Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR3. JANUAR1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Sonurséra
Moon fórst
af stysfórum
Sautján ára gamall sonur séra Sun
Myung Moon, stofnanda Einingar-
kirkju Krists, andaöist í gær í New
York af meiöslum sem hann hlaut í bif-
reiðaárekstri í síöasta mánuði.
Heung Jin Moon og tveir táningar
aörir úr söfnuöinum meiddust þegar
bifreið þeirra lenti á vörubíl, sem
snúist haföi þversum á veginum í fljúg-
andi hálku. Hinir tveir eru sagöir á
batavegi.
Séra Moon býr ásamt eiginkonu
sinni og tólf eftirlifandi bömum í
Irvington í New York en hann rekur
æfingastöð fyrir safnaöarfólk sitt í
Tarrytown, skammt frá.
I nóvember tapaði Moon áfrýjun á 18
ára fangelsisdómi, sem hann hlaut
fyrir aö hafa ekki taliö nema 150.000
dollara tekjur fram til skatts.
Séra Sun Moon: Á honum msddi mikið
á síðasta ári.
IACKSONí
SÝRLANDI
Jesse Jackson, mannréttinda-
frömuöur blökkumanna í Bandaríkjun-
um og framboösefni demókrata, er
staddur í heimsókn í Sýrlandi og segist
vongóður um aö fá þar leystan úr haldi
bandaríska flugmanninn sem skotinn
var niður yfir Líbanon í síðasta mán-
uði.
Fanginn virðist þó ekki alveg laus
úr vörslu Sýrlendinga því að Jackson
hefur tvívegis frestaö brottför sinni frá
Sýrlandi til þess aö ganga fast eftir
lausn flugmannsins.
Blökkumannapresturinn segist hafa
átt „hlýlegan og nytsaman fund” meö
Hafez Al-Assad Sýrlandsforseta. Segir
hann Sýrlandsforseta vera vel meðvit-
aðan um þá vakningu sem sé í Banda-
rikjunum fyrir brottkvaöningu friö-
argæslusveitanna frá Líbanon.
Grunnt hefur veriö á því góöa milli
stjórna Bandaríkjanna og Sýrlands en
Reaganstjórnin telur Al-Assad forseta
hafa flestu spillt í friöarumleitunum í
Austurlöndum nær.
Jackson hefur verið gagnrýninn á
stefnu Reaganstjórnarinnar í Austur-
löndum nær.
BLOÐUGAR ERJURITUNIS
Verðhækkanir á brauði leiða til götuóeirða og verkfalla
Um fimmtán manns munu hafa fall-
iö og yfir sextíu særst í óeirðum sem
staðiö hafa síðustu fimm daga í suður-
og vesturhluta Túnis þar sem kjör
manna eru sögö vera hvað bágust.
Fréttir af þessu mannfalili hafa
ekki veriö staöfestar af opinberum
aöilum en fréttastofur bera heimildir
innan verkalýðshreyfingar Túnis fyrir
tíöindunum.
Oeiröirnar brutust út í bæjunum
Gafsa og Gabes eftir 110% veröhækk-
anir á brauöi sem háö er verðlags-
ákvæöum þess opinbera. Brauð er al-
gengasti undirstöðumatur hjá þorra
þjóðarinnar.
Öryggissveitum var teflt fram í
uppþotunum og er sagt aö lögregla og
þjóövaröliö hafi gripiö til skotvopna í
Gafsa sem er nærri landamærum
Alsír. Sagt er að átta hafi látið lifið og
f jörutíu særst þar.
I strandbænum Gabes var herinn
sendur á völlinn til þess aö koma á ró
en sagt er aö þar hafi fjórir fallið í róst-
um á laugardaginn. I Kassarine
(norður af Gafsa) féllu þrír á sunnu-
daginn.
Allt mun hafa verið meö kyrrum
kjörum í þessum þrem bæjum í gær-
kvöldi en brynvagnar og hermenn
héldu þar uppi eftirliti.
Frést hefur af vinnustöövunum í
Túnis, Sfax og öörum borgum lands-
ins.
