Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Síða 1
Matthías Bjarnason heilbrigöisráöherra um daggjaldaskýrsluna:
Ónýtt og dýrt plagg
„Þetta nefndarálit er hrátt og illa
unnið. Þaö segir ekkert nýtt og er
nánast ónýtt plagg, eins og það
liggur fyrir. Þetta er ekki mikill
árangur eftir ársstarf með mann á
launum i níu eöa tíu mánuði. En sem
slíkt var það fokdýrt,” segir
Matthías Bjarnason heilbrigðisráð-
herra.
Plaggið sem fær þennan haröa
dóm ráðherrans er 160 siöna
nefndarálit, „Endurskoðun á fjár-
mögnunar- og stjórnunarkerfi
sjúkrahúsa, á fyrirkomulagi trygg-
ingarumboöa og á deildaskipan i
Tryggingastofnun ríkisins.” I álitinu
dæmir verulegur meirihluti níu
manna nefndar daggjaldakerfi
sjúkrahúsa handónýtt og þjóðhags-
lega óhagkvæmt. Og leggur til breyt-
ingar á stjórnun undir „Samstarfs-
ráöi sjúkrastofnana á Islandi (SSI).”
Nefndin leggur til einföldun
sjúkratrygginga, meðal annars með
því að leggja niður sjúkrasamlög-
in.Og loks leggur hún til dreifingu
valds í stjórnun Tryggingarstofnun-
ar.
„Þetta eru engar nýjar fréttir og
að minnsta kosti helmingurinn af
nefndarálitinu er bara tekinn upp úr
eldri skýrslum. Það er verið að vinna
að endurbótum á þessum sviðum en
plagg nefndarinnar kemur þar að
engum notum, nema það verði unnið
upp. Það er algerlega hrátt og mark-
laust. Það var sem dæmi vitaö að
daggjaldakerfið væri orðið úrelt þótt
það væri gott á sínum tíma. En það
er verið að minnka það smátt og
smátt. Öðru vísi er það ekki hægt,”
segir Matthías Bjarnason.
Hann sagði unnið af krafti að
sparnaðaraðgerðum í samræmi við
markinið fjárlaga. Og þar kæmi
meðal annars til greina aö leggja
niður sjúkrasamlögin.
Það var forveri Matthíasar,
Svavar Gestsson, sem skipaði dag-
gjaldanefndina svokölluðu. HERB
Þrír varnarliðsmenn
á sjúkrahús:
Slysið
ámynd-
bandi
Þrír vamarliðsmenn slösuðust í
hlíðum Svartsengisfjalls síödegis í
gær. Tveir þeirra, karl og kona, voru
fluttir mikiö slasaöir með vamar-
liösþyrlu á Borgarsjúkrahúsiö. Sá
þriðji var fluttur á sjúkrahúsið á
KeflavíkurflugveUi. Enginn er í iífs-
hættu.
Fólkið hafði veriö að renna sér
niöur fjallshlíöina á tveim bíl-
slöngum. Svo Ula vildi tU að
slöngurnar rákust á mikilli ferð á
grjót með þeim afleiöingum að fólkið
kastaöist tíu metra vegalengd áður
en það skaU niöur harkalega.
Bandarikjamaður, kunningi hinna,
náði slysinu og aödraganda þess á
myndband. Myndbandið hefur veriö
afhent KeflavUcursjónvarpinu til
sýningar.
-KMU.
Einn hinna slösuðu borinn úr
þyriu við Borgarspitaiann.
DV-mynd: S.
þessaöóttast
aö Nígeríumenn
standiekki
ískilum
sjábls.2
Arafatvaltur
ísessi
— sjá erlendar f réttir bls. 9 ]
Mannfalliö óhugnanlegast — segir íslendingur, búsetturíírak -sjábls.3 • íslenskir upp- finningamenn þurfa aö flytja \ úrlandi ] — sjálesendurbls. 16
Miönætur- sýningarí Þjóöleikhúsinu — sjábls.4 • ] EldurfSeöla- bankanum í nótt — sjá bls. 28 |
Dægradvöl
Mezzoforte-
stráka
— sjá bls. 20-21
..f
Byiungarstjom
mynduöí
Nígeríuídag
— sjá erlendar fréttir bls. 8