Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 28
28 DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984. í gærkvöldi____________I gærkvöldi LOÐNA - MEIRILODNA LAUN - MEIRILAUN Jákvæðu hliðar fréttanna í gær- kvöldi voru loðnufréttirnar og opnum skíðalyftunnar í Bláfjöllum. Loðna og meiri loðna — frábærar fréttir í öllum barlóminum. Skothríðimar í Beirút minna okkur illyrmilega á þvílík veröld þaö er' sem viö búum í. Og reyndar niður- stöður kjararannsóknarnefndar líka. Þaö er annars nokkuð merkilegt að könnun sem þessi hafi ekki verið framkvæmd fyrir löngu síöan. En þegar hún liggur fyrir og forráöa- menn hafa lagt spilin á borðiö fyrir framan Guðjón og alþjóö, ýmist meö nikki eða hvellu nei-i, að enginn treysti sér til að lifa af lægstu laun- unum, má þá ekki fara að búast viö niöurstöðum? Aöalheiöur Bjarn- freðsdóttir talaði tæpitungulaust í sjónvarpsal í gærkvöldi og sjálfsagt fyrir herrana aö fara að hennar dæmi og taka umbúðirnar utan af oröagjálfrinu. 1 landinu eru til peningar, til dæmis stóri sjóöurinn sem af er tekið í niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum. Ef satt reynist aö úr þeim sjóöi fari hluti til niöurgreiðslna á ísgerð, brauðbakstri og í ávaxtasafa — því ekki að millifæra þetta fé til lág- launahópanna? Annars var um dagskrá sjónvarps aö segja aö í öllum atriðum var valdataflið ríkjandi, fréttunum utan úr heimi, umræðuþættinum um launamálin og ekki síst hjá hinum óþekkta andstæðingi Agöthu Christie. Síöasti liðurinn var þó sviösettur og leiddi hugann frá launakjörum og skothvellum, sem sagt prýðisgóður flótti frá raunveruleikanum. Þórunn Gestsdóttir. Steinunn G. Guðnadóttir lést 30. janúar sl. Hún fæddist í Reykjavík 19. september 1924. Foreldrar hennar voru Lovísa Svava Jónsdóttir og Guðni Jóhannesson. Eftirlifandi eiginmaður Steinunnar er Guðmundur Jónasson. Þau eignuðust tvö börn. Utför Stein- unnar veröur gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Magnús Ármann stórkaupmaður, Gils- árstekk 8, sem lést 2. febrúar, veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. febrúar kl. 15. Ragnheiður Jónasdóttir frá Vestra- Miðfelii, er lést á Dvalarheimilinu Höföa á Akranesi 31. janúar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstu- daginn 10. febrúar kl. 14.30. Minningarathöfn um Einar Sigurösson, Odda Fáskrúðsfirði, verður í Fossvogskirkju í dag, mið- vikudaginn 8. febrúar, kl. 16.30. Jónína Pálsdóttir lést í sjúkradeild Hrafnistu að morgni mánudagsins 6. febrúar. Guðjón Guðmundsson, Stórholti 28, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13.30. Sigrún Gísladóttir, fyrrverandi tón- Ustarfulltrúi Ríkisútvarpsins, Sól- vallagötu 33, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. febrúar ki. 13.30. Bálför Guðmundar R. Oddssonar, fyrrv. forstjóra, verður gerð frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 9. febrúar kl. 15. Jóhanna J. Magnúsdóttir lést í Elli- heimilinu Grund 6. febrúar. Gyða Strange Nieisen lést í sjúkrahúsi í Danmörku 5. febrúar sl. Ólöf Sigurðardóttir Roper, Sólvalla- götu 38 Keflavík, lést í sjúkrahúsi Keflavíkur 6. febrúar. Sólveig Jensdóttir fyrrv. yfirhjúkr- unarkona andaðist í Eliiheimilinu Grundf aðfaranótt 6. febrúar. Tapað - fundið Úr fannst