Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 10
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984. 10 , Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sögufræg mynd úr spænska þinginu í febrúar 1981. Valdaránstilraun þjóðvaröliöanna fór þá út um þúfur og síðan þykir hættan haf a minnkað á að slíkir atburðir endurtaki sig. Gulliermo Quint- ana Lacaci hers- höfðingi var skot- inn til bana er hann var á leið heim úr messu. Felípe Gonzaiez hefur beitt sér fyr- ir breytingum inn- an hersins og þar með minnkað hættuna á valda- ránstilraunum úr þeírri átt. BASKAR MINNA RÆKI- LEGA Á HLVERU SÍNA —en lýðræðið þykir tryggara í sessi á Spáni en oftast áður Einmitt þegar spænska þjóöin var aö byrja aö gleyma hættunni á að hið unga lýðræði hennar kynni að falla fyrir valdaráni hersins, var þjóðin rækilega minnt á hættuna með morði einu. A dögunum var Quintana Lacaci hershöfðingi myrtur af ETA, aöskilnaðarhreyfingu baska. En Lacaci hershöfðingi studdi ekki, valdaránstilraun hersins í febrúar 1981 og kann það að hafa ráðið úr-. slitum um að tilraunin mistókst. Daginn eftir að Lacaci var ráðinn af dögum reyndi ETA aö myrða Antonio Coello de Portugal, annan spænskan hershöföingja, á fjöl- farínni götu í Madrid. En eiginkona hans sá hvað verða vildi og dugði það til þess aö tilræðismaðurinn foröaði sér án þess að honum tækist að koma hershöfðingjanum fyrir kattamef. Nú fyrir helgina lét ETA svo til skarar skríða á ný og réö af dögum einn af sínum fyrrverandi liðsmönn- um sem lýst hafði því opinberlega að hann hefði snúiö baki viö ofbeldis- stefnuETA. ETA hyggur á fleiri dráp Lögreglan hefur og skýrt frá því aö hún hafi fengið örugga vitneskju um að ETA hyggi á fleiri dráp í Madrid. Ekki var skýrt frá því hvaðan lög- reglan hefði þessa vitneskju sína en það er opinbert leyndarmál að yfir- heyrsluaðferðir lögreglunnar eru ekkert blíðlegar og æ og aftur er talað um pyntingar í því sambandi. Hér er nefnilega um að ræða sömu menn og störfuðu undir stjórn Francos — einungis í nýjum ein- kennisbúningum. Upp á síðkastið hefur þeim tekist að handtaka f jölda manna sem sterklega eru grunaðir um að vera liðsmenn ETA. Samtímis hefur lögreglan gert upptækt talsvert magn vopna og skotfæra af austur-evrópskum uppruna. Þar á meðal tékkneskar vélbyssur. Samstarf hryðjuverkasamtaka Talsmenn lögreglunnar og hersins hafa einnig skýrt frá því aö þeim sé kunnugt um síaukiö samstarf ETA og annarra hryðjuverkasamtaka í Evrópu, þar á meðal IRA í Irlandi. Einnig fullyrða þessir talsmenn að ETA standi í samvinnu við lika hópa í Miðausturlöndum og Rómönsku Ameríku. Spænska lögreglan er af- skaplega óánægð með að þaö skuli vera jafnauðvelt og raun ber vitni að kaupa vopn í Belgíu. Það var meðal annars af þeim sökum sem Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, hvatti til alþjóðlegrar baráttu gegn hryðjuverkahópum í ræöu sem hann flutti í Evrópuráðinu nýverið. Af sömu ástæðum vill Gonzalez taka upp stjórnmálasamband við Israel á, nýjan leik. Aö baki ræðu Gonzalez í Evrópuráðinu í Strassburg má og greina áhyggjur hans yfir vopnuðum árásum hryðjuverkahópa yfir landa- mæriFrakklands ogSpánar. Hryðjuverkaferðir yfir landamærin ETA-menn hafa leikið þaö að halda frá búðum sínum í Suður- Frakklandi yfir spænsku landa- mærin og myröa lögregiuþjóna á spænskri grundu ellegar vinna önnur hermdarverk áöur en þeir hverfa yfir til Frakklands á nýjan leik. Þessar árásaferðir ETA-manna yfir landamærin hafa á hinn bóginn leitt til þess að hægrisinnaðar sveitir ftrúlega borgaralega klæddir lögreglumenn oft á tíðum) hafa haldið inn yfir frönsku landamærin frá Spáni og komið fram hefndum á þeim sem grunaðir eru um að vera ETA-menn. Á síðastliðnu ári framdi ETA 43 morð og frá því aö Franco lést, fyrir minna en tíu árum, hefur ETA lýst sig bera ábyrgð á meira en 500 launmorðum. Þar ofan á bætast mannrán og bankarán sem aö jafnaði eiga sér staö þriöja hvem dag. Þá hefur ETA og innheimt . „stríösskatt” hjá fjölmörgum fyrir- tækjum í baskahéruöunum. Fyrir- tækin greiöa semsé skatt til ETA til þess að tryggja sig gegn hermdar- verkum þessarar basknesku aðskilnaðarhreyfingar. 