Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JANUAR1984.
3
Stykkishólmur:
Uppseltí
veisluna
Frá Róbert Jörgensen, fréttaritara
DV í Stykkishólmi.
Hótelið í Stykkishólmi hélt mikla
veislu á þrettándanum. Mann-
fagnaðurinn hófst kl. 20 með
boröhaldi en á eftir fylgdu skemmti-
atriöi og dansleikur og lauk þessu
ekki fyrr en um kl. 4 næsta morgun.
Miðar á skemmtunina kostuöu 1100
krónur og var uppselt, enda mun það
vera til siðs að fyrirtæki i bænumn
bjóði starfsfólki sínu.
A þrettándanum var einnig kveikt
í áramótabrennunni og haldin var
tilheyrandi flugeldasýning á vegum
björgunarsveitarinnar.
Moksturstæki hafa verið í gangi
frá jólum við að halda bænum
hreinum og hefur það gengið upp og
ofan.
Kennsla byrjaöi í barnaskólanum
á miðvikudag í síöustu viku en vegna
ófærðar var það ekki fyrr en i gær aö
fyrstu sveitakrakkarnir komust i
skólann.
-GB.
íslenska óperan:
Frumsýningu
frestað
Fnimsýningu á óperu Rossinis,
Rakaranum frá Sevilla, sem fram
átti aö fara á sl. sunnudag, hefur enn
veriö frestað vegna veikinda. Er nú
fyrirhugað að frumsýningin fari
fram 20. janúar næstkomandi, og
verða óperuunnendur að bíða þolin-
móðir þangað til.
-óbg.
Krakkarnir á Selfossi:
„Spældu pólísinn
skverlega”
— á þrettándakvöld
Frá Kristjáni Eúiarssyni, fréttarit-
ara DV á Sclfossi.
Það má segja að unglingarnir hér
á Selfossi hafi snúið á liöið síðastliðið
þrettándakvöld þegar hin árlega há-
tíð UMFS var haldin með álfum,
tröllum og tilheyrandi ljósasýningu.
Unglingarnir tóku þátt í öllu tilstand-
inu án þess að bregða út af ákveðn-
um reglum, öllum til léttis og
ánægju.
Lögreglan hafði gert ráðstafanir
vegna kvöldsins því aö undanfarin
þrettándakvöld hafa oft endað meö
ólátum og umferöaröngþveiti við
Olfusárbrú. Vikingasveit lög-
reglunnar í Reykjavík var mætt á
staðinn. Höfðingjarnir komu með
rútu úr borginni og var fenginn
samastaður í Framsóknarsalnum og
biðu þess sem veröa vildi. En
krakkarnir vildu ekki og hafa án efa
„spælt pólisinn skverlega”.
-GB.
Alþjóðaár æskunnar:
Þátftaka, þróun,
friður
Sameinuöu þjóðirnar hafa til-
einkað reskunni árið 1985 sem
alþjóöaár hennar undir kjörorðunum
Þátttaka-þróun-friöur.
I frétt frá framkvæmdanefnd
alþjóðaárs æskunnar segir m.a. að
meö ofangreindum kjörorðum sé
ungt fólk hvatt til almennrar þátt-
töku og lögð áhersla á að það verði
virkt í því umhverfi sem það lifi í. Þá
sé þess vænst að alþjóöaárið og það
starf sem á því verði unnið sé áfangi
í þróun mannfélagsins. Loks bendi
Sameinuöu þjóðirnar sérstaklega á
aö æskulýðsáriö verði sérstaklega
notaðíþágufriðar.
-JSS.
Iðnaðarráðuneyti:
„Zetan vefst ekkert
fyrir okkur”
■— starf sf ólk hlftir fyrirmælum Sverris
„Þetta zetu-mál hefur ekkert
vafist fyrir okkur hér í iðnaðar-
ráðuneytinu,” sagði Páll Flygenring
ráöuneytisstjóri i samtali viö DV um
tilmæli iönaöarráðherra, Sverris
Herinannssonar, að starfsfólk
ráöuneytisins noti zetu í skrifum
sínum. Sagði Páll Flygenring að eftir
þessum tilmælum ráðherra væri
farið af öllu starfsfólki. Varöandi
yngra fólk sem aldrei hefði lært zetu-
regluna væri „zetum deilt inn þar
sem þeirra væri þörf” en annars
væru engin brögð að því að sá hluti
starfsfólksins skrifaði önnur bréf en
eftir forskrift.
„Við höfum rætt þessi mál hér á
göngum ráðuneytisins en þaö hefur
ekki veriö boðað til fundar af þessu
tilefni né hefur þetta orðið eitthvert
hitamál,” sagöi ráðuneytisstjóri. I
sama streng tók Arni Þ. Arnason
skrifstofustjóri og Guðrún Skúladótt-
ir deildarstjóri. Guörún sagðist
skrifa öll sín bréf með zetu, eftir að
tilmæli frá ráðherra heföu borist um
það. ,,Hins vegar bíðum við eftir
nánari fyrirætlunum sem koma
væntanlega í kjölfar fundar Sverris
með Ragnhildi Helgadóttur mennta-
má la ráðherra,” sagði Guörún.
„Mér finnst reglan um aö skrifa
iðnaðarráðuneyti með I-i, sem
ráðherra hefur jafnframt boðað,
einnig til fyrirmyndar,” sagði Páll
Flygenring. „Það er ef til vill einka-
skoöun min en mér finnst út í hött aö
rita nafn nefnda, sem eru starfandi á
okkar vegum, með stórum staf en
nafn ráðuneyta með litlum.”
-HÞ.
a»-----------------►
Sverrir Hermannsson iðnaðarrád-
herra.
BÍLL ÁRSENS
~°Uno!
Bílasérírœöingar 53 blaöa í Evrópu greiöa atkvceöi um athyglisveröasta
nýja bílinn á hverju ári. FIAT UNO varö í íyrsta sœti og var þar meö kjörinn
bíll ársins 1984 í Evrópu.
FIAT verksmiöjurnar.haía lagt mikla alúð viö hönnun og íramleiöslu
á UNO og gáfu honum nafn sem segir glöggt hvers þeir vœnta af þessum
nýja bíl. UNO þýöir fyrsti á ítölsku, nú varö UNO íyrstur
og á vaíalaust eítir aö veröa þaö víöa og lengi.
Viö óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleöilegs árs
og þökkum viðskiptin á liönu ári. Sérstakar hamingjuóskir til þeirra íjölmörgu
sem þegar hafa keypt FIAT UNO, sem nú hefur veriö kjörinn bíll ársins.
1929
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4. Kópavogi. Símar 77200 - 77202
1984