Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Qupperneq 36
ÚRVALSEFNI
VIÐ ALLRAHÆFI
Askriftarsíminn er
27022
Gulna hliðið
jólaleikrit
sjónvarps
Stefnt er aö því aö Gullna hliðiö eftir
Davíö Stefánsson verði jólaleikrit
sjónvarpsins 1984. Þessar upplýsingar
fékk DV frá Hinrik Bjarnasyni, for-
stööumanni lista- og skemmtideildar
sjónvarps.
iÆÍkritiö verður tekiö upp í vor. Leik-
stjóri verður Agúst Guömundsson.
Þrjú önnur leikrit eru á verkefna-
skrá sjónvarps í ár. Þau eru: Stalín er
ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson;
Bjartsýnisfólk eftir Gunnar Gunnars-
son og Bleikar slaufur eftir Steinunni
Sigurðardóttur.
-KMU.
Nóg bræla en
engin loðna
— loðnubátarnir hafa
nærekkertfengiö
f rá áramótum
Þeir 30 loðnubátar sem lagt hafa úr
höfn frá áramótum hafa nánast engan
afla fengið þaö sem af er vertíðinni.
Miklir bræluhvellir hafa gengiö yfir
Austfjarðamið, þar sem loönuna er
helst að fá, og þau stundarkorn sem
eitthvaö hefur lægt hafa bátarnir ekkii
fundið loönuna. Um 20 bátar hafa ekki
lagt úr höfn eftir áramótin en eru allir
tilbúnir þegar veöur lægir og eitthvaö
fréttist um veiðar.
-GS.
Kveikti í jólatré á
lóðinni hjá sér
— og bjarminn blekkti
Maöur nokkur sem býr í fjölbýlishúsi
viö Arahóla var í mestu makindum að
kveikja í jólatré á lóðinni fyrir utan hjá
sér á níunda tímanum í gærkvöldi er'
hann fékk slökkviliðið í heimsókn.
Astæðan var sú að bjarminn af
eldinum speglaðist í gluggum hússins.
Fólk hélt því að kviknað væri í húsinu
og hringdi á slökkviliðið.
En sem betur fer reyndist ekki um
alvarlegra mál að ræða en jólatrés-
brunann. -JGH.
LOKI
Nú er /oks ástæða ti/
setuverkfa/la í ráðuneyt-
unum!
LUKKUDAGAR
10. janúar:
50940
Reiðhjól frá Fálkanum að
verðmæti kr. 10.000.
Vinningshafar hringi í síma 20068 -
TALSTÖÐVAR- BÍLAR 2702! AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
UM ALLA BORGINA SMÁAUGLÝSINGAR
SÍMI 8-50-60.
AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR
; ÞVERHOLT111
ÞRÖSTIIR SÍÐUMÚLA10 i pee RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12-14
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1984.
Ráð til þess að bæta kjör þeirra lægst launuðu á sjónum:
Fækkað á stóru tog-
urunum um 5—6 menn?
Skipverjar á 16 svokölluöum stóru Þessari hugmynd hefur þrásinnis A stóru togurunum hafa því 24 togurunum um aöstoðarmann í vél,
togurum í fiskiskipaflotanum hafa skotiö upp i samningum útvegs- manna áhafnir skipt almennt aðstoðarkokk, loftskeytamann og 2-
lengi undanfariö haft að jafnaði manna og sjómanna. A minni tog- svipuðum aflahlut og 15—16 menn á 3háseta.
einna lægstar tekjur í sjómannastétt- urunum, sem eru undir 500 tonnum, minni togurunum. A „verksmiöju- Gallinn við þessa hugmynd er auð-
inni. I þeim tilgangi að lyfta kjörum' starfa 15—16 menn en þeir eru nú 83 togurunum” örvari frá Skagaströnd vitað sá að 80—96 sjómenn á þessum
þeirra nú, þegar við blasir sérstök auk tveggja „verksmiðjutogara” og Hólmadrangi frá Hólmavík skipta 16 stóru togurum misstu vinnuna,
tekjurýrnun vegna aflatakmarkana, með24menn. Astórutogaranahefur 24 menn hins vegar hlut af unnum þar. En kosturinn að 288-304 sjó-
kemur til álita að fækka í áhöfnum yfirleitt ekki aflast meiri eða verð- afla, samkvæmt sérsamningum. menn sem eftir yrðu fengju drjúgum
þeirraúr24íl8—19menn. mætarifiskurenþáminni. Talið er mögulegt að fækka á stóru meiraísinnhlut,alltað25%. -HERB.
