumir á sýningunni töluðu um greiðsluþol. Flestir á sýningunni voru sammála um að það væri mikið hjá módelunum. Og þetta módel hefur örugglega ekki verið þar nein undantekning. Hún heitir Margrót Ólafs- dóttir og sú ersá um snyrtinguna var Guðrún Sverrisdóttir hórgreiðslu- meistari. Fallegar stulkur með fallegt hár. Jó, það er greinilegt að hórið getur verið greitt é ýmsa vegu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.