Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1984, Síða 36
LOKI
Hann mætti kannski
keyra happdrættisbílinn i
staðinn.
Náttfari 776
seldur
Stofnað hefur verið sameignarfélag
um stóðhestinn Náttfara 776 frá Ytra-
Dalsgerði. Það eru nokkrir áhuga-
menn á Suöurlandi um Náttfara sem
gerðu kaup við Sigurbjörn Eiríksson
sem mun eiga áfram einn fimmta hlut í
hestinum. Hina fjóra hlutina eiga
Gunnar M. Friðþjófsson, Selfossi,
Símon Grétarsson, Selfossi, Jón
Sigurðsson, Skollagróf Hrunamanna-
hreppi, og þau hjónin Freyja Hilmars-
dóttir og Albert Jónsson.
Ekki hefur verið ákveðið /hvar
hesturinn muni veröa notaður, utan
næsta sumar, en þá verður Náttfari
notaður í Hrunamannahreppi fyrri
hluta sumars, en Hrossaræktarsam-
band Suðurlands hefur tekið hann á
leigu síöari hluta sumars.
Heyrst hefur að kaupverðið sé hátt,
allt að fimm hundruð þúsund krónur.
Sigurbjöm Eiríksson hefur nú seit þá
feöga Náttfara 776 og Sörla 653 meö
skömmu millibili en Sörli var seldur
Hrossaræktarfélagi Skagfirðinga í
vetur. E.J.
Arnarflug
innanlandsflug:
Öllu starfs-
fólki sagt upp
Arnarflug sagði upp öllu starfsfólki,
sem starfar við innanlandsflug, um
áramótin. Starfsmennirnir, sem um
ræðir, eru ellefu talsins.
í frétt frá Amarflugi segir að þrátt
fyrir nokkurn bata í rekstri félagsins á
árinu 1983 sé sýnt að grípa verði til
víðtækra ráðstafana sem leiði til skipu-
lagsbreytinga til aö tryggja áframhald
innanlandsflug Arnarflugs. Ætlunin sé
að þessi endurskoðun fari fram í sam-
ráði við fulltrúa starfsfólks. Því telji
félagið óhjákvæmilegt að vera óbundið
af ráðningarsamningum starfsfólks
þegar niðurstöður liggi fyrir. -JSS
Slæmtveður
áNorðurlandi
Versta veður var um allt norðanvert
landiö í morgun og vegir ófærir. Vega-
geröin ráðgerir ekki mokstur fyrr en
lægir en samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar á veður að ganga nið-
ur þegar líöur á daginn. I kvöld verður
éljagangur á Noröurlandi en síðan á
hann aðsnúast í suðaustanátt.
I morgun áttu Akurcvringar í
nokkrum erfiðleikum með að komast
til vinnu vegna ófærðar, sérstaklega
efst i bænum og í Glerárþorpi. Snjó-
ruðningstæki sáu þó um að halda aðal-
leiðum opnum. JBH/Akureyri
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANUAR.
Skákmótið í Groningen:
Björgvin
miðdrymbis
Næstsíðasta umferö Evrópumeist-
aramóts unglinga í skák var tefld í
gærkvöldi og að henni lokinni er Salov
frá Sovétríkjunum efstur meö 9,5 v. af
12, en Agdestein frá Noregi er 2. með
9,0 v. Biðskákir rugla stöðu næstu
manna. Okkar maöurá mótinu, Björg-
vin Jónsson, er rétt fyrir ofan miðju
með 6 v. Hann lagði Smith frá Wales
mjög örugglega í gærkvöldi. Síðasta
umferð mótsins veröur tefld í kvöld og
teflir þá Björgvin væntanlega við Lutz
frá V -Þýskalandi.
LUKKUDAGAR k
1. janúar33555
Datsun Micra
2. /anúar24015
Hljómplata
3. janúar33504
Tafl
Vinningshafar hringi í síma 20068
KLETTA
kjúklingur
í KVÖLDMATINN
HEILDSÖLUSÍMI21194
Dorriét
Kavannah látin
Dorriét Kavannah sópransöngkona
lést í sjúkrahúsi í Bonn á gamlársdag
eftir alllangt og erfitt sjúkdómsstríð.
Hún var hálffertug aðaldri.
Dorriét Kavannah var fædd í Barce-
lona á Spáni. Þar ólst hún upp en flutt-
ist síðan með móður sinni til
Bandaríkjanna og síðar til Italíu. Hún
stundaði leiklistarnám framan af en
Iagði síöan stund á söngnám. Hafði hún
náö miklum vinsældum sem sópran-
söngkona er hún lést.
Hún kom fyrst hingað til lands 1980,
ásamt eiginmanni sínum, Kristjáni
Jóhannssyni óperusöngvara. Söng hún
hér á mörgum tónleikum, hinum síð-
ustu í Austurbæjarbíói fyrir rúmum
mánuöi.
