Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Qupperneq 3
DV. ÞRlÐjllDAGUft'3.' jÁNUAft Í984.
3
„Mannfallið er
óhugnanlegast”
— segir Magnús ísfjeld Magnússon sem búsettur
eríBagdad, höf uðborg íraks
Þeir eru ekki margir Islendingarnir
sem eru búsettir á átakasvæðunum
fyrir botni Miðjarðarhafsins. Við hitt-
um einn á dögunum og heitir hann
Magnús Isfjeld Magnússon og er bú-
settur í Bagdad, höfuðborg Iraks. Mun
hann vera eini Islendingurinn sem er
búsettur í þvísa landi.
„Það er ágætt að búa þama, mun
betra en að búa í Saudi Arabíu og
Kuwait,” segir Magnús en hann hefur
einnig búið í síðamefndu löndunum.
Það sem gerir gæfumuninn, að sögn
Magnúsar, er að Bagdad er stórborg
meö evrópskst y firbragð þar sem er að
finna ýmis þau þægindi sem
Evrópubúar eru vanir, en því er aftur
á móti ekki aö heilsa í borgum hinna
tveggjalandanna.
Magnús hefur verið búsettur í
Bagdad á þriðja ár og starfar þar sem
framkvæmdastjóri þýsks fyrirtækis
sem vinnur að uppsetningu verk-
smiðja, sem framleiða meðal annars
byggingarefni úr sandi, sandkalk-
steina. Allan tímann sem Magnús
hefur dvalið í Bagdad hefur stríð
geisað milli Iraka og trana.
„1 Bagdag verður maöur frekar lítið
var við styrjöldina,” segir Magnús,
„en hins vegar var ein verksmiðjan
okkar alnálægt átakasvæðunum einu
sinni í suðurhluta landsins en sú hætta
er nú liðin hjá að minnsta kosti í bili.”
Magnús fór einmitt að kynna sér
aðstæður á þessu svæði á meðan átökin
stóöu enn yfir í nágrenninu.
,,Það heyrðust ógurlegar drunur og
læti og bjarmi yfir öllu”, segir hann.
„Þaö er eiginlega undarlegt aö maður
skyldi ekki hafa orðið hræddur, en sem
Islendingur gerir maður sér kannski
ekki grein fyrir hvað er raunverulega
um að vera,” bætir hann við.
Ahrifa stríösins gætir mun meira
óbeint, til dæmis á efnahagssviðinu
og nefnir Magnús sem dæmi að fyrir-
tæki hans hafi átt í erfiðleikum með aö
fá greiðslur inntar af hendi fyrir verk-
smiðjubyggmgar.
Stríðið kostar Iraka geysilegar fjár-
upphæðir og tapið sem landið hefur
orðið fyrir vegna samdráttar í olíu-
framleiöslu er geysilegt. Hefur þetta
leitt til verðbólgu sem Magnús tclur
vera á bilinu 120 til 150 prósent, en
kaup hefur ekki hækkaö neitt að sama
skapi.
Stærsta tap Iraka álítur Magnús þó
vera mannslífin en mannfall mun vera
óhugnanlega mikiðá báða bóga.
Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði prýðir forsíðu Sveitarstjórnarmála að þessu sinni.
Sveitarstjórnarmál komin út
Sjötta tölublaö 43. árgangs Sveitar-
stjórnarmála, tímarits Sambands
íslenskra sveitarfélaga, er nýkomið út.
Ritiö er um 80 blaðsíður aö stærð og
kennir þar margra grasa. Þar er m.a.
grein eftir Margréti Margeirsdóttur,
deildarstjóra í félagsmálaráöuneyt-
inu, um ný lög um málefni fatlaðra
sem tóku gildi um áramótin.
Greinar um tónlistarmál setja nokk-
urn svip á Sveitarstjórnarmál að þessu
sinni. Egill Friðleifsson skrifar um kór
Öldutúnsskóla, Jón Hlöðver Askelsson
skrifar um álitsgerð tónfræðslunefndar
og hugleiöingar um hana og Stefán
Edelstein skrifar um gildi og tilgang
tónlistaruppeldis.