ruKVta
Þeir kaUa þennan tank,, fjölhæfnistank" en þetta er ný fíutningstœkni sem'
Hafskip er aö taka i notkun og kom fyrsti beigurinn til landsins i siðustu
viku. Birgir Ómar Haraidsson skipaverkfræðingur hjá Hafskip tjáði DV að
þessi tankur byði upp á þá möguleika að hægt væri að fíytja ihonurn nán-
ast hvaða vökva sem væri. í dag fara þeir hjá Hafskip með tankinn sem
tekur álíka magn og 50 tunnur, eða 12 þúsund litra, og fylla hann af lýsi i
Vestmannaeyjum.
Sagði Birgir að hann teldi þessa nýju fíutningstækni mjög til hagsbóta
fyrir alla aðila.
HÞ/DV-mynd GVA.
ISLENSKITOGARAFISKURINN
KEYPTUR DÝRUM DÓMUM
Ögrifékk 39,75 kr.
að meðaltali fyrir
hvert þorskíló
Islensku togararnir, sem voru að
veiðum um jólin, hafa yfirleitt fengiö
mjög gott verð fyrir afla sinn bæði í
Bretlandi og í Þýskalandi nú síöustu'
daga. Höfuðástæðan er slæmar gæft-
ir skipa á heimaslóð þannig að mikil
eftirspurn er nú eftir ísfiski í Evrópu.
Engey seldiþann4. jan. tCuxhaven
172 tonn, aðallega karfa, fyrir liðlega
5,4 milljónir og fékk 31,68 kr. í meðal-
verö fyrir kilóiö. Sjóli seldi sama dag
í Bremerhaven liðlega 74 tonn af
karfa fyrir tæpar 2,2 milljónir eöa
29,31 kr. fyrir kílóið. Hafnarvík seldi
þá einnig í Hull tæp 59 tonn af þorski
og ýsu fyrir liðlega 1,8 milljón, eða
31,95 fyrir kOóið. Daginn eftir seldu
tveir togarar. Viðey seldi liðlega 145
tonn af karfa í Bremerhaven fyrir
liðlega 4,4 milljónir, eða 30,60 kr.
fyrir kílóiö og Ymir seldi liðlega 95
tonn, aðallega þorsk, í Grimsby fyrir
tæpar 2,7 milljónir, meðalverð 27,95
m .......>-
Þessi mynd var tekin um borð i
Ögra austur á Seyðisfjarðardjupi
um hádegisbil þann 5. janúar er
hann var að taka trollið inn i sið-
asta sinn fyrir siglinguna til
Grimsby. Þar fékk hann hæsta
heildarverð íslenskra fiskiskipa i
pundum siðan i desember 1982.
Brynjólfur Halldórsson var skip-
stjóri i túrnum.
DV-mynd: -GS
kr. fyrir kílóið. I gær seldi svo Ogri
liðlega 160 tonn, þar af rösklega 100
tonn af þorski, í Grimsby fyrir
liölega 5,5 milljónir og var meðal-
verð 34,33 kr. fyrir kílóið. Það er
hæsta heildarsala íslensks togara í
pundum síðan Vigri setti met á því
sviði i desember 1982, þegar hann
seldi þar 177,4 tonn. Hins vegar fékk
Ogri hærra meðalverð fyrir hvert
kUó nú en Vigri fékk þá. Meðalverð
fyrir hvert kiló af þorski upp úr Ögra
í gær var 39,75 krónur, sem er eitt-
hvert hæsta meöalverð fyrir þorsk
hingað tU á Bretlandsmarkaði. Ymir
á þó enn metið á því sviði f rá í janúar
1979 en þá seldi hann aðeins 71 tonn.
I dag selur Vigri svo um 195 tonn,
aðaUega karfa, í Bremerhaven.
-GS.