Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Qupperneq 9
DV.ÞÍtlÐJUDAGUR 10. JANUARa984'. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Saad Haddad majór með ólæknandi krabbamein. Haddadmajór dauöveikur Fjölskylda Saad Haddad majórs, sem stýrt hefur herskáum kristnum mönnum í Suöur-Líbanon í bandalagi viö Israelsmenn, segir aö hann eigi við krabbamein að stríða og læknar geti ekki bjargaö honum. Haddad majór var lagður inn á sjúkrahús í Haifa á gamlársdag og hefur veriö undir handleiöslu ísraelskra lækna. „Afilasergeisl- ans”dáinn Franski eðlisfræðingurinn og nóbelsverölaunahafinn Alfred Kastler, sem meö rannsóknum sín- um opnaöi mönnum leiöina aö upp- götvun lasergeislanna, andaöist um helgina, 81 árs aö aldri. Sjálfur kallaöi hann sig „afa lasergeislans”, þegar hann fékk nóbelsverölaunin 1966. Rannsóknir vegna mannshvarfanna í Argentínu Fyrrum forseti Argentínu, Reynaldo Bignone, lét undir höfuö leggjast aö mæta fyrir rétti í gær. Er þaö í annaö sinn sem hann huns- ar kvaðningu réttarins er vill vitn- isburð hans vegna hvarfs tækni- fræöings hjá hernum 1978. Bignone hershöfðingi á enda yfir höföi sér að veröa handtekinn í réttinum aö beiöni annars dómara sem rannsakar hvarf tveggja liös- foringjaefna 1976. Bignone var for- stöðumaöur herskólans þaö ár. Þaö er taliö aö um 30 þúsund manns hafi horfið í Argentínu í herferö sem herinn rak gegn vinstrisinna skæruliöum á síðasta áratug. Ríkir mikil heift meðal al- mennings í garö yfirmanna hersins á þeim árum. franskur friö- ardáti féll Franskur fallhlífarhermaður var drepinn og annar særöur i árás sem gerö var á varöstöö franska friðar- gæsluliösins í Beirút í gærkvöldi. Þetta var önnur árásin af sama tagi á friðargæslusveitir í Beirút. Banda- rískur landgönguliöi lét lífið í fyrri árásinni á sunnudaginn. Eldflaugadrifinni sprengju var skotiö á aðalbækistöð frönsku friöar- gæslusveitarinnar og vélbyssukúlur voru látnar kemba bygginguna sem áöur var heúnili franska sendiherrans í Beirút. Arásarmennirnir forðuðu sér síðan. Var árásin svo snögg aö frönsku dátarnir náöu ekki aö svara henni. Frakkar hafa þá misst 84 hermenn í friöargæslunni í Beirút. Gærdagurinn var annars meö þeim kyrrlátari sem komiö hafa í langan tíma, eða síöan í ágúst. Shiite-múslimar munda sprengjuvörp- una, en slíkt skeyti hæföi varöstöð frönsku friðargæsludátanna i gær. Kvennamorðingjar dæmdir í margfalt ævilangt fangelsi Konur í Los Angeles geta nú andað léttar því aö tveir menn, sem ollu þar hvar mestri ógn og skelfingu fyrir sex árum, hafa veriö dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir nauöganir og morö. Dómarinn kvaðst vilja ganga svo frá hnútunum, aö þeir slyppu aldrei aftur út fyrir fangelsismúrana og í rauninni heföi dauðarefsmg átt betur viö þeirri tilfelli. Dæmdi hann annan í nífalt æfilangt fangelsi og hinn í fimm- falt. Hvorugur skal koma til greina til náöunar. Þeir höföu nauðgaö og myrt tíu kon- ur í hæöum Los Angeles á samtals fjórum mánuðum. Nakúi lík kvenn- anna höföu þeir skiliö eftir viö borgar- mörkin. Kvennamoröúi vöktu slíkan hrylling á sínum tíma aö konur þorðu ekki ein- samlar út úr dyrum að kvöldlagi og sett var á laggirnar þjónusta til þess aö veita konum fylgd. Eitraðar könguiær Eitraðar hveitiköngulær hafa bitiö á fjóröa hundraö manns í suöurhluta Chile, þar sem þessar pöddur eru húi versta plága. Þrú- ast þær best í þurrviðri en þar hafa ríkt þurrkar aö undanförnu. Alls hafa læknar fengið til meðferðar 361 mann vegna köngulóarbits. Hafa yfirvöld neyöst til þess aö loka tveún baöströndum. — Spáö er rigningu á næstunni og þykir þá góö von til þess aö losna viö köngu- lærnar. KINA VANTAR TÆKNINA Aætlanir Bandaríkjamanna um aö auka sölu tæknibúnaöar til Kína kunna að eiga erfitt uppdráttar vegna sam- starfsins viö bandamenn í V-Evrópu til þess aö fylgja eftir sölubanni slíks bún- aöar til Sovétríkjanna. Forsætisráöherra Kína, Zhao Ziyang, er þessa dagana staddur í heimsókn í Bandaríkjunum og mun hitta aö máli Reagan forseta í dag. Er búist viö því aö þeir ræöi möguleikana á kaupum Kínverja á bandarískum tæknibúnaöi. Bandarisk yfirvöld vilja flokka Kúia meö vinsamlegum rikjum utan hernaðarbandalaga en ekki draga þaö í dilk meö kommúnistaríkjunum. Sala á tæknibúnaöi til sovétríkjanna og bandamanna þeirra er háö ströngu eftirliti til aö fyrirbyggja aö vestræn tækni verði nýtt til herbúnaðar Var- sjárbandalagsins. Cocom er samstarfsnefnd Vestur- landa sem fylgist meö allri slíkri verslun við Sovétmenn en innan nefndarinnar þykú; hafa gætt fremur lítils áhuga til þess aö undanskilja Kína. 011 tæknisala til Kúia þarf því samþykkis nefndarinnar meö sem þykirtímafrekt. CKOWN Læstir meö lykli og talnaiás. CRDM/N Eldtraustir og þjófheldir, tramleiddir eftir hinum stranga JIS staðli. CNOM'N 10 stærðir fyrirliggjandi, henta minni fyrirtækjum og einstaklingum eða stórfyrirtækjum og stofnunum. CROMN Eigum einnig til 3 stærðir diskettuskápa — datasafe 0L0 GISLI J. JOHNSEN SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF Smiðjuvegur 9 - Kópavogi - Sími: 73111 ■HAFIN í FATADEILD Vömfliarkaðurim hf. ÁRMÚLA 1A. SÍMI 86113

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.