Af öðru efni má nefna grein Jóns
Sigurðssonar, forstjóra Þjóðhagsstoúi-
unar, um fjárhag sveitarfélaga og
þjóðhagshorfur, grein um gatnakerfiö
í bæjarskipulaginu eftir Einar B.
Pálsson prófessor og frásögn af 11.
þingi Landssambands slökkviliðs-
manna.
Ritstjóri Sveitarstjórnarmála er
Unnar Stefánsson. -GB
„Maður verður frekar litið var við sjálfa styrjöldina í Bagdad en myndir af víg-
völlunum eru óhugnanlegar”, segir Magnús ísfjeld Magnússon sem starfar sem
framkvæmdastjóri þýsks fyrirtækis í Bagdad.
ÐV-mynd EÓ.
„Þaö sem kannski er óhugnanlegast
við þetta er aö það er alltaf að lækka
aldurinn á þeim, sem eru kvaddir til
herþjónustu og þetta verður alltaf
erfiðara og erfiðara eftir því sem fleiri
falla frá,” segir Magnús Isfjeld
Magnússon.
-SþS.
Fyrirtækið Véltak hf.
HEFUR SMÍÐI
FRYSTIGÁMA í
BÁTA OG TOGARA
Fyrirtækið Véltak hf. mun í næsta
mánuöi hefja framleiðslu frysti-
gáma í togara og báta. Aö sögn Guð-
bjarts Einarssonar framkvæmda-
stjóra hefur fyrirtækið látiö gera út-
reikninga sem sýna fram á umtals-
verða aukningu á aflaverðmæti með
tilkomu gámanna.
Einar sagði að fyrst hefði verið
farið að huga að framleiðslu þessari í
október síöastliðnum. Hefði verið
fyrirhugað að hefja hana nú um
, áramót en það heföi dregist vegna
tafa á efni sem keypt er frá
Englandi. Gámarnir væru einkum
ætlaöir fyrir togara, trollbáta,
rækjubáta o. fl.
„1 fyrstunni vorum við aö huga að
meltutækjum í báta”, sagöi Einar,
„en við útreikninga kom í ljós að
frystitækin reyndust miklum mun
hagkvæmari fyrir útgerðina og því
ákváðum við að fara þessa leiðina.
Varðandi aukningu aflaverðmætis
getum viö nefnt sem dæmi togara
sem frystir 200 tonn á ári af fiski sem
ekki fengist alltof hátt verð fyrir í
landi. Með tilkomu frystitækjanna
mætti gera ráð fyrir aö aukning afla-
verömætis hjá honum næmi ríflega 8
milljónum króna. Frystitækin sjálf
myndu kosta á bilinu 800 þúsund til
einnar milljónar króna ’ ’.
Framleiöslu Véltaks veröur
þannig háttað að gámarnir verða
smiðaöir eftir máli í hvert skip fyrir
sig. Sagði Einar að slíkt fyrirkomu-
lag reyndist best því þá gætu kaup-
endur pantað þá stærö sem hentaði
viðkomandi skipi. Það yrði því ekki
um staðlaða framleiðslu að ræða.
Frystivélarnar fyrir gámana sagði
Einar vera innfluttar svo og plötu-
frystitækin sem frystu sjálfan
fiskinn.
-JSS
OKKAR ÁRLEGA
HOFST í MORGUN
^^^^biktoria
v vw V” emifirtUCfli 12
dansskólinn DANSNYJUNG
Skilaboð!
Halló krakkar og adrir! Erum nýkomnar frá London med allt
Iffi það nýjasta (og vid eigum viö það allra nýjasta), t.d. kennum vid lotu úr
W Cats og einnig hinum nýja Dancing, og fullt af frábærum dönsum.
ATH: Nemendur sem voru fgrir jól tilkynni sig sem fyrst vegna mikillar adsóknar.
Klukkan
10-12 Hlökkum til að sjá ykkur.J) j^ær fcvefija
INNRITUNARSÍMAR- 09 ^ 1 ‘ 'Y. s,
46219 - 78108
sjáumst.