Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Page 5
DV. ÞRIÐJDDAGOR íi.JANUAR 1984.
5
Uráramótagreinum stjórnmálamanna:
„Ekki unnt að
semja upp á
gengislækkun”
„Sjálfstæöisflokkurinn getur aö
minnsta kosti ekki beygt sig undir þaö
að aðilar vinnumarkaöarins brjóti
stjórnarstefnuna á bak aftur. Það er
meö öörum orðum ekki unnt aö semja
upp á gengislækkun. . sagöi Þor-
steinn Pálsson, formaður' Sjálfstæðis-
flokksins, í áramótagrein í Morgun-
blaöinu um helgina. „Vegna aflabrests
er einsýnt, aö viö þurfum á næsta ári
aö horfast í augu viö eitthvert atvinnu-
leysi. .. Fyrir þá sök er nú mikilvæg-
ast, aö ríkisstjómin kalli aöila vinnu-
markaöarins til samstarfs í atvinnu-
málanefnd, er fjalli um atvinnuupp-
byggingu, skipulag og stjórnun at-
vinnumála og fjárfestingar.” Þor-
steinn telur, aö haldi aöilar vinnu-
markaöarins vinnufriö á þeim grund-
velli, sem ríkisstjórnin leggur, megi
ræða opinberar tilfærslur í þágu lág-
launafólks.
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra sagöi í áramótagrein í Tím-
anum, að ekki sé gert ráö fyrir hækkun
á veröi opinberrar þjónustu á þessu
ári. Erfiöleikar fari vaxandi í sjávar-
útvegi og þjóðartekjur lækki þriöja
áriö í röö. ,,Af þessari ástæðu hefur
ríkisstjórnin ekki taliö fært aö gera ráö
fyrir svo föstu gengi á næsta ári sem
verið hefur undanfarna mánuði,”
sagöi Steingrímur. En gengi skuli þó
ekki breytast meira en sem nemur 5%
á árinu. Steingrímur ræddi einnig um
stofnun atvinnumálanefndar.
Svavar Gestsson, formaöur
Alþýöubandalagsins, sagöi í áramóta-
grein í Þjóöviljanum, aö ríkisstjómin
hygöist breyta íslensku þjóöfélagi í
grundvallaratriðum. Launafólk geti nú
ekki þolað áfram stórfellda kjara-
skeröingu. Rétt sé aö benda á, án þess
aö í slíku felist nokkur hótun, aö
landinu hafi aldrei verið stjórnaö gegn
verkalýöshreyfingunni. Tilraun núver-
andi ríkisstjórnar til þess muni einnig
mistakast. — Kjartan Jóhannsson,
formaður Alþýöuflokksins, sagði í ára-
mótagrein í Alþýöublaöinu, aö sá
árangur í veröbólgumálum, sem menn
eygðu um þessar mundir, kynni aö
veröa aö engu vegna þess að nú séu
óbærilegar þrautir lagðar á mörg
heimili í landinu. ,,Og þynging skatt-
byrðarinnar þrýstir á um þaö aö hagur
manna sé réttur meö öðrum hætti,”
sagði Kjartan.
-HH.
ATTA FYRIRTÆKI
KOMA TIL GREINA
— sem eignaraðilar að
Kísilmálmverksmiðjunni
Um miðjan þennan mánuö ætti að
veröa ljóst hvort erlendir aöilar hafa
áhuga á að gerast eignaraöilar aö
Kísilmálmverksmiöjunni sem fyrir-
hugaö er aö reisa á Reyöarfiröi.
Samstarfsnefnd sem skipuö er full-
trúum úr stjórn Kísilmálmvinnslunnar
og stóriðjunefnd hefur átt viöræöur viö
8 erlend fyrirtæki sem hugsanlega
gætu haft áhuga á aö gerast eignar-
aöilar aö verksmiðjunni. Hér hefur
eingöngu verið um kynningarviöræöur
að ræöa en fleiri aöilum hefur veriö
kynnt málið bréflega. Þessi 8 fyrir-
tæki, sem helst eru talin koma til
greina, eru bæði framleiðendur og
kaupendur kísilmálms. Um er aö ræöa
fyrirtæki í Japan, Vestur-Þýskalandi,
Bandaríkjunum og Noregi. Búist er viö
aö þau muni svara um miðjan þennan
mánuö hvort þau óski eftir frekari
viöræöum um eignaraöild aö verk-
smiðjunni.
