Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Blaðsíða 9
DV.ÞRltí jÚDAGUR 3. J'ANUAR1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Arafat valtur i
leiðtogasessi
Yasser Arafat var harðlega gagn-
rýndur af ellefu manna miðstjórn A1
Fatah-skæruliðasamtaka hans fyrir að
ákveða upp á sitt eindæmi aö eiga
fundi með Hosni Mubarak Egypta-
landsforseta á flótta sínum sjóðleiðina
frá Trípolí.
Miöstjórnin hefur undanfama daga
verið á fundum í Túnis en þangað kom
Arafat frá Norður-Jemen þar sem
hann hefur fengið hæli fyrir sig og um
rúmlega 3 þúsund skæruliða sína.
Umræöur á fundunum eru sagöar
hafa snúist um framtíð samtaka Pal-
BÍLAUMFERD TAK-
MÖRKUÐ í AÞENU
VEGNA MENGUNAR
Ohollt mengunarský, sem grúft
hefur yfir Aþenu, hefur knúiö stjórn-
völd til þess aö láta draga úr iön-
rekstri í höfuðborg Grikklands,
minnka hitun opinberra bygginga og
banna sumar bifreiðategundir frá
borginni.
Mengunarmóða þessi stafar af
iðnaðarúrgangi og útblæstri bifreiöa
og er orðin svo fastur þáttur í lands-
laginu og útsýninu að naumast sést
nokkurn tíma til himins í ^þenu eöa
hafnarborg hennar, Piraeus.
Það þykir sannað að nokkur
hundruð manns hafi veikst af meng-
uninni.
Um þrjár milljónir manna búa í
Aþenu (eða þriðjungur þjóðarinnar)
og um helmingur alls iðnaðar lands-
ins er þar niðursettur. Hefur mönn-
um lengi verið ljós vandinn af meng-
uninni frá verksmiöjum og bílum því
að fornminjar þessa fæðingarstaöar
evrópskar menningar eru famar að
láta stórlega á sjá maf völdum
mengunarinnar.
Skipulags- og umhverfisráöuneyt-
ið hefur gert verksmiðjum og iðju-
verum aö minnka reksturinn um
30%. Draga á úr húshitun og í dag
gengur í gildi akstursbann á helming
ökutækja í Aþenu. 1 tvo daga mega
bílar, sem hafa skrásetningamúmer
er endar á jafnri tölu ekki vera á
ferli, en síðan tekur viö tveggja daga
bann á hina, sem eru með oddatölu.
Og svo koll af kolli.
Heiður himinn sést ekki lengur í Aþenu vegna loftmengunar og mjög sér á
fornminjum af sömu orsökum.
estínuaraba og hafa miðstjórnarmenn
lítið viljað út á þær gefa annað en að
þær hafi verið erfiðar. En kvisast hef-
ur að Araf at hafi mjög veriö gagnrýnd-
ur í leiðtogahlutverkinu.
Þær raddir heyrast sem halda því
fram að Arafat hljóti að falla úr leiö-
togasætinu.
Oánægjan með Arafat, óráöþægni
hans og sólóleik í ýmsum ákvörðunum,
val hans á mönnum í foringjastöður
meðal skæruliöa í stríðinu í Líbanon og
margt fleira, hefur valdið klofningi
meöal skæmliða PLO sem lauk með
bræðravígum og innbyrðis vopnaviö-
skiptum skæmliða. Sýrlandsstuddir
skæmliöar PLO hröktu loks Arafat og
stuðningsmenn hans frá Líbanon.
Staða Arafats innan samtakanna
mun naumast skýrast fyrr en á fundi
fjórtán manna framkvæmdaráðs PLO
sem ráðgerður er innan tíðar sömuleið-
isíTúnis.
Það þótti söguleg stund, þegar Arafat
leiðtogi PLO átti fund með Mubarak
Egyptalandsforseta en Palestínu-
arabar hafa engin samskipti haft við
Egypta síðan Sadat hóf f riðarsamning-
ana við ísrael. — Þykir Arafat hafa
teygt umboð sitt langt að hitta
Mubarak án samráðs fyrst við með-
stjórnendur innan PLO.
Byltingar ekki eins
algengar og ætlað er
Mikil m i
Leningrad
Verstu flóð sem komiö hafa í mörg ár
hafa valdiö spjöllum á stóru svæði við
Leníngrad, næststærstu borg
Sovétríkjanna. Um 35 ferkílómetrar af
borgúini fóru undir vatn þegar áin
Neva óx svo að vatnsmagni að yfir-
boröið fór 2,25 m upp fyrir venjuleg
flóðamörk.
