Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Síða 31
DV'. í>RIÐ JUÐAGUR-3 r JAMUAR-1984-. • ■
31
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Aldrei aftur
verkföll?
Það hefur verið útbreidd
skoðun að með taumlausum
afborgunarkaupum almenn-
ings á alls konar varningi og
lystisemdum hafi fótunum í
raun verið kippt undan verk-
föilum í landinu. Fólk hafi
það almennt fest sig í skulda-
fargani fram í tímann að það
brcsti áhuga og kjark til þess
að hætta að selja vinnu sína
fyrir ótryggan ávinning í
verkföilum.
Nú segja ýmsir að hafi
þetta átt stoð í veruleikanum
sé það nú pottþétt eftir að
kreditkortaæðið greip um sig.
Svigrúm til verkfalla sé orðið
nákvæmlega ekki ncitt.
Sumir segja meira að segja
að það geti orðið aðalverkefni
verkalýðsfélaga áður cn
varir að bjarga almennhigi'
frá því að lenda í skuldafang-
elsi vegna botnlausrar fyrir-
frameyðslu á tekjum sínum.
Askur á
Laugavegi seldur
Nokkrar breytingar standa
nú fyrir dyrum á veitinga-
húsinu Aski á Laugavegi.
Batteri Péturs Sveinbjarnar-
sonar hcfur fyrir nokkru selt
staðinn. Kaupandi er Hjá
kokknum hf. en fyrir því
félagi standa ung hjón, Arn-
grúnur Friðgcirsson frá
Raufarhöfn og Sigurlaug
Sveinsdóttir. Þcgar breytt
hefur verið hverfur Asks-
nafnið og staðurinn verður
þá nefndur eftir hlutafélagí
eigendanna, semsé Hjá
kokknum.
Fleú-a af batteríi Péturs
og félaga hans hefur verið til
sölu, ísbúð, samlokugerð og
vcitingabílar, að því er
fregnir herma. Jafnframt
hefur Veitiugamaðurinn hf.
verið að færast í aukana
með stórmatarsölu til mötu-
neyta, klúbba og i vcislur.
Grænmetið
frjálst!
Ákveðið hefur vcrið að
halda fund á Hótel Esju 21.
janúar um grænmetisverslun
í landinu. Vcrslunarráðið,
Neytendasamtökin, Mann-
eldisfélagið og Húsmæðra-
félag Reykjavíkur hafa
krunkað saman um þessi mál
undanfarið og standa að
þessum fundi.
Ætlunin mun vera sú að
móta sameiginlegar tillögur
um umbætur í grænmetis-
verslun og að kjarni þeirra
verði sá að innflutningur á
grænmeti eigi að vera frjáls
þegar innlend framleiðsla
svarar ekki til eftirspurnar.
Suðurnesjamcnn eru blóð-
ríkari en aðrir menn hér um
slóðir, ef marka má síendur-
tckúi met þeirra í blóðgjöf til
Blóðbaukans. Síðasta blóð-
gjöf þeirra, scm raunar var
jólagjöf, svaraði til rúmlega
vikunota Blóðbankans. 187
gáfu blóð á einum og sama
dcgmum og var það auðvitað
nýtt íslandsmet. Það gamla
áttu þeir sjálfir, 179 blóð-
gjafar á eúium degi.
Metaregnið er raunar þræl-
skípulagt. Yfirskipuleggjari
er Árni V. Arnason í Keflavik.
Starfsfólk Blóðbankans klíp-
ur út blóðsýni og tappar af,
Björgunarsvcitin Stakkur
smalar blóðgjöfunum, Kefla-
vikurdeild Rauða krossins
hellir upp á könnuna og
bakar. Loks leggur Skáta-
félagið Hciðabúar til hús-
næði.
Suðumesjamenn, og þá
væntanleqa pinkum Kefí-
vikingar. aig.i I tlandsmet i
blóðgjöf — tappað af 187
blóðgjöfum á einum og
sama deginum.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Martin Grey (Jacques Pennot) drepur her þýskan hermann i hefndarskyni.
Regnboginn—Ég lifi:
ÖRLÖG GYÐINGA í
GETTÓINU í VARSJÁ
Heiti: Eg lifi (For Those I Loved).
Leikstjóri: Robert Enrico.
Handrit: Robert Enrico og Tony Sheer.
Kvikmyndun: Francois Catonne.
Tónlist: Maurice Jarre.
Aðalleikendur: Michael Yori, Jaques Penot,
Brigitte Fossey og Jean Bouise.
Endurminnmgar Martins Grey eru
mikil örlagasaga og lýsir hún lífinu í
gettómu í Varsjá í Póllandi í síðari
heimsstyrjöldinni og þeún hörmung-
um sem dundu yfir hann þegar hann
að stríðúiu loknu var loks búinn aö ná
fótfestu í lífinu. Eftir lestur bók-
arinnar finnst manni ótrúlegt hvaö
lagt hefur verið á einn mann og að
hann skyldi komast heill frá öllu
saman.
S Þessi dramatíska saga er eins og
sköpuö til kvikmyndagerðar og er ég
mest hissa á að hún skuli ekki hafa
veriö kvikmynduð fyrr. En nú hafa
Frakkar og Kanadamenn í sameúi-
ingu kvikmyndað Eg lifi og kemur
hún glæný til okkar.
