Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 4
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984. 4 Fáskrúðsfjörður: Gladningur fráRARIK Frá Ægl Krlstinssyni, fréttarit- ara DV á Fáskrúðsfirði. Fáskrúðsfirðingar eru nú að fá glaðning frá Rafmagnsveitum ríkisins, þ.e. reikning fyrir ljós og hita. Hætt er viö að mörgum þeim, sem búa við hitaveituna, þætti þaö dýrt að greiða 3—5 þúsund krónur á mánuði fyrir aö hita hús sín. Verðjöfnunargjald og sölu- skattur leggjast ofan á rafmagns- verð til heimilisnotkunar og er þetta 500—1000 króna skattur aö auki á mánuöi. Mjög algengt er aö meðalrafmagnsreikningur á ein- býlishúsi hér sé 5—10 þúsund krónurámánuöi. HÐMSFRÆG LÍKAMSRÆKTAR- KONA SÝNIR OG KENNIR HÉR Breiðdalsvík: Góöarflug- samgöngur p Hugmynd atvinnumalanefndar Hafnarfjarðar: FRIHAFNARSVÆÐI VH> STRAUMSVÍK? „Þaö kom upp hugmynd um könn- un á fríhafnarsvæði í nefndinni hjá okkur. Henni var vísað til bæjarráös, sem mælti meö aö könnunin yrði gerð en lengra er málið ekki komið. Það er sumsé á algjöru frumstigi,” sagði Jón Kr. Gunnarsson, formaður atvinnumálanefndar Hafnarfjarðar, aðspurður um hugsanlegt fríhafnar- svæði í nágrenni bæjarins. Sagði Jón að Straumsvíkursvæðið þætti einna helst koma til álita í þessu sambandi en engin ákvöröun hefði þó veriö tekin í þeim efnum þar sem umrædd könnun heföi ekki farið fram. Hugmyndin er að hafa fyrir- komulag á þessu eins og tíðkast í öðrum löndum,” sagöi Jón. „Þá yrði þarna um að ræða ýmiskonar sam- keppnisiðnað. Viðkomandi iðnaðar- vörur þyrfti ekki að tollafgreiða til útlanda en ætti að dreifa þeim hér á innanlandsmarkað, yrðu þær að fara ígegnum tollinn.” Jón sagöist ítreka að þarna væri um algjöra frumhugmynd að ræða. Bæjarráð hefði lýst áhuga sínum á að könnun á fríhafnarsvæði færi fram og vonandi yrði hægt að hefja slíka athugun innan tíðar. -JSS Lisser Frost-Larsen þykir sérlega glæsileg kona og hún hefur þegar náð langt í at- vinnumannakeppni í vaxtarrækt víða um heim. Félagsskapur um steikarpönnur úr áli Undirbúningsfundur að stofnun félags til reksturs verksmiðju þar sem framleiddar verði steikarpönnur úr áli til útflutnings var haldinn í Reykjavík á laugardag. Það eru ýmis fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar sem vinna að stofnun þessa félags auk Eyr- arbakkahrepps sem veitt hefur loforö um 1,8 milljón króna hlutafé. Er enda ætlunin að verksmiðjan verði starf- rækt á Eyrarbakka. Að sögn Magnúsar Karels, oddvita á Eyrarbakka, er stefnt að því að félagið verði stofnað á þriðjudag. -GAJ. Hin fræga líkamsræktarkona Lisser Frost-Larsen er væntanleg hingaö til lands í þessari viku. Mun hún koma fram á Otsýnarkvöldi í Broadway á sunnudaginn en einnig mun hún dvelja hér í nokkra daga i næstu viku og kenna við Líkams- og heilsuræktina íBorgartúni 29. Lisser Frost-Larsen er dönsk og vel þekkt viða um heim fyrir glæsilegan likama sinn. Hefur hún orðiö Norður- landameistari kvenna í líkamsrækt og hlotið silfurverðlaun á Evrópumóti. Nú er hún orðin atvinnumaður í íþróttinni og keppir og sýnir víða um heim. Lisser Frost-Larsen er einnig þekkt í heimalandi sínu fyrir aðrar íþróttir. Kemur hún hingað á vegum Líkams- og heilsuræktarinnar sem er eins árs um þessar mundir. Þar mun hún halda námskeið í næstu viku sem sérstaklega er ætlað konum. Mun þar taka fyrir æfingar sem henta öllum konum svo og megrunaræfingar með tilheyrandi mataræði. -klp- Frá Sigursteini Melsteð, frétta- rltara DV á Breiðdalsvik. Flugfélag Austurlands hefur áætlun hingað þrisvar í viku. A síöasta ári voru fluttir 800 farþegar til og frá Breiðdalsvík. Flugbrautin, sem er 900 metrar að lengd, er mjög góð og sömuleiðis aöflugiö en flest annaö vantar, svo sem ljós, stefnuvita, slökkvitæki og margt fleira sem bráðnauðsynlegt eraökomisemfyrst. -GB. Þingmenn á yfirreið um Suðurlandskjördæmi: „Kærkomin heimsókn” — segir Magnús Karel, oddviti á Eyrarbakka „Þetta var mjög kærkomin heim- sókn því það er mjög gagnlegt fyrir okkur að fá tækifæri til aö skiptast á skoðunum við þingmennina,” sagði Magnús Karel Hannesson, oddviti Eyrbekkinga, í samtali við DV um heimsókn þingmanna Suðurlands- kjördæmis