Tass-fréttastofan segir að engin slys
hafi orðið á fólki en lögregla, slökkvilið
og björgunarsveitir hafa þó orðiö að
koma mörgum til aðstoðar.
í Leníngrad hefur flætt 265 sinnum á
þeim 280 árum síðan hún var stofnuð
sem Pétursborg af Pétri mikla
keisara.
Sovéska sjónvarpið segir að vatnið í
Neva sé í rénum en það hefur sýnt
myndir af strætum borgarinnar á kafi.
Nú er í byggingu 25 km langur
flóðgaröur meðfram Nevu til að draga
úr flóöahættu í Leníngrad þar sem búa
um fimm milljónir manna.
Mikið hvassviðri hefur gengið yfir
Eistland. Tré hafa slitnað upp með
Það er rangt sem margir hafa haldiö
fram að breytt ríkisvald sé oftar
afleiðing byltingar en aö ný yfirvöld
veröi til með hefðbundnum eða lögleg-
um hætti eða í gegnum kosningar.
Þetta .kemur fram í skýrslu byggöri á
rannsókn frá Yale háskólanum sem
gerð var á árabilinu 1948 til 1977 og þar
birtist sú „ótrúlega” niðurstaða að í
238 tiifellum af 1883 hefur nýtt fram-
kvæmdavald verið afurð byltingar eöa
ofbeldis í 136 löndum sem rannsökuð
voru. Val á forseta, forsætisráðherra
og öðrum þjóðarleiðtogum var sem sé í
1645 tilvikum eftir lagalegum,
stjórnarskrárlegum ellegar
hefðbundnum leiðum.
Þaö kom ennfremur í ljós við þessa
rannsókn aö í 69 löndum sem athugun
var gerð á hafði engin bylting átt sér
stað í þrjá áratugi. En til að koma í veg
fyrir misskilning ber ekki aö túlka
niðurstöður þessar á þeim grundvelli
aö friðsamleg skipti á framkvæmda-
valdinu séu alltaf eftir lýðræöislegum
leiðum — því langflest ríki heims eru
ekki grundvölluö á lýöræðislegum
rótum og húsþök fokiö en í höfninni í hugmyndum, eins og þær eru túlkaðar
Tallinn hefur skipum hvolft. i vestrænum ríkjum.
Það kann að hljóma mjög ankanna-
lega en aðeins í 36 löndum sem Yale-
rannsóknin tók til er um opið pólitískt
kerfi að ræða. Opið stjórnkerfi er það
kerfi, þar sem meirihluti þegnanna
hefur tækifæri til aö k jósa.
Kókaín fyrir
353 milljónir
Spænska lögreglan hefur hand-
tekið sex manns í samstarfi við
frönsku lögregluna eftir að fannst
kókaínsmyglfarmur í farangurs-
geymslu járnbrautarstöðvar í
Bayonne í S-Frakklandi.
24,5 kg voru þar í tösku sem
skilin haföi verið eftir, en spænska
lögreglan fann 7,5 kg til viöbótar í
Madrid.
Einn Spánverji, þrír Kólombíu-
menn, ein kona frá Venezúela og
ein frá Ástralíu voru handtekin og
fannst lykill að töskugeymslu-
hólfinu í Ba.vonne á einum
Kólómbíumanninum sem talinn er
foringi hópsins.
Það er ætlað að kókainið hafi átt
aö fara á markað á Spáni. Svarta-
markaðsverð þessara 32 kg af
kókaíni er talið nema tveim millj-
öröum peseta (eða 353 milljónum
ísl. kr.).
HRESSINGARLEIKFIMI
KVENNA OG KARLA
VETRARNÁMSKEIÐ HEFJAST 9. JANÚAR NK.
Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskólans og íþróttahús Sel
tjarnarness.
GET BÆTT VIÐ ÖRFÁUM KONUM í BYRJENDAFLOKK.
Fjölbreyttar æfingar - músík - slökun.
Uppl. i sima 33290 kl. 9-14 daglega.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir
íþróttakennari.
SAMHJÁLP KVENNA
6 vikna námskeið hefst 9. janúar nk.
Ef næg þátttaka fæst mun Ástbjörg S.
Gunnarsdóttir íþróttakennari gefa kost á
hressingarleikfimi fyrir konur er gengist
hafa undir brjóstaaðgerð.
Kennslustaður:
iþróttahús Seltjarnarness.
Innritun og nánari uppl. i
síma 33290 kl. 9-14daglega.