Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Qupperneq 32
32
DV„ ÞRIÐJUDAGUR3. JANUAR-1984.
Sviðsljósið
Svíðsljósið
Sviðsljósið
f(ir 32 Cassetten,
Farbe: Topas
Lr-ðldllUHI'
zum problemlosen Auf-
bewahren von Langsplel-
platten, Farbe: Topas ..
3.99
cassenen-canisseii
3.99
Angebotaus unserem Blumen-Shop:
5 Appeldoorn-Tulpen
und 3 Narzissen
4.49
Weihnachtsstern 4.99
30n
Bac
Frtí
Rltl
100
Alul
x 3I
lch f/nde p/aza prima, we/l ich /m p/aza-Fischfachgeschaft
stándig frische Ráucherware aus plazaeigener Herstellung
und viele andere Fischspezialitáten erhalte.
weltweit erfahrener Uchtmacher
PHILIPS
Elerkocher-Automat
EK 51
•>SHG“, 1-7 Eier, Antl-
haftbeschichtung,
Elpick, MeBbecher ...
19.95
THW-Trainer
J. I. Gunnarsson.
Handknattleiksþjálfarinn Jóhannes Ingi Gunnarsson gerir það gott i Þýska- boltaleikjum heldur er hann einnig tíður gestur á síðum þýskra dagblaða í
landí eins og kunnugt er. Hann lætur sór ekki nægja að þjálfa Þjóðverja í alls kyns auglýsingum eins oghér má sjá...
Hún er gáf-
aðri en marg
ur heldur
Penelope Keith er alltaf jaf nvinsæl
ogskemmtileg
Margir íslendingar hafa líklega
fellt gleði- og saknaöartár, þegar
aðalpersónurnar í Ættaróðalinu,
skötuhjúin Audrey fforbes-
Hamilton og Richard de Vere gengu
í heilagt hjónaband. Gleðitár vegna
þess að þau létu loksins veröa af því
aö uppfylla æðsta draum hverrar
manneskju. Saknaðartár vegna þess
aö með hjónabandinu geröu þau út af
viðþættina.
En við getum huggað okkur við aö
Penelope Keith, sú sem lék Audrey,
er farin aö leika í nýjum þáttum og
alls ekki ólíklegt aö við fáum að sjá
þá hér.
Annars er þaö helst að frétta af
Penelope, eða Penny, eins og vinir
tyennar kalla hana að hún er hress
enda hamingjusamlega gift leynilög-
reglumanni sem er nokkrum árum
yngri en hún. Enginn veit þó hve
gömul hún er. Hitt vita þó allir sem
til þekkja aö Penny er jafnskemmti-
leg hvunndags og hún er fyrir fram-
an myndavélarnar. Hitt vita færri aö
hún er miklum mun gáfaöri.
Skemmtileg kona, Penny Keith.
m-------------------------►
Penelope Keith alias Audrey
fforbes-Hamilton er gift
leynilöggu og hefurþað bærilegt.
IDi | r'U. mf
ÉfÍMí
Þeir eru kampakátir þessir krakkar enda ekki skrýtið. Þeir unnu allir
konfektkassa og úr í verðlaunasamkeppni sem verslunin Víðir iAustur-
stræti gekkst fyrir og staðið hefur frá því nokkru fyrir jól. Þrautin var i
þvi fólgin að slá tölu ó konfekt-súkkulaði, rís- og karamellupakka sem
hrúgað hafði verið í glugga verslunarinnar. Hrúgan samanstóð af né-
kvæmlega 448 einingum og þó um niu þúsund manns hefðu reynt við
þrautina tókst aðeins þremur að hitta á réttu töluna. Fjölmargir fóru þó
nærri um fjöldann og voru þvi 37 aðrir einnig verðlaunaðir með konfekti
og úri. Flestir giskuðu á töluna 450.
Magnús Torfi byrjaði að
hlýða á jass i sveitinni
innan við fermingu.
Magnús
Torfi og
jassinn
„Eg hef hlustaö á jass frá fermingu
og áhuginn aukist með árunum,” segir
Magnús Torfi Olafsson, fyrrum ráö-
herra og núverandi blaöafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar. Magnús er einn af stofn-
endum og stjórnarmaður í Jassklúbbi
Reykjavíkur sem ætlar að hefja starf-
semi sína í þessum mánuði. Verður
stefnt aö því að halda jammsessjónir
minnst einu sinni í mánuöi en aðal-
markmið klúbbsins er þó aö útbreiða
skilning á menningargildi jasstónlist-
ar.
„Það barst aö vísu ekki mikiö af
jassplötum í sveitina þar sem ég bjó í
æsku en maður haföi útvarpiö. Þar var
leikinn jass þó svo að Jón Múli hafi
ekki verið kominn til sögunnar í þeim
skilningi,” sagöi Magnús. „Eftir að ég
flutti í kaupstað uröu heimatökin hæg-
ari, ég kynntist eldheitum jassáhuga-
mönnum sem náðu í flestallar jassplöt-
ursembárust frá Bandaríkjunum og
svo var hlustað.”
Aö mati Magnúsar Torfa var gullöld
jassins á árunum frá 1920—1950 enda
eru Duke EUington og Louis Arm-
strong í mUdu uppáhaldi hjá honum.
Af yngri mönnum hlustar han» helst á
þá CharUe Parker og Lester Young svo
einhverjir séu nefndir. Þá má geta
þess að jassáhuginn í fjölskyldu
Magnúsar Torfa virðist ganga í ættir
því sonur hans, Ingimundur, er stjórn-
armaður í Jassvakningu.
Stjóm Jassklúbbs Reykjavíkur
skipa Hrafn Pálsson, Þórhaúlur Hall-
dórsson, Guðbjörg R. Jónsdóttir,
Ágúst Elíasson og Magnús Torfi
Olafssoneinsogáðursagði. -EIR.