Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Page 20
20 DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JANUAR1984. DÆGRADVÖL H > DÆGRADVÖL V DÆGR^DVÖL — rætt við Gústa úr Eyjum, Ágúst Stefánsson, en það er einmitt hann sem syngur lagið „Nú meikarðu það Gústi” Gústi er á leiöinni yfir hafiö bláa á dallinum gráa. Skyndilega stekkur þorskur upp úr hafinu viö dallinn og kallar: „Nú, meikarðu þaðGústi”. En hvaöa Gústa á þorskurinn við? „Þetta gæti átt viö alla Gústa á landinu,” segir Agúst Stefánsson, 22 ára piltur úr Vestmannaeyjum, sem sungið hefur undir nafninu Gústi úr Eyjum að undanförnu. Og það er einmitt Agúst þessi sem syngur lagið Nú, meikaröu það Gústi, lag sem heyrst hefur oft í útvarpinu aö undanförnu. Fyrrnefnd saga um þorskinn kemur fyrir í textanum. Lagiö er á tveggja laga plötu sem Agúst sendi frá sér seinni partinn í nóvember. Hitt lagiö á plötunni nefnist Krúttiö. Svokallaðir Starfsfélagar í Ishúsfé- lagi Vestmannaeyja önnuöust útgáfu plötunnar. Höfundur beggja laga og texta er frændi Agústs, Bjartmar Guðlaugsson. „Eg er alinn upp á heimili þar sem mikiö er sungiö, pabbi hefur til dæmis alltaf sungiö mikiö og þetta ýtti ósjálf- rátt undir áhugann h já mér. ” Þrátt fyrir söngáhugann er Agúst ekki einn af þessum dæmigeröu hljóm- sveitargæjum. Eina hljómsveitin sem hann hefur sungiö meö heitir Nýja Bandiö, hljómsveit úr Vestmanna- eyjum. ,,Ég var stutt í þessari hljómsveit,” segir Gústi um þennan hljómsveitar- feril sinn. Þess má geta að Agúst hefur síöustu fjögur árin starfað með leikfélaginu i Eyjum „og haft gaman af,” eins og hannoröarþaö. Viö minntumst þess aö hafa séö kappann í kvikmyndinni Nýtt Líf og spyrjum hann um myndina. „Þetta var nú svo lítið hlutverk að þaö tekur því varla aö nefna þaö. Þaö gekk út á aö ég sagöi viö Karl Agúst, þegar hann var meö spilagaldr- ana á diskótekinu, aö ég væri meö grett ársins og spilagaldrarnir væru ómögulegir. Síöan gretti ég mig og skilaði því til hans aö ef hann vildi fá eitthvert fútt þá skyldi hann bara tala viö mig.” Ágúst hefur fengist viö ýmis störf, unnið í frystihúsinu, Isfélagi Vest- mannaeyja, hjá Vestmannaeyjabæ og fyrir stuttu starfaöi hann sem bakari í Magnúsarbakaríi. En hvers vegna aö rjúka til og senda frá sér hljómplötu? „Hugmyndin er nú ekki mín. Þaö var frændi minn, Bjart- mar Guðlaugsson, sem átti hug- myndina. En ég hef haft mjög gaman af aö standa í þessu. Þetta er búiö aö vera mikið ævintýri. ” — Attu einhver fleiri áhugamál en sönginn? Ertu til dæmis í íþróttum? „Nei, ég hef nú lítið verið í íþróttum. En þó stundaði ég lyftingar með nokkuö grysjulegum hætti í tvö ár. Og varð víst svo frægur aö keppa á einu móti allan þann tíma.” -JGH. Gústi úr Eyjum, Ágúst Stefánsson, 22 ára Vestmannaeyingur. „Þotta gæti átt við alla Gústa í landinu." Nýbúinn i snjómokstri fyrir utsn heimili kunningja sinna i Reykjavík. Og þvi ekki að taka lagið með aðstoð skóflunnar góðu? Þess má geta að Ágúst skemmti i Hollywood og Broadway á gamlárskvöld og þá voru jú hljóðnemar öllu skárrienþessiámyndinni. DV-myndir Bjarnleifur. Söngur, leikur og mat- reiðsla Komiði sælir félagar og vinir góðir, segjum við í Dvöiinni, um leið og við bjóð- um ykkur gleöilegan 10. janú- ar. Ekki að spyrja að sífelldu hátíðarskapi Dvalarinnar. Að þessu