6—7 milljarðar í „stríösskatt" Það er áætlað að ETA fái sex til sjö milljarða króna árlega í gegnum þessa „skattheimtu”. Peningum þessum er síðan að sjálfsögðu variö til þess að fjármagna hermdarverk ETA og annarra líkra hryðjuverka- samtaka. A síðastliðnum átján mánuöum hafa átt sér staö 140 bankarán sem ETA hefur staðið á bak við. Franska lögreglan hefur í seinni tíð veriö fúsari til samstarfs við starfsbræður sína á Spáni heldur en áður var og hefur handtekið fjölmarga menn sem grunaðir eru um að vera félagar í ETA. Sú staðreynd aö sósíölsk stjóm heldur nú um stjómtaumana beggja vegna landamæranna hefur leitt til betra samstarfs en áður. Ástæður þess að spænsk yfirvöld óttast nú aukna athafnasemi ETA í nánustu framtíö eru einkum tvær. I fyrsta lagi er fyrir því reynsla að ETA minnir venjulega á tilveru sína með rækilegum hætti eftir að lög- reglan hefur handtekiö þýðingar- mikla hópa innan samtakanna og gert vopn upptæk. Samtökin vilja meö því móti sýna ótvírætt að máttur þeirra sé ekki minni en áður þrátt fyrir aðgerðir lögreglunnar. önnur ástæðan er sú að þann 26. febrúar munu fara fram kosningar um sjálfsstjóm baskahéraðanna. ETA vill hræða sem flesta til þess aö setja krossinn á réttan stað á kjör- seðilinn. Markmið ETA er sem kunnugt er algjört sjálfstæði baska- héraöanna. Fjórar valdaránstilraunir Spænskir blaðamenn sem taldir em hafa góö sambönd við ETA áætla að um 500 virkir félagsmenn ETA búi innan frönsku landamæranna og inn- an baskahéraðanna séu alls um f jögur þúsund virkir félagar. Þar viö bætast hryðjuverkahópar, meðal annars í Madrid, sem staöið hafa fyrir fjölmörgum grófum hryðjuverkum á síðastliðnum fimmtán árum. Alls hafa verið lögö á ráðin um fjórar valdaránstilraunir á Spáni frá því að lýðræði var innleitt í landinu. Alvarlegust var að sjálfsögðu tilraunin í febrúar 1981 þegar foringi þjóðvarðliðanna réðst inn í þing- húsiö, Cortes, í þeim tilgangi að taka völdin í sínar hendur. Nú þegar hættan á valdaráni virðist ekki eins mikil þá er það ekki síst vegna þess aö Felipe Gonzalez, hinn 41 árs gamli forsætisráðherra sósíaldemókrata hefur sýnt að hann er skjótur að taka ákvarðanir og hefur ekki sýnt neina linkind gagn- vart aöskilnaðarsinnum baska. Gonzales hefur áunnið sér traust Gonzalez hefur áunnið sér traust þjóðarinnar, meðal annars með því aö halda niðri launum opinberra starfsmanna og þar á meöal eigin launum. Hann setti þak á laun opinberra starfsmanna sem miðaö var við tvær miiljónir króna en áöur höföu ýmsir haft um tvöföld þau laun. Einnig beitti hann sér fýrir mikilli fækkun innan hersins. Hann berst nú gegn 300 milljaröa króna halla á þjóðarbúskapnum og 16,8 prósent atvinnuleysi. En þrátt fyrir það gaf hann sér tíma til að gera breytingar á hernum nýverið og þar meö minnka líkurnar á valdaráns- tilraunum úr þeirri átt. Vamarmálaráðherrann, Nariss Serra, hefur aldrei veriö hermaður og er það með öllu óþekkt á Spáni. Yfirmenn hersins sem áður voru nær eingöngu gallharðir hægrimenn og Franco-sinnar eru nú margir hverjir nær miðju stjórnmálanna þó fæstir þeirra teljist til sósialdemókrata. Þessi breyting innan hersins er meginástæðan til þess að hættan á valdaránstilraunum er nú talin minni en oftast áöur. Gonzalez „hinn snöggi”, eins og hann er stundum kallaður í gamni, hefur sannarlega haft hraðan á. -GAJ. Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.