Stjórnarandstööuflokkurinn
fordæmt valdbeitinguna.
hefur
mmgm
Jesse Jackson, eitt af framboösefnum demókrata, fór til Sýrlands í iítilli þökk
Reaganstjórnarinnar.
Byltingarstjóm-
in mynduð í dag
í Nígeríu
Búist er viö því aö herforingjamir,
sem byltu stjóm Shehu Shagari forseta
Nígeríu á gamlársdag, myndi í dag
nýja ríkisstjórn.
16 manna herforingjaráö var
myndað á sunnudaginn og kemur þaö
saman til síns fyrsta fundar í dag til aö
skipa nýja ráðherra og herstjóra í
öllum 19 fylkjum Nígeríu. — I forsæti
ráösins er Mohammed Buhari hers-
höfðingi sem var höfuðpaurinn í valda-
ráninu.
Buhari átti í gær fund meö
ráðuneytisstjórunum og mun hafa sagt
þeim aö herráöiö væri tilbúiö til aö
hlusta á ráöleggingar þeirra en
áminnti þá um að ráöið mundi jafn-
framt láta sérhvern sæta ábyrgö af
sinni embættisfærslu og hvergi þola
mútuþægni' eöa misferli í meöferö
opinberra f jármuna.
Fjölmiðlar Nígeríu hafa flestir tekiö
byltingunni vinsamlega en annars
staöar í Afríku hefur hún mælst illa
fyrir. I höfuðborginni Lagos hefur allt
veriö meö kyrrum kjörum en fréttir
þaðan sem annars staöar í landinu eru
dræmar því aö skoriö hefur verið á nær
allt fjarskiptasamband innanlands
sem við útlönd.
Verslanir og skrifstofur í Lagos voru
opnaöar í gær, fyrsta starfsdag nýja
ársins. Var orö á því haft aö
höfuöborgarbúar, sem fundu hermenn
við götutálma á nær öllum strætum,
hafi lynt vel viö þá.
Ekkert hefur frést af því hvaö um
Shagarihafiorðið.
Biskupabréf vekur umtal
Miklar umræöur hafa vaknaö í Bandaríkjunum út af umdeildu bréfi
kaþólskra biskupa sem dreift er til 2,5 milljóna kaþólikka í landinu, en þar í er
birt áskorun um aö hætt veröi þróun, framleiðslu og tilraunum meö kjam-
orkuvopn. — I Bandaríkjunum eru um 50 milljónir kaþólikka. — Bréfiö er í
samræmi viö ályktun biskupastefnu í maí síðasta vor og hvetja biskupar til
opinnar umræðu, fundahalda, fyrirlestra og umfjöllunar í skólum um vá
kjamorkuvopnakapphlaupsins.
Franskir fallhlífarhermenn á varðgöngu i Beirút.
FRAKKAR FÆKKA
í FRIÐARGÆSLU
Frákklandsstjórn hefur boöaö aö
hún muni kalla um fjórðung franska
friðarga'sluliðsins burt frá Líbanon
þar sem hún hefur um 2.000 dáta staö-
setta,iBeirút.
Samtímis hefur aukist rnjög þrýst-
Útlönd
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og
Herdís Þorgeirsdóttir
ingur á stjórnir Bandaríkjanna, Bret-
lands og Italíu aö kalla burt friöar-
gæsluliö þeirra sömuleiöis.
Frá því i október hafa árásir aukist
mjög sem gerðar hafa veriö á friðar-
gæslusveitir þessara fjögurra landa.
Italía hefur þegar hafið undirbúning aö
brottflutningi hluta sins liös og fast er
lagt aö Reaganstjórninni að gera slíkt
hiösama.
Alagiö á Frakklandsstjórn hefur
aukist með þvi að hryðjuverkin úr
Austurlöndum nær hafa veriö færð yfir
á heimavettvang Frakka meö
sprengjutilræðum í járnbrautarstöö í
S-Frakklandi á gamlárskvöld. Sannaö
þykir aö sömu aðilar hafi staöiö aö
þeim og voru aö baki sprengingunni
sem kostaði 82 franska dáta lífiö í
Beirút 23. október.