sinni fjöllum við um dægradvöl leikskóla- barna, söng og matreiöslu söngvara. Allt efni sem við erum syngjandi glaðir meö. Fyrst er það hann Gústi úr Eyjum, Agúst Stefánsson, 22 ára Eyjapeyi. Líflegur náungi, sem sendi frá sér tveggja laga hijómplötu fyrir jólin. Og það er einmitt Gústi þessi sem syngur lagið Nú meikarðu þaöGústi. Þá litum viö inn i leikskól- ann Alftaborg í Safamýri, fylgjumst meö krökkunum bregða á leik daginn eftir hinn árlega óveðursdag, 4. janúar. Síðast en ekki sist er það Guðrún Sigríður Friðbjörns- dóttir söngvari. Fyrir utan sönginn er matreiðsla hennar áhugamál. Við röbbum um hvort tveggja við hana. Og við verðum aldrei full- saddir á því að minnast á punktinn góða. Hann meikar það örugglega að birtast að lokum. Góða iesningu. Texti: lón G. Hauksson Myndir: Bjamleifur Bjamleifsson „NÚ MEIKARÐU ÞAÐ GÚSTI” Púslið reynir örlitið á mann. Það verðurþó að gefa sór tíma tii að horfa á Ijósmyndarann. Talið frá vinstri: Lára, Oddný, Doddo (Þórður) og Ásta. Hann með trommu bomba-romba-romm — vaskir krakkar f leikskólanum Álftaborg bregða á leik Hvernig skyldi lífiö og tilveran ganga fyrir sig í leikskóla daginn eftir óveöursdaginn árlega, 4. janú- ar. Dægradvölinni lék forvitni á aö vita slíkt og leit þvi inn á Leikskól- ann Alftaborg til aö kanna máliö. „Upp á grænum, grænum himin- háum hól sá ég hérahjónin ganga. Hann með trommu, bomba-romba- rom-bom-bom. Hún með fiölu sér við vanga. Þá læddist að þeim ljótur byssukarl, hann miöaöi í hvelli. En hann hitti bara trommuna sem small, og þau hlupu og héldu velli.” Þetta ómaöi skemmtilega frá einu herbergjanna í Alftaborg og viö renndum okkur auðvitað á hljóðið. ,,— Hvaöa fulgar eru nú þetta?” mátti lesa úr andlitum barnanna er við „ruddumst” inn á þau. ,Jla, frá Dagblaöinu Vísi Jú, því mátti trúa, enda mennirnir bæöi með myndavél og skrifblokk með- feröis. Og hvers vegna þá ekki aö endurtaka sönginn, svona meira fyrir myndavéiina. Það var þegiö. Krakkarnir í Alftaborg eru alla- jafna 52 talsins fyrir hádegi og 54 eftir hádegi. Þannig eru þeir aöeins fjóra tímaísenn. Þennan eftirmiödag voru þeir þó aöeins 11 talsins. Skýringin var sú aö reiknað haföi veriö meö óveðri, sem kom reyndar aldrei. Flestir krakkanna eru þriggja ára en þarna eru þó krakkar aUt upp í sex ára. A hverjum degi er ein fræðslu- stund. >á er krökkunum kennt aö þekkja litina, hlutverk fjölskyld- unnar er rætt, þaö er lesið og siöast en ekki síst sungiö af fullum krafti. En þaö má ekki gleyma að minnast á aöalleikina. Þeir eru aö púsla, leira, klippa, raöa kubbum og vera í dúkkukróknum, en þar er hinn æva- forni mömmuleikur vinsælastur. Viö bregöum hér upp nokkrum myndum af þessum myndarlegu krökkum í Alftaborginni. -JGH. " Dpp á grænum, grænum, himinháum hól, sá óg hórahjónin ganga." Söngurinn á fullu hjá krökkunum i Álftaborginni. Venjulega eru þeir 54 mættir en þar sem þetta var daginn eftir óveðursdaginn árlega 4. janúar, og búist hafði verið við enn meira óveðri, voru þeir aðeins 11 talsins. Með báðar hendur á stýri. Þessi forláta ökutæki eru vinsæl. Fóstrurnar, sem sjá um „lög og regluna", krefjast meiraprófsins en það gefur rótt- indi tH að aka kassabíl. Talið frá vinstri: Ingibjörg, Hrund og Benni (Benedikt).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.