Þegar myndin hefst er Martúi
Grey 14 ára og gettóiö er að veröa aö
raunveruleika. Lífiö þar er martröð
og Martin kemst fljótt upp á lag með
að smygla matvörum úin í gettóið
með h jálp utanaökomandi manna.
En Þjóðverjum nægir ekki að
smala gyöingum saman í einn borg-
arhluta. Utrýmúigarbúðum er komið
fyrir og hver lestúi af annarri fer
með gyðinga til Treblinka til
slátrunar. Martin, móðú hans og
tveir bræður eru send til búðanna og
þar horfir Martúi upp á það að þeún
er slátrað í gasklefunum. En lífs-
viljúin er mikill og honum tekst að
sleppa úr fangabúðunum og komast
aftur til Varsjár þar sem gyðingar
eiga í blóðugum átökum viö
Þjóðverja. Þar hittir hann fööur sinn
og berjast þeir þar hliö við hlið gegn
nasistum, vonlausri baráttu sem
endar með því að flestir gyðúigamir
eru drepnir og er faðir Martins þar á
meðal.
Martin nær að flýja einu sinni enn
og gengur til liös við Rauöa herinn og
er meö í sigurgöngu hersrns til
Berhnar og endalokum nasismans.
En hann er ekki ánægöur með veru
súia í Rauöa hernum og strýkur
þaöan og heldur til Bandaríkjanna.
1 New York hittú hann ömmu sína
og býr upp frá því þar og gengur vel.
Hann giftist þar og eignast meö
eiginkonu sinni, Dúiu, f jögur böm og
hamingjan virðist brosa við honum
en forlögin ætla honum annaö. Kona
hans og börnúi fjögur farast í
skógarbruna í Frakklandi.
Þetta er eins og áöur sagði mikil
örlaga- og harmsaga og virðist mér í
fljótu bragöi myndúi fara í einu og
öllu eftú bókmni, að vísu eru nokkur
ár síðan ég las bókina. Þaö er helst
að hlaupið er nokkuð fljótt yfú sögu
hvernig Grey tókst að koma fótunum
undir sig í viðskiptalífinu, en það
skiptir kannski minnstu máli.
Myndúi er löng, rúmlega tveir og
hálfur klukkutími, enda frá miklu að
segja og hefur nokkuð vel tekis( að
koma efnúiu til skila þótt hrylhngur-
inn nái ekki þeún tökum á manni
sem hann gerir í nákvæmri lýsingu í
bókinni.
Það er helst í atriðunum sem
gerast eiga í Treblinka, þeim frægu
útrýmingarbúðum, sem hryllingur-
inn kemst vel til skila. Þau atriði eru
virkilega vel gerð og ótrúlegri
grimmd Þjóðverja vel lýst. Lifinu í
gettóinu er eúinig gerö ágæt skil þótt
nokkuð finnist mér vanta á að
fátæktinni og hungrinu, sem gyðing-
arnir urðu að þola þar, sé komið
sannfærandi til skila. Hryllingnum
með eiginkonu Martrns og bömunum
fjórum er gerð góð skil í stuttu og
áhrifamiklu atriöi.
Leikarar eru yfirleitt sannfærandi.
Miehael York er í tveimur hlut-
verkum, sem Martin Grey 40 ára og
eldri og faöir Martins í gettóinu.
Þrátt fyrir að hann sé ágætur leikari
fmnst mér hann ekki passa í þessi
hlutverk. Það reynir aftur á móti
mest á ungan leikara, Jacques
Penot, en hann leikur Martúi Grey
ungan og kemst hann vel frá sínum
hlut, sýnú okkur ungan dreng sem
neitar að gefast upp þótt aðstæður
séu yfirleitt vonlausar.
Það eru margir Islendingar er
hafa lesið Eg lifi og þrátt fyrir að
bókúi verði að teljast áhrifameiri
ætti myndin ekki aö valda neúium
vonbrigðum.
Hilmar Karlsson.
IMauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Bröttukinn 33, 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Steinunnar
Olafsdóttur, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs, Veðdeildar
Landsbanka íslands og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á eigninni
sjálfri f östudagiun 6. janúar 1984 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Strandj/.öui <7, 3. hæð, Hafnarfirði, þingl.
eign Helga Sigurðssonar, fer fram a eigninni sjálfri föstudaginn 6.
janúar 1984 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eignmni Hverfisgö u 24, Hafnarfirði, þingl. eign
Einöru Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 6.
janúar 1984 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn í Hafnarf irði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Ne.bala :4, Scltjarnarnesi, þingl. eign
Þórunnar Steinarsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 6.
janúar 1984 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 123. og 127. 1982 og 4. tölublaði Lögbútmgablaösms
1983 á eigninni Arnartanga:;5, Mosfellshreppi, þingl. eign Gísla Árna-
sonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands, Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágr., og Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni sjálfri föstu-
daginn 6. janúar 1984 kl. 16.15.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Esjugrund 27, Kjalarneshreppi, þingl. eign
Birgis Arnars Harðarsonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 6.
janúar 1984, kl. 16.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
• „ M— — „ r Urval l : é
Fæst á næsta blaðsölustað