Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Síða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JANUAR1984. 17 Lesendur ; Lesendur , Lesendur Lesendur Hellusteypan á Litla-Hrauni, þar sem fangar geta fengið að vinna. Háskólabíó sýnirnú íslenska mynd sem bréfrítara þykir gleðileg undan- tekning frá öllum þeim ofbeidis- og hasarmyndum sem hin kvikmynda- húsin bjóða upp á. ÁGÆT MYND íHáskólabíói Bíógesturskrifar: Mig langar til að vekja athygli á þvi að með öllum þessum ofbeldis-og hasarmyndum sem kvikmyndahúsin hafa á boðstólum núna um jólin er boðið upp á nýja íslenska kvikmynd sem er alger andstæða þeirra. Skiia- boð til Söndru, sem nú er sýnd í Háskólabíói, þótti mér gleðileg undantekning því hún er bæði skemmtileg og manneskjuleg mynd um okkur sjálf. Leikur Bessa Bjarnasonar í aðalhlutverkinu er einstakt afrek þar sem gamni og alvöru er blandað saman. Eg vil að lokum hvetja fólk til að sjá þessa ágætumynd. Fangar á Litla-Hrauni: SAFNIÐ Á HUÓDLÁTAN HÁTT Hvergerðingur skrifar: Eg er hissa á eilífum skrifum fanga á Litla-Hrauni, samanber bréf 3. janúar, þar sem fangi talar um að fangar á Litla-Hrauni ætli að gefa 1— 200 krónur til söfnunar Hjálparstofn- unarkirkjunnar. Því í ósköpunum þurftu mennirnir að rjúka með þetta í DV í stað þess að safna hljóðlega innan veggja Litla- Hrauns og senda þaö síðan til Hjálpar- stofnunar kirkjunnar? Því þurfti aö fara með þetta á lesendasíðu DV ? Hvað eru þessir menn að réttlæta, er samviskan eitthvað að baga þá? Þeir hefðu heldur ekki þurft að sleppa einni máltiö til að safna þessu fé. Eg veit ekki betur en aö fangar á Litla-Hrauni hafi aðgang aö vinnu í hellusteypu sem þar er og hafi dágóð laun fyrir. Við skattgreiðendur hefðum kannski getaö borgað 3—400 krónur á mann ef viö þyrftum ekki að hafa rekstur stofnunarinnar á bakinu. ÉG ER LEIÐUR Á KVÖRTUNUM KVENNA Einn herralegur skrifar: Nú er ég orðinn leiður á þessum sífelldu kvörtunum kvenna út af mis- rétti kynjanna! Staöreyndin er nefni- lega sú aö það er gert miklu meira fyrir konur en karla og það á nærri öllum sviðum. Þegar stórhríöin brast á sunnan- lands og Reykjavík fylltist af snjó- . sköflum var ég á ferð um göturnar á i keðjuvædda fjórhjóladrifskagganum • mínum. Ek ég þá fram á Palla vin minn sem sat fastur úti í skafli og spólaði eins og vitlaus maður. Eg skrúfaði niður rúðuna, skiptist á fá- einum orðum við hann og hvatti hann til þess að guggna ekki — en mér datt ekki i hug að hjálpa honum, heldur ók ég hlæjandi leiðar minnar heim í Kópa- voginn. En ef þetta hefði nú veriö kona? Ja, þá heföi ég fariö á skyrtunni út í iðu- lausa stórhríðina til þess að ýta og draga og ekkert skeytt um heilsu mína hennar vegna. Þannig ganga nú konur fy rir í þjóöfélaginu, ég segi ekki annað. Þegar einhver kona eignast bam á vinnustað mínum fara hinar stelp- urnar strax á stúfana og safna stórum fjárhæðum til þess að gleðja móöurina. Eg er ekki að amast við þessari siö- venju, því að mér finnst hún hugguleg — en hvaö gerðist í fyrra þegar ég eignaðist krakka? Þá var nú ekki verið aö safna fé handa mér, heldur varð ég sjálfur að kaupa tvo konfektkassa og fullt af vindlum og gefa á báða bóga og það fannst þetta öllum sjálfsagt og varla aö menn nenntu að þakka mér fyrir, hvað þá óska mér til hamingju. Nei, stelpur — þiö hafiö forgang í þjóðlífinu og þið eigið að læra að meta það við okkur karlmenn hvað við erum hjálpsamir við ykkur og herralegir — þið megiö ekki bara hugsa um ykkur sjálfar! Það fylgir miklll kostnaður því að eignast bam, einn af þeim kostnaðarliðum er vindlakaup hinna nýbökuðu feðra. Bréfritari vill að þeim kostnaðarlið verði fyrir- komið og feðrunum sendar gjafir í staðinn. iðinn. ZS!SSS8S»a0*\ k 1.11-13- ATHUGID! ^ DAGLEGA (ÞEGAR VEÐUR LEYFIR) son, Afgreiðsla — ritstjórn, Skipagötu 13 — Akureyri. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERD VERÐTRVGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR 1NNLAUSN ARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ*’ 10.000 GKR.SKÍRTEINI 1970 - 2. fl. 1972 — 1. fl. 1973 — 2. fl. 1975 — 1. fl. 1975- 2. fl. 1976 — l.fl. 1976- 2. fl. 1977- 1.fl. 1978- 1.fl. 1979 — 1. fl. 05.02. 84 25.01. 84-25.01. 85 25.01. 84-25.01. 85 10.01. 84-10.01. 85 25.01. 84-25.01. 85 10.03. 84- 10.03. 85 25.01. 84-25.01. 85 25.03. 84 - 25.03. 85 25.03. 84 - 25.03. 85 25.02. 84 - 25.02. 85 kr. 17.415,64 kr. 12.886,60 kr. 7.046,76 kr. 4.002,39 kr. 3.021,25 kr. 2.877,97 kr. 2.273,74 kr. 2.122,16 kr. 1.438,89 kr. 951,45 Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Sérstök athygli skal vakin á lokagjalddaga 2. flokks 1970, sem er 5. febrúar n.k. Reykjavík, janúar 1984 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.