Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Blaðsíða 1
200 EINTÖK PRENTUÐ í DAG ITSTJÓRNSIM! 86611 AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 270; DAGBLAÐIЗVÍSIR 36. TBL.—74. og 10. ÁRG. — LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1984. vytuit- BJörgunarmenn á slysstað þar sem Fjallfoss liggur við bryggjuna á Grundartanga. A minni myndinni sést leiðari eða kaðalstigi. Hann hékk utan á skipinu ,í gærmorgun en þar var hann ekki kvöldið áður. DV-myndir Loftur Ásgeirsson. Fjórir skipverjar af Fjallfossi fórust: Harmleikur í höfn- inni á Grundartanga Sjá nánarábls.4 ogbaksíðu SKIPVERJARNIR AF FJALLFOSSISEM DRUKKNUÐU: Þorbjörn Sigurðsson skipstjóri, 45 'ára gamaii, tii heimilis að Vestur- bergi 159. Þorbjörn iætur eftir sig eiginkonu. Daníel Stefánsson háseti, 23 ára gamall, til heimilis að Grundar- tanga 54, Mosfellssveit. Daniel var ókvæntur. Fjórir skipverjar af Fjallfossi drukknuöu við höfnina á Grundar- tanga í fyrri nótt. Tildrög slyssins eru óljós. Líkur benda þó til að þrír skipverjanna hafi farist viö tilraun til aö b jarga þeim f jórða. Fjallfoss kom úr jómfrúferð sinni fyrir Eimskipafélag Islands til Grundartanga seint í fyrrakvöld. Atta manna áhöfn var á skipinu. Þrír þeirra fengu að fara heim til sín um miðnætti. Eftir voru fimm menn um borð; skip- stjórinn, 1. stýrimaður, 1. vélstjóri, bátsmaður og einn háseti. Um nóttina gerði hvassan vind. Um klukkan 4.30 vakti skipstjórinn vél- stjórann, Stefán Valdimarsson,og bað hann um að setja vélamar í gang því mikill súgur væri við bryggjuna. Til- gangurinn virðist hafa verið sá að koma fleiri böndum i land tij aö festa skipið betur. Eftir að vélstjórinn hafði ræst vélarnar fór hann inn í herbergi sitt og lagði sig. Þegar hann vaknaði undr- aðist hann að heyra engan umgang i skipinu. Þegar hann fór að kanna mál- ið var enginn annar maður um borð en hann. Hann hafði ekki tök á því að kanna hvort félagar hans heföu farið upp á bryggju því landgangurinn var horfinn. Dragsúgurinn var það mikill að skipið var eina þrjá metra frá bryggju. mun trúlega aldrei upplýsast. Þó er vitað að landgangur féll í sjóinn. Þrjú pör af skóm, sem fundust á dekki og kaðalstigi, sem hékk utan á skipinu bryggjumegin, benda til þess aö þrír skipverjar hafi verið að reyna að bjarga þeim f jórða úr sjónum. -KMU/klp. Gyifi Guðnason 1. stýrimaður, 39 ára gamall, til heimiiis að Holts- búð 21, Garðabæ. Gylfi lætur eftir sig eiginkonu og 3 börn. Kristínn Gunnlaugsson bátsmað- ur, 26 ára gamall, til heimilis að Kriunesi 13, Garðabæ. Kristínn var ókvæntur. Það var ekki fyrr en starfsmaöur á Grundartanga var hífður um borð í skipið í upphafi vinnudags um morgun- inn að samband náðist viö vélstjórann. Varð mönnum þá fljótlega ljóst aö slys hafðiorðið. Hvað þama raunvemlega gerðist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.