Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 1
37.000EINTÖK PRENTUÐÍ DAG. RITSTJORN SIMI 86411 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022 Frjálst, óháð DAGBLAÐIЗVÍSIR 33.TBL. — 74. og 10. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1984. Öryggisfyrírtækin: Andsvarborgaranna gegn glæpamönnum — sjá Tíöarandann á bls. 14 ogl5 Rekstur Arnarf lugs f yrstu níu mánuöina í fyrra: TAPfÐ YFIR 50 MILUÓNIR Tap á rekstri Amarflugs fyrstu niu mánuöi síðasta árs mun hafa numið rétt liðlega tveim milljónum dollara, eða um58milljónumkróna á núverandi gengi dollars. DV er ekki kunnugt um niðurstöðutölur alls árs- ins en í september i fyrra voru skuld- ir fyrirtaekisins um sjö milljónir doll- ara eða um 200 milljónir íslenskra króna. Stærsta hluta þeirra á að greiöa upp á löngum tima en eitt- hvað var komið í vanskil í september auk þess sem þá höfðu hlaðist upp rekstrarskuldir svo sem vegna yfir- flugs og viðhalds. I fyrrahaust útvegaði Lands- banki Islands Samvinnubankanum erlent lán upp á 600 þús. dollara eöa 43,5 milljónir króna og tók Sam- vinnubankinn veð í Boeing og Cessna vélum fyrir því láni. Nú vantar Amarflug aftur lán og hefur óskað rikisábyrgðar fyrir láni upp á 1,5 milljón dollara eða 43,5 milljónir króna. Endurskoðendur á vegum hins opinbera eru nú að kanna hvort Amarflug eigi laus veð í eignum sínum fyrir þessari upphæð eða a.m.k. hluta hennar. -GS Vanskila- skipin látin faraá hausinn? - færri og færri stjóm- málamenn vilja sérað- gerðirtilað bjarga þeim I umræðu stjórnmálamanna um aðgerðir til þess að tryggja rekstrar- grundvöll útgerðarinnar á sú hug- mynd vaxandi fylgi að fagna að skuldugustu skipin veröi látin fara á hausinn fremur en að reyna að hjálpa þeim meö einhverjum sérað- gerðum. I framhaldi af þvi myndu sjóðirnir eignast þau og selja þau á frjálsum markaði fyrir þá upphæð sem útgerðarmenn treystu sér til að kaupaþauá. Jafnframt gerir þessi hugmynd ráð fyrir að kaupendur þessara skipa, sem öll eru svo til ný, yrðu að leggja eldri skipum í staðinn, rétt eins og um kaup á nýsmiði væri að ræða, og þannig drægi enn úr sókn- inni. Byggðastefnumenn eru almennt á móti þessu en aðrir benda á að út- gerðaraðilar í héraði, sem færu á hausinn með vanskilaskip sin, gætu allt eins keypt sömu skipin af sjóðun- um aftur á eðlilegu verði og kjörum og haldið útgerð áfram. -GS Aöflugiðíathugun „Þetta mál er ennþá i athugun. Eg get engu bætt við það sem sagt var i frétt ykkar í blaöinu í gær,” sagði Skúli Jón Sigurðarson sem fyrú- hönd loftferðaeftirlits Flug- málastjórnar rannsakar aðflug Flugleiðaþotu aö Keflavíkurflugvelli um síðustu helgi. Flugumferðar- stjóri kallaöi þotuna upp þegar hann sá á radar aö hún var komin óeðli- lega lágt niður. Þotunni var þá gefið inn afl og hún látin klifra upp i lág- markshæð. -KMU. Sjávarborgin kom með fullfermi afloðnu til Reykjavikur imorgun. A stærri myndinni vinna hásetar við að tengja dælu til að koma loðnunni i land og á þeirri minni er einn hásetanna á Sjávarborginni með eitt sýni. DV-mynd-GVA Af lamagn loðnubáta um 19 þúsund tonn: Tveir bátar hafa fyllt kvótann Frá miönætti hafa sex loðnubátar tilkynnt sig með f jögur þúsund tonn og alls tuttugu og sex skip meö sam- tals 18.800 tonn sl. sólarhring. Ágætt veður er enn á miðunum. Allir bátar hafa verið með full- fermi og stoppa stutt á miðunum þvi veiðin er svo góð, að sögn Andrésar Finnbogasonar hjá loðnunefnd. Tveir bátar hafa þegar fyllt kvótann, það eru Hrafninn G.K. og Albert G.K. og nokkrir eru i síöasta túrnum. Loðnunni er landað frá Seyðisfirði til Reykjavíkur en hún veiðist nú fyrir Suöurlandi og er gangan komin lang- leiðina vestur að að Skarðsfjöru. -HÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.