Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1984, Blaðsíða 30
30 DV. MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR1984. NYR UMBOÐSMAÐUR HAFNIR . Nýi umboðsmaðurinn okkar er Magnús B. Einarsson, Hafnargötu 6, sími 92-6958. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 97., 101. og 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Sólvalla- götu 25, þingl. eign Einars Péturssonar, fer fram eftir kröfu Olafs Thoroddsen hdl., Árna Guðjónssonar hrl. og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 kl. 13.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 92., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Sogabletti 6 v/Sogaveg, þingl. eign Ingvars Júlíusar Helgasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 92., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta i Nönnugötu 10A, tal. eign Finns Gíslasonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 kl. 15.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Laugavegi 32, þingl. eign Ölafs Valgeirssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Hafnarfjarðarbæjar, Landsbanka íslands og Ævars Guðmundssonar hdl. á eigninni sjálfri f östudaginn 10. febrúar 1984 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 92., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Sörlaskjóli 42 (fiskbúð), þingl. eign Bergþórs Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbi. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í Laugavegi 69, þingl. eign Jóns Sæmundssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldbeimtunnar í Reykjavík, Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Veðdeildar Landsbankans og Tryggingastofnunar ríkisins á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 ki. 10.45. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 92., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í Óðinsgötu 16, þingl. eign Guðjóns Þorkelssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 ki. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Grandavegi 39, þingl. eign Gunnars Sigurðs- sonar, fer fram eftir kröfu Sigurðar Sigurjónssonar hdl. og Gjald- heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn 10. febrúar 1984 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Frostaskjóli 3, þingl. eign Birgis Ágústssonar, fer fram eftir kröfu Hákonar Árnasonar hrl. og Skúla Pálssonar hrl. á eigninni sjálfri f östudaginn 10. febrúar 1984 kl. 14.00. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Góði dátinn Svejk heilsar SS-foringjanum að nasistasið. Góði dátínn Svejk i Þjóðleikhúsinu Á föstudaginn kemur frumsýnir Þjóðleikhúsið leikritið Góði dátinn Svejk í síðari heimsstyr jöldinni, eftir Berthold Brecht. Þar tekur hið fræga þýska leikskáld til við hina frægu persónu tékkneska rithöfundarins Jaroslav Hasek, dátann Josef Svejk, og færir hann einni heimsstyrjöld framar í tímann og nú ergir hinn góð- hjartaði dáti með læknisvottorð upp á fávisku ekki liðsforingja í her Austurríkiskeisara, heldur SS-for- ingja og Gestapo-menn. Eins og eðlilegt má teljast kemur sjálfur Hitler einnig við sögu þar sem hann svífur niður á sviðið á hnetti sínum og vill fræðast um af- stöðu hins almenna Evrópubúa til þúsund ára ríkisins. Þar um spyr hann aðstoðarmenn sína þá helstu, svo sem þá Göring og Göbbels. Og þeir svara honum eftir sinni bestu samvisku. Svejk situr þá eins og hans var ætíð vani, á öldurhúsinu Bikarnum. Þar er með honum vinur hans Baloun, sem í þessari heimsstyrjöld er ljós- myndari. Baloun sá, sem Hasek sagði frá, kom hinsvegar aldrei á Bikarinn. Ævintýri Svejks í síðari heimsstyrjöldinni spinnast af því aö Baloun er svangur. Langsoltinn væri kannski réttara orð, og til að forða Baloun frá því að grípa til heimsku- legra úrræða, lætur Svejk nokkur óheppileg ummæli falla svo aö Brett- schneider Gestapomaður heyrir til. Og þar með upphefjast ævintýri Svejks. Hann verður að stela hundi fyrir SS-foringja, lendir síðan í „sjálfviljugri nauðungarvinnu” og hrekst um í stríðinu, án nokkurrar stjórnar yfir örlögum sínum, en upp- fullur af góðvild og bjartsýni. Brecht skrifaði þetta leikrit árið 1943, skömmu eftir að orrustunni um Stalingrad lauk með sigri Rússa. Sú orrusta var upphafið að endalokum þúsund ára ríkisins. Og með þeirri orrustu lýkur leikritinu. Það er Bessi Bjamason, sem leikur dátann góða, en Gunnar Eyjólfsson leikur vin hans, ljósmyndarann Baloun. Sigurður Sigurjónsson leikur Hitler, en önnur stór hlutverk eru í höndum Þóru Friðriksdóttur, Gísla Rúnars Jóns- sonar og Baldvins Halldórssonar. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs- dóttir, leikmynd og búninga gerði Sigurjón Jóhannsson, en Hjálmar H. Ragnarsson stjómar tónlistarflutn- ingi, en tónlistin við verkið er eftir Hanns Eisler. Þýðingu gerðu þeir Þorsteinn Þorstemsson, sem þýddi laust mál, og Þórarinn Eldjám, sem þýddi bundið mál. Aö lokum má geta þess aö það er skemmtileg tilviljun að á frumsýningardaginn, föstudaginn 10. febrúar, átti höfundurinn Bert- hold Brecht einmitt afmæli. Gestapo-maðurinn Bretschneider les striðsfréttir yfir ölkrús á öldurhús- inu Bikarnum. Hinn sisvangiIjósmyndari Baloun forvitnast um matarvenjur SS-manna, afeinum slíkum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.