á Eyrarbakka síðast- liðinn föstudag. Allir þingmenn Suðurlands voru þá á yfirreið um kjördæmiö. Komu þeir til Þorlákshafnar um morguninn. Þaðan lá leiðin til Hvera- gerðis og Selfoss þar sem snæddur var hádegisverður í boði bæjar- stjórnar. Því næst var haldiö til Eyrarbakka og heimsókninni lauk á Stokkseyri meö kvöldverðarboði hreppsnefndar staöarins. I spjalli þingmanna við hrepps- nefndarmenn á Eyrarbakka kom fram aö i ár er varið 4,2 milljónum króna til hafnarframkvæmda á Eyr- arbakka. „Þessir peningar koma að mjög góðum notum. Höfnin er full af sandi og er stefnt að þvi aö ná þessum sandi upp úr höfninni,” sagði Magnús Karel oddviti ennfremur. Þingmennimir sem tóku þátt í yfir- reiðinni voru Arni Johnsen, Eggert Haukdal, Garðar Sigurösson, Þor- steinn Pálsson og Þórarinn Sigurjónsson. -GAJ. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Fjölskyldum bannaður aðgangur Miklar deilur hafa rlsið um nýj- ustu mynd Hrafns Gunnlaugssonar. Ekki snúast þær um listrsnt gildi myndarlnnar, atburðarásina, leikar- ana eða kvikmyndahandritið, sem allt fær þó mikið lof gagnrýnenda. Agreiningurlnn er fólglnn í þelrri lýslngu sem framleiöandinn gaf myndinni þegar hann var að hvetja þjóðina til að sjá Hrafninn fljúga' með eigin augum. Orðaði hann það svo að bíómyndln væri fjölskyldu- mynd við allra hæfi. Þetta þótti kvikmyndaeftirlitinu hin argasta frekja og hefur nú sett eftirlitsmenn til höfuðs myndinni og framlelðandanum og gætir þess nú vel að fjölskyldum sé bannaður að- gangur. Nú er það að visu svo að á tslandi tiðkast það lítið sem ekki að fjöl- skyldur fjölmenni í hellu lagi í bíó. Yfirleitt hefur þar hver sína henti- semi, börnln fara í þrjúbió, pabbi læðist í flmmbíó eftir vinnu og ungl- ingarnir hafa samflot á kvöldsýning- ar. Mamma nær stundum að draga karlinn með á fimmtudögum en situr annars heima og laumast í vldeo svo lítið beri á. Þannig geta ólíklegustu myndir verið ágætlsfjölskyldumyndlr þótt hver skreppi í bíó þegar honum hent- ar og efni ekki til f jölskylduhópferða í því skynl. Kvikmyndaeftirlitið mun því ekkl koma auga á margar halarófur af fjölskyldum frá þvi að horfa sam- eiginlega á bíómyndir, að þá sjaidan sjónvarpið sýnir myndir, sem boð- iegar eru, má finna heilu fjölskyld- urnar fyrlr framan imbakassann í heimahúsum án þess að ástæða sé talin til aö hafa eftlrllt með þvi. Þannig vildi til á laugardaginn, daginn sem Hrafnlnn flýgur var frumsýndur, að sjónvarpið sýndl vestra með Rod Steiger og James Co- burn þar sem þeim félögum tókst að drepa meðleikara sina með reglu- legu mllllbili út alla myndina. Strá- féllu þar heilu hersveitirnar, eln- staka maður var myrtur með hníf- stungum og minniháttar bófar voru sprengdir í loft upp með köldu blóðl. Þar sem ófærð og veður komu í veg fyrir að elnstaklr meðlimlr f jöl- skyldna gætu skroppið á ball eða bíó þetta kvöldlð má telja fullvist að sjaldan hafi nokkur mynd gerst sam- nefnari fyrlr hina einu og sönnu f jöl- skyldumynd sem þessi villti vestri. Var þess þó ekki vart að kvikmynda- eftirlitið gerði húsrask á heimilum af þeim sökum. Sá sem þetta ritar hefur enn ekki haft tækifæri til að sjá nýjustu mynd Hrafns Gunnlaugssonar en ef hún er í stíl við fyrri myndir má þar eflaust finna brylling og hrollvekju í bland, enda flýgur Hrafnlnn víða. Sagt er að i myndinnl megl sjá slatta af mannvígum sem hvergi komlst þó með tæmar þar sem James Bond og aðrar nýmóðlns filmstjöraur hafi hælana. Og blessuð sé mlnning gamla Weissmiiller sem gerði Tarzan apabróður hetjuleg skil i frumskóginum og var vinsælastur ailra á þrjú-sýnlngu i þá góðu gömlu daga áður en kvlkmyndaeftirlitlð tók upp dyragæslu fyrir f jölskyldur. Ef svo er komið fyrir hetjumyndum og hrollvekjum sem framlelddar era í Bond-stíl af Islendingum að fjöl- skyldur fá ekki aðgang verður Hrafn einfaldega að sætta slg vlð aðsókn sem felst í einhleypingum og ein- stæðum mæðrum. Hjónum verður í mesta lagi hleypt inn hvoru í sínu lagi og svo geta menn sýnt passa um að þeir séu frásklldir ef böra eða annað samferðafólk vekja upp gran- semdlr um fjölskyldutengsl. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.