Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Side 7
DV. ÞRIÐJUDÁGÍIR 3. J ÁNtJA'R Í984. VJ
Neytendur Neytendur Neytendur
Dráttarvextir
og greiöslukort
Upplýsingaseóill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
VinsamleRa sendiö okkur þennan svarseöil. Þannig eruð þcr oröinn virkur þátttak-
andi í upplVsingamiðlun meöal almennings um hvert sé meöaltal heimiliskostnaöar
fjölskvIdu af sömu stærð og yöar. Þar aö auki eigið þér v.on um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Þaö viröist vera einhver misskiln-
ingur á ferðinni um þaö hvernig drátt-
arvextir falla þegar greiöslukorthafar
standa ekki í skilum. Þaö má segja að
reglur þær sem gilda um greiðslukort
séu þær sömu og gilda um víxla, varö-
andi dráttarvexti. I einu dagblaðanna
mátti fyrir skömmu lesa sögu eins
korthafa sem ekki gat greitt á tilskild-
um tíma. Korthafi þessi haföi sam-
band viö greiðslukortafyrirtæki sitt og
baö um greiðslufrest fram aö næstu
mánaðamótum. Þegar að greiðslunum
kom brá honum heldur í brún því þá
var honum gert skylt aö greiöa tvö-
falda dráttarvexti. Þykir honum þetta
nokkuð óréttlátar reglur. En svona eru
þessar reglur þó og verður líklega ekki
breytt.
Sömu reglur gilda í þessum málum
hjá báðum greiöslukortafyrirtækjun-
um sem starfa hér á landi. Munurinn
er einungis sá aö um mismunandi
greiðsludaga er aö ræöa.
Ef viö tökum þær reglur er gilda hjá
Kreditkortum til aö varpa ljósi á
hvernig þessu er variö er seinasti
greiöslufrestur korthafa 5. hvers
mánaöar. Ef greiöslan er ekki innt af
hendi fyrir þann tíma falla dráttar-
Matarsóti drepur bæði lykt og bakteriur sem leynast i kæliskápnum.
Raddir neytenda
Hreinsið kæli-
skápinn með
matarsóta
Fyrir nokkru birtum viö nokkur ráð
varðandi umhiröu kæliskápa. Ráö
þessi voru fengin aö láni úr dönsku
neytendablaði. Þar var m.a. sagt aö
þvo ætti kæliskápa upp úr sápuvatni.
Til okkar hringdi kona ein sem sagöi
aö þaö ætti ekki aö nota sápuvatn þeg-
ar kæliskápurinn væri hreinsaöur, ekki
nema í þeim tilfellum þegar um ein-
hverja fasta bletti væri aö ræöa. Hún
sagðist hafa notað mjög góöa aöferö til
að hreinsa kæliskápa í mörg ár. Aðferð
þessi er fólgin í því aö nota matarsóta
við þvottinn. Um 2 msk. er blandað út í
litla fötu af vatni og skápurinn þveginn
hátt og lágt. Og á eftir þurrkaöur meö
þurrum klúti. Matarsótúin hefur þau
áhrif aö hann drepur allar bakteríur.
Einnig er hægt aö nota matarsótann
til aö eyöa matarlykt í skápnum. Ein
tsk. matarsóti er látin í lítiö glas meö
vatni í. Glasið er látið standa í skápn-
um og skipt um blöndu mánaðarlega.
Meö þessu móti hverfur öll óæskileg
matarlykt sem kann aökoma upp.
Einnig sagöi þessi ráöagóöa kona að
nauðsynlegt væri aö ryksuga mótor-
inn mánaöarlega en ekki árlega eins
og sagt var í greininni.
Ennfremur væri mjög mikilvægt aö
þrífa afísingarskúffuna undir frysti-
hólfinu því aö þar söfnuðust mjög fljótt
bakteríur fyrir. Þess væri þörf aö
minnsta kosti einu sinni í mánuði.
-APH
vextir sem nú eru 3,25%, á alla úttekt-
arupphæð þess tímabils sem korthafi
átti aö greiöa sem er frá 21. til 20. fyrri
mánaöar. Næst falla svo dráttarvextir
þegar næsta úttektartímabil rennur út,
þ.e. 20. sama mánaðar. I dæminu hér
aö ofan heföi því korthafi átt aö fá
greiöslufrest framaö20., meöþví hefði
hann sloppiö viö að greiöa dráttarvexti
tvisvar. Þessar reglur viröast vera í
samræmi viö þær reglur er gilda um
vanskil á víxlagreiöslum. Ef víxill fell-
ur í gjalddaga 1. dag mánaöar gefst
mönnum frestur til aö greiöa hann á
þriöja degi eftir gjalddaga. Eftir þaö
falla dráttarvextir á upphæðina.
Greiðsluhafi fær í raun greiöslufrest
fram aö næstu mánaðamótum án þess
aö upphæðin hækki. En dráttarvextir
falla á ööru sinni 1. næsta mánaðar og
þá er enginn greiöslufrestur eins og í
fyrra skiptiö.
APH
Sími
Fjöldi heimilisfólks----
Kostnaður í desember 1983.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö kr.
Alls kr.
H3
I
I
i
f
i
I
I
MÁLASKÓLI
■26908*
• Danska, sænska, enska, þýska, franska, íta/ska,
spænska og íslenska fyrír útlendinga.
• Innrítun daglega kl. 13—19.
• Kennsla hefst 16. janúar.
• Skírteini afhent 13. janúar (föstudag) kl. 16—19.
• Umboð fyrir málaskóla: EUROCE/MTRES, SA MPERE
o. fl. í helstu borgum Evrópu, svo og í New York.
26908-
HALLDÓRS
05
(5
Það er mjög gagnlegt að færa minnisbók. Sama í hvaða starfi þú
ert. Með því sleppur þú við áhyggjur og ótta, auk margvíslegra
leiðinda og jafnvel hárra aukaútgjalda.
Auk þess eru minnisbækur gagnlegar til uppsláttar síðar meir. í
Pennanum er eitt mesta úrval dagbóka við hæfi allra.
Nýttu vel tímann þinn, notaðu minnisbók.
Hallarmúla 2, Laugavegi 84,
Hafnarstræti 18