Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1983, Blaðsíða 1
íslenskir skreiðarútf lyt jendur berjast hart um sölusamninga: BULLANDIUNDIRBOD OG T1LFÆRSLUR FLOKKA Fulltrúar skreiöarkaupmanna í Nígeríu ganga á milli íslenskra framleiöenda þessa dagana og bjóöa þeim afarkosti, vilji þeir á annaö borö losna viö skreið sina. Kröfur þeirra eru einkum þær aö þeir vilja fá talsvert af skreið í gæöaflokknum ,,Stella” á veröi „Pólar” flokksins, sem er mun ódýrari en ,,StelIa”. Er því um geysilegt hagsmunamál aö — f ramleiðendur og ríkið tapa en kaupmenn í Nígeríu græða ræða. Ekki aðeins fyrir skreiöarframleiöendur, heldur einnig hið opinbera, sem verður af umtalsverðum upphæðum í út- flutningsgjöldum, ef skreiðarvið- skipti fara fram með þessum hætti í einhverjummæli. Þá eru annarskonar undirboö í gangi. Norðmenn eiga þar ekki hlut aö máli nú heldur hinir ýmsu ís- lensku útflutningsaðilar. Blaðiö hefur fengið staöfest samninga um skreiðarsölur á 20 prósent lægra veröi en hið opinbera verö er. Ostaðfestar tölur segja aö einstakir aðilar hafi boðið allt að 27 prósent af- slátt. Það sem nú er selt til Nígeríu er lánað í allt að sex mánuði og ekki er tryggt að greiðslur berist að þeim tíma liðnum. Hinsvegar eru ábyrgðir í Seðlabanka Nígeríu taldar nægileg trygging fyrir því að greiðslur berist einhvern tímann. Ástæðan fyrir þessari „hitasótt” í útflutningi skreiðar er einkum sú að margir eiga mjög mikiö af gömlum birgöum síðan þessi viðskipti stöðvuðust í fyrra. Er þeim í mun að koma vörunni á markað áður en hún skemmist og um leið að tryggja sér verð fyrir vöruna þótt síðar verði. Þetta er nígerísku kaupendunum ljóst og gekk einn þeirra svo langt við íslenskan framleiöanda, sem ekki vildi selja honum ,,Stella” á „Pólar” verði, að segjast tala við hann aftur eftir hálft ár, þá væri hann sprunginn á þrjóskunni. -GS. Þorsteinn Pálsson á Þorsteinn Pálsson, ,,j uju. um maöur Sjálfstæðisflokksins, verður á beinni línu á ritstjórn DV í kvöld. Lesendum DV gefst þá kostur á að hringja í síma 86611 og leggja spumingar fyrir Þorstein. Spumingar til Þorsteins eru ekki takmarkaðar við neinn einn mála- flokk en rétt er að minna lesendur á að Þorsteinn sítur fyrir svörum sem formaður Sjálfstæðisflokksins svo gert er ráð fyrir spurningum í sam- ræmi við það. Þeir sem hringja eru 'beðnir að hafa spumingar sínar skýrar og stuttar og vera viðbúnir því að hver maður féi aöeins aö spyrja einnar spumingar. Beina línan hefst klukkan 20 í kvöld og hætt verður að taka á móti símtölum klukkan 21.30. Spurningar og svör verða síðan birt i DV strax á morgun. -óm m.................» Þorstoinn Pálsson, formaöur Sjálfstœðisfíokksins, svarar spurningum lesenda DV milli klukkan 20 og 21.30 ikvöld. „Er að tálga Orð eins manns leiddu til rannsóknar: Engarsannanirí malarmálinu mig niður” „Komiðisælir, félagar og vinir góðir, og hvernig væri að Dvölin byði góðan daginn svona upp á gamlan kunningsskap. Það getur varla verið nein kvöl." Þannig byrjum við Dægradvölina i dag i þrælgóðu skapi á þriðju- degi. Við fjöllum um vaxtarrækt, körfubolta stúlkna og úr körfu- boltanum förum við igamla góða þjóðbúninginn. Sem sé, fjölbreytt Dvöl að vanda og hún biður eftir þér á blaðsiðu 34 og 35. Góða lesningu. DV-mynd Bjarnleifur. -JGH Ekkert það hefur komið fram í rannsókn lögreglunnar á Keflavíkur- flugvelli í malarmálinu svonefnda sem þykir gefa tilefni til ákæru. Orð eins manns urðu til þess að rannsókn hófst á því hvort vörubfl- stjórar hefðu stungið undan einum og einum malarfarmi sem annars átti að fara til vamarliösins. Að sögn lög- reglustjórans á Keflavíkurflugvelli hefur ekkert bitastætt komiö fram við rannsóknina, engar sannanir liggja fyrir og ekkert veröur frekar aöhafst í málinu nema eitthvað nýtt komi á daginn. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.