í Vogahverfi Fundist hefur karlmannsúr í Vogahverfi. Upplýsingar í síma 30224. Svartur högni týndur Svartur högni, hvítur á trýni, bringu og fótum með svarta höku og svartan blett á höfði, hefur tapast frá Smiðjustíg. Hann var með rautt hálsband. Ef einhver verður var við hann eða veit um örlög hans hafi hann vin- samlegast samband við Kattavinafélagið, sími 14594. Tilkynningar Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum 10 ára Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum er 10. ára um þessar mundir en það var stofnað 3. febrúar 1974. Fljótlega eftir stofnun félagsins var byrjað að halda skemmtanir fyrir aldraða á vegum félagsins. Byggðar voru íbúðir fyrir aldraða að Suðurgötu 12—14 og í kjallara þess húss er miðstöð og félags- aðstaða styrktarfélagsins. Leikhúsferðir í Þjóðleikhúsið eru einu sinni á ári og einnig hefur leikfélag Keflavíkur ávallt boðið öldruðum á leiksýningar sínar. Nú eru einnig sérdeildir í föndri og spilum í Grindavík, Ytri- Njarðvík og Sandgerði. Þá hefur félagiö til sölu minningarkort og rennur ágóðinn til Ianglegudeildar. I tilefni afmælisins mun félagið hafa opið hús í Stapa sunnudaginn 5. febrúar kl. 16—19 þar sem allir velunnarar félagsins eru velkomnir. Boðið verður upp á kaffi og kökur og flutt verða skemmtiatriði. Þorrablót félagsins verður haldið sunnu- daginn 19. febrúar, kL 12 á hádegi. Æskan 1. tölublaö 85. árgangs Æskunnar er komið út. MeÖal efnis í þessu blaöi er: Gagnvegir, viötöl viö gamalt fólk, Blái fuglinn eftir Natahu Sats, Emmess ísgeröin: elsta og stærsta ís- gerö landsins, Umskiptingurinn eftir Selmu Lagerlöf, „Þaö er svo gaman í stúku”, bamastúkan Kvistur heimsótt, Tónlistarskól- inn á Akureyri, fengu gullverölaun í teikni- samkeppni, „Iss, þetta er hundleiöinlegur jólasveinn”, Ása og Þorsteinn í viötali, Rauöi —kross Islands: Hlekkjuöu fangarnir í Toulon, Júh'us, myndaopna, Ertu góöur leynilögreglu- maður?, Þekjulitasamkeppni Hörpu, Hinum megin viö hafið: Grænland, annar kafli, Mynd mánaðarins, Róbinson Krúsó, endir, Gleöilegt ár, myndasíöa, fjölskylduþáttur í umsjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík: Lifum lífinu fyrir Island, eftir Vigdísi Einarsdóttur, Mánuöirnir eftir V.E., ömmudrengur, saga, H.T. þýddi, poppmúsík í umsjón Jens Guömundssonar, Æskupóstur- inn, Mjólkurdagar á Akureyri, Afmælisböm Æskunnar í janúar, Viö bökum sjálf, skessu-, trölla- og draugasögur eftir böm í Seljaskóla, Bíbí, saga, jólagetraun Æskunnar smávax- inn knapi, Norræna félagiö. Afmælisbörn Æskunnar 1984, Hvaö heitir landiö?, Hollar venjur, Veistu þaö?, föndur, felumyndir, hús- ráö, skrýtlur, krossgáta o.m.fl. Ritstjóri er Grímur Engilberts. Otgefandi er Stórstúka Islands. Fréttatilkynning frá Skíðaráði Reykjavíkur Á vegum Reykjavíkurborgar og í samráði við SKRR munu veröa troönar skíöagöngu- brautir í borgarlandinu. Um þessar mundir em göngubrautir á Klambratúni, Fossvogi og Laugardal. Þá eru troðnar göngubrautir á skíöasvæöunum í nágrenni Reykjavíkur, í Bláfjöllum, Hveradölum, Hamragili og Skálafelli. Skíöaráö Reykjavíkur hvetur alla til aö taka þátt í Trimmlandskeppninni sem hófst 15. jan.og lýkur 30. apríl nk. Skráningar- spjöldum er dreift á skíðasvæðunum. Trimmnefnd KSRR. Skrifstofa Al-Anon