Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Side 15
DV. MIÐVKUDAGUR 20. APRÍL1983.
15
eftireitt ár?)
Þá getur farþeginn einnig komið við í
Osló á leiöinni út og stoppað í Noregi að
vild án þess að farmiðinn hækki í verði
og hann getur líka komið viö í Glasgow
á leiðinni heim og haft viðdvöl án þess
að farmiðaverðið breytist eða þá snúið
þessu viö. Þannig er hægt að heim-
sækja þrjár þjóðir á þessum eina og
sama farmiða á sama gjaldi og ef
flogið er beint til Kaupmannahafnar og
heim aftur. Ut frá þessu eru svo ýmis
tilbrigði sem ekki verða rædd hér en
kostir aðalfargjalda eru margir.
GÓÐUR
UNDIRBÚNINGUR
Ofanskráð er ekki sett niðurá blaötil
þess að hræða fólk frá því að kaupa
farmiða á lægsta veröi. Þess eru hins
vegar alltof mörg dæmi að fólk hefur
ekki gert sér fulla grein fyrir þeim tak-
mörkunum sem um ódýrustu fargjöld-
in gilda fyrr en of seint. Það er ekkert
grín fyrir stóra fjölskyldu, sem keypt
hefur apexmiða til útlanda ef einn eða
fleiri úr familíunni leggjast í flensu
daginn fyrir brottför svo enginn kemst
neitt. Þá eru miðamir ónýtir og pen-
ingamir tapaðir. Að vísu er hægt að
kaupa sér tryggingu fyrir slíku og það
ættu menn að gera. En sú trygging gild-
ir þó aðeins um tilfelli þar sem ekki er
hægt að hefja ferð á þeim degi sem
ákveðinn var. Ef fjölskyldan leggst í
bælið í útlöndum daginn áöur en halda
á heimleiðis þá ógildast miðarnir heim
ef ekki er farið á þessum ákveðna degi.
Þá verður heimf erðin dýr.
Besta ráðið sem hægt er að gefa fólki
sem hyggur á ferðalög á eigin vegum
er aö það leiti sér sem bestra upplýs-
inga áður en flugmiðinn er keyptur og
geri sér fulla greina fyrir þeim skil-
málum sem gilda um hin og þessi far-
gjöld. Oft er sérstaklega hagkvæmt að
kaupa flugfar og gistingu í einum
pakka eða flug og bílaleigubíl saman
og fæst þá mjög gott verð. Flugið er
fljótasti og þægilegasti samgöngumáti
nútímans og miðað við alla kosti flugs-
ins er þaö um leið ódýrasta aðferðin til
að koma sér milli staöa. Hikið ekki við
að spyrja þá aöila sem þið kaupið far-
seðilinn hjá í þaula um allt er viðkem-
ur fargjöldunum. En aö endingu er
valiö auðvitaö ykkar, hvort þið kaupið
miða á ódýrasta gjaldi, milligjaldi eða
hæsta gjaldi. Að lokum er rétt að hafa í
huga að það er takmarkaöur fjöldi
sæta sem boðinn er á ódýrustu gjöldun-
um í hverri flugferð og þeir sem ætla
að nýta sér þessi gjöld ættu því að hafa
tímann fyrirsér.
Sæmundur Guðvinsson
tSAMEINIÐ ENSKUNÁM
OG SUMARFRÍ.
ENSKUKENNSLA FYRIR
HÁDEGI, SKEMMTIFERÐIR
OG ÍÞRÚTTIR EFTIR HÁDEGI
OG Á KVÖLDIN.
Sighngar. Ein af þeim mörgu íþróttum sem boóió er upp á.
/ sumar efnir hinn vinsæli málaskóli, The Globe Study Centre For English i Exeter, ti/
námskeiöa i ensku fyrir fólk á öllum a/drí. Undanfarín 5 sumur hafa margir ánægöir /s-
lendingar stundað enskunám þar sem öllum nýtisku kennsluaðferðum er beitt og jafn-
framt notið Hfsins á þessum veðursæla stað við suðurströnd Englands.
Margs konar skemmti- og kynnisferðir eru i boði þar sem allir finna eitthvað við sitt
hœfi. Boðið er upp á sórstaka kennslu í t.d. golfi, siglingum og tennis.
Um tvenns konar gistimöguleika er að ræða: Annars vegar dvöl hjá enskrí fjölskyldu
sem er vandlega valin af okkur, þar sem nemandi hefur sitt einkaherbergi, og hins
vegar dvöl i háskólagörðunum þar sem nemendur hafa sitt herbergi en sameigin/ega
setustofu og eldhús. 6—12 manns eru þá saman um eina ibúð og er þetta tilvalið fyrír
t.d. tvær fjölskyldur.
Námskeiðin eru á þessum timabiium:
25. j'úní—16. júii
16. júlí—6. ágúst
6. ágúst—27. ágúst
Hafió samband við Böðvar Friðriksson
i sima 41930 á skrifstofutíma og i
síma 46233 á kvöldin og um helgar.
_ _ _ _ ÉT GYLMIR
LCJXCISSIGUNG, SCJMARHGS
OG BÍLLINN MEÐ TIL MEGINLANDSINS!
1.
2.
3.
4.
Frá kr. 13.200.- Þýskaland
sumarhús í Sudeifel eða í
Eichwald og bíllinn með
Frá kr. 11.500.- Ítalía
íbúðir í Bibione skammt frá
Lignano og Fenegjum.
Kr. 13.700.- uið Gardavatn og
bíllinn með.
Frá kr. 13.500.- Austurríki
íbúðir í Krimml, Sonnenalm eða
Parkuillage og bíllinn með.
Frá kr. 12.200.- Frakkland
/ ChLamonix eða kr. 17.400 í Nice
og Bíllinn með.
Verð miðast við 4 fullorðna í 4 manna
klefa um borð í ms Eddu, flutning á
bíl og leigu húsnæðis.
Þetta eru 3ja vikna ferðir.
Brottfarardagar frá Reyigvík með ms
Eddu verða eftirtaldir:
1. júní, 8. júní, 15. júní, 22. júní og
24. ágúst.
Afsláttur fyrir félaga F.Í.B. kr. 1.000,- fyrir
fullorðna og kr. 500.- fyrir börn.
gengi 2.3. 1983
_s
FIB ötyggi á eriendri grund
Vegna aðildar FÍB í alþjóðasamtökum
bifreiðaeigenda stendur FÍB félögum til boða
þjónusta systurfélaganna í öðrum löndum.
Þau bjóða m.a. vegaþjónustu, ferða-
og upplýsingaþjónustu og jafnvel lögfræði-
aðstoð sé þess óskað.
Aðstoðina má gera upp á staðnum með
sérstökum greiðsluseðlum frá FÍB, sem
greiðast svo hér heima eftir á, hafi þeirra verið
þörf. I sumum tilvikum er aðstoðin ókeypis