Dorriét Ka vannah verður jarðsungin
á Akureyri.
Okumaður sjúkra-
bflsins kærður
„Málið er það að maðurinn var
kærður fyrir það að vera áhitmun og
við höfum unnið við þetta mál eins og
önnur,” sagöi Pétur Sveinsson, lög-
regluvarðstjóri á Patreksfirði, í
samtali við DV í morgun vegna orð-
róms um þaöaö lögreglan á Patreks-
firði hefði haft afskipti af ökumanni
sjúkrabifreiðarinnará staðnum.
Kæran á hendur ökumanni sjúkra-
bílsins gengur út á það að hann sé
réttindalaus á sjúkrabílinn þar sem
hann hafi ekki meiraprófið svokall-
aða. Er þar stuöst viö 27. grein um-
ferðarlaga vegna aksturs leigubif-
reiða.
Að sögn lögreglustjórans hefur
ökumaður sjúkrabílsins verið kvadd-
ur tvisvar til yfirheyrslu vegna
þessa máls. Þar af var hann í annað
skiptið stoppaður á s júkrabílnum.
Hann var ráðinn á sjúkrabílinn 1.
nóvember í forföllum annars manns
sem veiktist. Það er sjúkrahúsið á
Patreksfirði sem annast rekstur
sjúkrabUsins en Rauði krossinn á
hann.
„Við höfum óskað eftir því við
framkvæmdastjóra sjúkrahússins
að annar verði fenginn til að aka
bilnum á meðan verið er aö
rannsaka málið og það er fyrir dóms-
stólum,” sagði Ulfar Thoroddsen,
formaður sjúkrahússtjórnar á
Patreksfirði, vegna þessa máls i
morgun.
En hvað segir ökumaður sjúkra-
bUsins sem deilan stendur um, Gunn-
arR. Pétursson?
„Eg er enn á bílnum og hlýt að
aka honum á meðan ég hef ekki verið
úrskurðaður af honum. Eg fór fram
á það við sýslumanninn aö hann úr-
skuraði mig af bUnum en hann vUdi
þaðekki.”
— Hvaða próf eru með? „Gamla
prófið, gefiö út 1959 með réttindi á
vörubíi og 16 manna rútu án gjalds.
En ég er ekki með meiraprófið.”
, J2g vil aö þaö komi fram að á ár-
unum ’65 til ’73 var ég héraðslög-
reglumaður og ok þa sjukrabilnum
af og til. Og veit ekki annaö en yfir-
lögregluþjónniun. Pctur Svcinsson,
hafi verið í sjúkraflutningum áöur
enhanntókmeiraprófið.” -jgh
Símahappdrættisbíllinn:
Ekki af hentur fyrr
en sættir hafa tekist
„Svona mál hefur aldrei komiö
upp hjá okkur áður,” sagði Sigurður *
Magnússon, framkvæmdastjóri
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra,
er við spurðum hann um deUuna um
happdrættisvinninginn í símahapp-
drættinu sem sagt var frá í blaðinu í
gær.
Símahappdrættið er á vegum
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
en ekki á vegum Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, og er hver
miði sendur út á nafn og simanúmer
þess sem skráður er fyrir símanum.
Stúlka sem skrifuð er fyrir síma i
Keflavik gerir kröfu til að fá vinning-
ínn sem upp kom á símanúmer henn-
ar, en sú sem nú leigir ibúðina sem
síminn er í og greiddi miðann krefst
einnig vinningsins sem er glæsUeg
bifreið.
„Það liggja fyrir kröfur hjá okkur
frá tveim aðUum um aö fá sama bíl-
inn,” sagði Sigurður. „Við höfum
ekkert gert í málinu og bíðum meö að
fá úr þvi skorið hver rétturinn er.
Þetta er mjög óvenjulegt mál og
svona lagaö hefur aldrei komið upp
hjá okkur áður," sagði hann.
„Eg hef eindregið hvatt þær tU að
sættast í þessu máli en ég veit ekki
hvort það tekst. A meðan svo er
ekki verður bíllinn ekki afhentur. ”
-klp-
27022
AUGLYSINGAR
SÍOUMÚLA 33
SMAAUGLYSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRÉFSTOFUR
ÞVERHOLT111
gjcci 1 ^*^JÓRN
I SÍÐUMÚLA12-14
TALSTÖÐVAR-
BÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 8-50-60.
ÞROSTUR
SÍÐUMÚLA10
DV-mynd GVA.
Happdrættisvinningurinn, bifreið af gerðinni Fiat-Uno, verður ekki afhentur fyrr en lausn hefur fengist á þvi hvort
stúlkan sem borgaði miðann eða sú sem skrifuð er fyrir simanum á að fá hann.