aðstandenda alcoholista, Traðarkotssundi 6. Opin kl. 10—12 alla laugardaga, fundir alla daga vikunnar. Kvenfélag Breiðholts .heldur aðalfund í Breiðholtsskóla þann 13. febrúarnk.kl. 20.30. Hallgrímskirkja — Starf aldraðra í sal kirkjunnar fimmtudaginn 9. febrúar kl. 14.30. Dagskrá og kaffiveitingar. Safnaðarsystir. Fyrirlestur um sjálfstæða kvikmyndagerð í Bandaríkjunum Prófessor Albert Milgrom, forstöðumaður kvikmyndastofnunar Minnesotaháskóla, heldur fyrirlestur í kvöld, miðvikudagskvöld, kl, 20.30 í Menningarstofnun Bandaríkjanna, Neshaga 19, og fjallar um sjálfstæða kvik- myndagerð í Bandaríkjunum. Fyrirlesturinn er á ensku og er hann án aðgangseyris og öll- umopinn. Svart hvítur draumur — tón- leikar 1 kvöld miðvikudaginn 8. febrúar verða haldnir tónleikar í norðurkjallara M.H. Þar Sumar í öðru landi Nú gefst ungu fólki kostur á að sækja um sumardvöl erlendis á vegum AFS á Islandi. Hægt er að velja um dvöl í einhverju eftirtal- inna Evrópulanda. Danmörku, Finnlandi, Portúgal, Spáni, Frakklandi, Þýskalandi og Englandi og auk þess í Bandaríkjunum. Hér er um að ræða bæði námsdvöl og fjöl- Kvæðamannafélagið Iðunn heldur árshátíð í Lindarbæ laugardaginn 11. febrúar. Hefst hún með borðhaldi kl. 19. Kammertónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands Aðrir kammertónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands á þessu starfsári verða í Gamla bíói á morgun, fimmtudaginn 9. febr., og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru eftirtalin verk: Snorri Sigfús Birgisson: „Himni” fyrir strengjasveit, F. Mendelssohn: Fiðlukonsert, op. posth., P. Tsjaíkovskí: Serenaða í C-dúr fyrir strengjasveit, op. 48. Snorri örn Snorrasön í náttsöng í Hallgrímskirkju I kvöld, miðvikudag 8. febrúar kl. 22.00, efnir Listvinafélag Hallgrímskirkju til náttsöngs að vanda. Snorri Öm Snorrason lútuleikari flytur lútu- tónlist eftir Luis Milan, Francesco da Milano og John Dowland og kirkjugestir sameinast í flutningi tíðagjörðarinnar. Samverastundin tekur rúma hálfa klukkustund og er öllum opin. Fyrirtæki Stofnaö hefur veriö félagið Fjárfest- ingar hf. í Reykjavík. Tilgangur félagsins er alhliöa fjárfestingastarf- serrii og eignaumsýsla. I stjóm eru: Guðmundur Amason, formaöur, munu hljómsveitirnar Svart hvítur draumur og Kirkjugarðar sannleikans koma fram og flytja frumsamin myrkraverk. Skemmtunin hefstkl.21. skyldudvöl, nema í Englandi, þar leggja ungl- ingar 17—19 ára stund á sjálfboðavinnu. Aldurstakmark fyrir hin Evrópulöndin er 15—18 ára en 15—30 ára aldurstakmark fyrir Bandaríkin. Þar er hópnum skipt niður eftir aldri. Umsóknartími rennur út 13. febrúar. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa samtak- anna, Hverfisgötu 39, Reykjavík, sími 25450. Brekkugerði 34, Reykjavík, Ámi Árna- son, Suðurbraut 6, Hafnarfiröi og Helga Lára Guömundsdóttir, Hátúni 26, Keflavík. Stofnendur auk ofan- greindra eru: Halla Aöalsteinsdóttir, Brekkugeröi 34, Reykjavík, Aöalsteinn Ámason, Hýrumel, Hálsasveit og Margrét Guömundsdóttir, Suöurhólum 4, Reykjavík. Stofnað hefur veriö félagið G. Þor- steinsson & Johnson hf. í Reykjavík. Tilgangur félagsins er verslun í heild- sölu og smásölu, rekstur fasteigna og skyldur atvinnurekstur. I stjórn eru: Garöar