Samkvæmt heimildum DV hefur sá
möguleiki veriö ræddur aö verk-
smiöjan veröi alfarið í eigu nokkurra
erlendra fyrirtækja. Ríkisstjórnin mun
þó eiga eftir að taka afstööu til þess en
þaö veröur gert þegar ljóst er hvaða
fyrirtæki hafa áhuga á eignaraðild og
meö hvaöa skilmálum, enda hefur enn
ekki verið tekin ákvöröun um aö
hefjast handa viö byggingu verk-
smiöjunnar. -OEF.
Listamaðurínn við tvö verka sinna.
Guðmundur Thoroddsen
Phiiippe Moreau, verslunarfulltrúi franska sendiráðsins, afhendir Kára Eliassyni farseðilinn til Frakklands.
Með á myndinni er Guðjón Sigurðsson, deildarstjóri búsáhaldadeildar Sambandsins.
Ungur skíðaþjálfari:
Á NÁMSKEIÐI í
FRÖNSKU ÖLPUNUM
Skiöadeild KR barst fyrir skömmu
boö frá búsáhaldadeild Sambandsins
um aö tilnefna þátttakanda í 4 vikna
náms- og þjálfunarferð til
Frakklands í boöi franska viöskipta-
ráöuneytisins og fyrirtækisins
Trappeur sem framleiöir skíðaskó
með sama nafni. Astæöur fyrir boöi
þessu er stóraukin sala á Trappeur
skíöaskóm.
Skíöadeild KR valdi Kára Elías-
son skiöaþjálfara til fararinnar.
Námskeiðin veröa haldin vítt og
breitt um frönsku Alpana. Auk skíöa-
iökunar veröur þátttakendum boöið
aö skoöa verksmiðjur skíðavöru-
framleiöanda og einnig veröa fluttir
fyrirlestrar um einstaka þætti skíða-
iþróttarinnar.
Stjórn skíöadeildar KR þakkar aö-
standendum þessa námskeiös
rausnarlegt boö sem vafalaust á eftir
aö veröa fólki hvatning til að stunda
skíðaiþróttina. -öþ.
Nú hefiir
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
enn aufuð þjónustu við viðskiptavini sína.
Sparisjóðurinn fiejur opnað
umboðjyrir
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ISLANDS
í útiBúi sínu á Sdtjamamesi
Viðskiptamönnum sparisjóðsins stendur tií
fooða að það se tekið út af reikningum fpeixra
við endurnyjun happdrcettismiðanna.
synir i Nýlistasaf ninu
Guömundur Thoroddsen opnar
málverkasýningu í Nýlistasafninu viö
Vatnsstíg á föstudaginn klukkan 20.
Guömundur stundaöi myndlistarnám í
Myndlistarskóla Reykjavíkur hjá
Hringi Jóhannessyni veturna 1974 og
1975. Síðan hélt hann til Frakklands
þar sem hann var viö myndlistardeild
Parísarháskóla og Beaux-Arts aka-
demíuna 1976 til 1978. Frá haustinu
1981 hefur hann veriö viö Ríkisaka-
demíuna í Amsterdam.
Þetta er önnur einkasýning
Guömundar hér á landi en hann hefur
einnig tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum í Danmörku, Hollandi og hér
heima. Verkin eru flest unnin á síöasta
ári og eru öll til sölu. Sýningin er opin
daglega frá klukkan 16 til 20 og 16 til 22
um helgar til 15. janúar. -óm.,
... Já, fað er iárt að skipta við sparisjóðinn.
SPARISJÓÐUR
REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS
Skólavörðustíg 11 • Reykjavík • Sími 27766
Austurströnd 3 • Seltjarnarnesi • Sími 25966