Þorsteinsson, formaöur, Laugarásvegi 53, Reykjavík, Geir Garöarsson og Þorsteinn Garöarsson, Laugarásvegi 53, Reykjavík. Stofn- endur auk ofangreindra eru: Þórir Garðarsson, Laugarásvegi 53, Reykja- vík, Olafur Garöarsson, Sogavegi 123, Reykjavík, Amþór Garöarsson, Lang- holtsvegi 120B, Reykjavík, Bergljót Garöarsdóttir, Sleight 3001 Iioyds Lane, Oakton, Virginia, USA., og Geir Gunnarsson, Blikanesi 17, Garðabæ. Stofnaö hefur verið félagið Már hf. í Reykjavík. Tilgangur félagsins er verslunarstarfsemi alls konar, iönaöar- og þjónustustarfsemi, rekstur fyrirtækja svo og önnur starfsemi sem slíku getur tengst. I stjórn eru: Már Jónsson, formaöur, Goðheimum 17, Reykjavík, Eyjólfur Pálsson, Melgerði 20, Reykjavík, Pétur Már Jónsson, Snekkjuvogi 23, Reykjavík og Hugrún Jónsdóttir, Snekkjuvogi 23, Reykjavík. Stofnandi auk ofangreindra er: Sturla Jónsson, Hraunbæl8, Reykjavík. Stofnaö hefur verið félagiö Mída, auglýsingaþjónusta hf. í Reykjavík. Tilgangur félagsins er alhliða auglýsingaþjónusta, ráögjöf, áætlanir, hönnun, kynningarstarfsemi og almannatengsi, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og hliöstæö verkefni. Stofnendur félagsins eru: Birgir Andrésson, Lokastíg 20, Reykjavík, Bima Siguröardóttir, Kópavogsbraut 87, Kópavogi, Bjöm Vignir Sigurpáls- son, Eikjuvogi 28, Reykjavík, Bryndís Bella c PIH ®1 Kjóllinn sem ég keypti einu núm- eri of lítinn er orðinn tveimur númerum of lítill. Schram, Vesturgötu 38, Reykjavík, Gísli Sigurþórsson, Laugalæk 20, Reykjavík, Guömundur Oskarsson, Mávanesi 13, Garðabæ, Jóhannes Guö- mundsson, Einarsnesi 52, Reykjavík. Formaður félagsins var kjörinn Guð- mundur Oskarsson. Stofnaö hefur veriö félagiö Brimill hf. í Reykjavík. Tilgangur félagsins er umboðs- og heildverslun, rekstur fast- eigna og lánastarfsemi. I stjóm eru Svanur Þór Vilhjálmsson, formaður, Vesturströnd 15, Seltjarnamesi, Sveinn Kjartansson, Asvallagötu 69, Reykjavík og Helga Stefánsdóttir, Asvallagötu 69, Reykjavík. Stofnendur auk ofangreindra eru: Jens Þór Svans- son, Grenimel 14, Reykjavík og Kjartan Sveinsson, Ásgaröi 63, Reykjavík. Fyrsti félags- fundur Parkinson- samtakanna Parkinsonsamtökin á íslandi (félag til styrktar parkinsonsjúklingum) halda sinn fyrsta almenna félagsfund í fyrir parkinsonsjúklinga og aðstandendur þeirra í húsi Sjálfsbjarg- ar, Hátúni 23, á 2. hæö, næstkomandi laugardag klukkan 2 e.h. Á dagskrá fundarins eru almennar umræður um framtíöarstarf félagsins sem Hulda Guömundsdóttir, varaformaður félagsins, stjómar og erindi Gunnars Guðmundssonar prófessors um eöli parkinsonsjúk- dómsins. Á staðnum veröur boöið upp á veitingar. Þar sem þetta er fyrsti almenni fé- lagsfundurinn væri mikilvægt að sem flestir sem hafa þennan sjúkdóm og aöstandendur parkinsonsjúklinga komi til fundarins og geti tekið þátt í mótun starfseminnar frá upphafi., Parkinsonsjúklingar og aðstandendur þeirra úti á landsbyggöinni eru beönir aö koma á fundinn eöa láta skrá sig í félagiö í síma 23697, 36616 eða 24162. Formaður félagsins er dr. Jón Öttar Ragnarsson dósent. 90 ára er í dag, 8. febrúar, frú Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja á Egiis- stööum í Egilsstaöakauptúni, ekkja Sveins Jónssonar bónda þar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.