Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Page 40
FASTEIGNASALA BOLHOLTl 1 Símar 38877,687520 og 39424 Vfðfíjúgum - , 97099 AUGLÝSINGAR 1 éLS <ieL£m síðumúla33 SMÁAUGLÝSINGAR AFGREIDSLA SKRIFSTOFUR PVERHOLT111 ■ B mnanhneb semutan 'JSBBSSS&SS' • ir m ai|b<r rr'm jp OCC11 RITSTJÓRN OUU 1 1 SÍOUMÚLA 12-14 Frjálst óháö dagblaö LEKHJFLUGffóS AKUREYR SKIPAGÖTU 13 SvemrÞoroddsson apnumrinmFwomjj Waaoa X. / AFGREIÐSLA (96)25013 BLAÐAMAÐUR (96)26613 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1984. Búnaðarbanka- skákmótið: Sigurogstór- meistaraáfangi hjáJóhanni Jóhann Hjartarson tryggöi sér síðdegis í gær sigur á Búnaðarbanka- skákmótinu og áfanga að stórmeist- aratitli aö auki. Jóbann vann fyrst bíðskák sina viö Helga Olafsson eftir að Helgi hafði ekki mætt til aö tefla biðskákina. En Helgi var með kol- tapað tafl að mati sérfræðinga. Skák Jóhanns og stórmeistarans Lev Al- burts lauk síðan með jafntefli eftir aðeins 14 leiki. Jóhann hafði þá fóm- að drottningu fyrir hrók og biskup, en það er þekkt jafnteflisfóm sem sænski stórmeistarinn Ulf Andersson hefur beitt með góðum árangri. Oöram skákum var ekki lokið er DV fór í prentun en ljóst var að sigur- inn yröi ekki frá Jóhanni tekinn. Hann haföi hlotiö 8 vinninga af 11 mögulegum og aörir keppendur gátu mest náð 7,5 vinningum. Jóhann hlaut alþjóðlegan meistaratitil fyrir frammistöðu sína í mótinu og áfanga aö stórmeistaratitli að auki. TD að verða stórmeistari þarf að ná stór- meistaraárangri úr samtals 24 skák- um og vantar Jóhann því stórmeist- araárangur úr 13 skákum í viöbót til að fullur stórmeistaratitill sé í höfn. Þetta er í fyrsta skipti í hálfan annan áratug sem Islendingur nær áfanga að stórmeistaratitli. Eins og flestum mun kunnugt haf a þeir Frið- rik Olafsson og Guðmundur Sigur- jónsson einir Islendinga náð stór- meistaratitli. I gær lauk einnig biðskák Sævars Bjarnasonar og deFirmian úr 10. umferð og vann Sævar þar sigur á listilegri brellu. BH/GAJ. Ægir bjargar grænlenskum rækjutogara Varðskipið Ægir kom grænlenskum rækjutogara til hjálp- ar í gær eftir að vél togarans hafði bilað og hann velktist í 10 til 12 vind- stigum um það bil 70 mílur vestur af Barða út af Vestf jörðum. Tók Ægir togarann í tog og vora skipin væntan- leg til Isaf jarðar í morgun. Togarinn er um 300 tonn að stærð og er 14 manna áhöfn á honum. -GS. Banka- ræninginn ófundinn Bankaræninginn sem rændi útibú Iðnaðarbankans í Drafnarfelli í Breiðholti í fyrrakvöld var enn ófundinn umkvöldmatarleytiðí gær. Að sögn Þóris Oddssonar vara- rannsóknarlögreglustjóra var unnið að rannsókn málsíns í gærdag. Hann sagði að það væri ekkert nýtt að frétta af málinu. Talið er að ræninginn sé um tvítugt. -JGH LUKKUDAGAR 10. FEBRÚAR 26049 REIOHJOL FRÁ FÁLKANUM AO VERÐMÆTI KR. 10.000. Vinningshafar hringi í síma 20068 DV-mynd Loftur. Fjallfoss við bryggjuna á Grundartanga i gær. Erff iðleikar í fyrstu ferð Fjallf oss heim: Urðu að handstýra skip- inu alla leiðina heim Þegar slysið varð í höfninni í Grandartanga í fyrrinótt var Fjall- foss að koma úr jómfrúferð sinni fyrir Eimskipafélag Islands. Skipið var keypt i Þýskalandi og það afhent í Bremerhaven þann 18. janúar sl. Flugu skipverjamir átta út til Þýskalands og tóku við því þar. Eftir að hafa yfirfarið skipið í Bremerhaven var því siglt til Neap- house í Englandi þar sem það lestaði kol fýrir Sementsverksmiðjuna á Akranesi og átti að Iosa farminn á Grundartanga. Skipiö lagði af staö frá Grimsby á laugardaginn var en þangað þurfti skipiö að fara inn vegna vélarbilun- ar. Gekk ferðin heim mjög illa enda hreppti skipið hið versta veður á leið- inni. Bilaði sjálfstýringin á því skömmu eftir brottförina frá Grims- by og varð að handstýra því alla leið- ina heim. Reyndist Fjallfoss hið besta sjó- skip að sögn skipverjanna sem eftir lifa af skipshöfninni úr þessari jóm- frúferð þess fyrir Eimskip. -klp- „OKKUR BRA MIKIД — segir Ásgeir Jamil Allansson, einn ellef u krakka í rútu sem valt ofan í ,,Jú, okkur brá mikið og urðum öll hrædd,” sagði Ásgeir Jamil Allans- son, 14 ára piltur sem var einn ellefu krakka í skólabíl er valt ofan í Elliða- vatn um hádegisbiliö í gær. „Það flaut talsvert vatn i bílinn og þau yngstu byrjuðu strax að öskra. Ein stúlkan, 6 ára gömul, varð einna hræddust. Hún lá í vatninu í bílnum og ég var svo heppinn að vera nærri og tókst að toga hana upp úr vatn- inu.” Ásgeir sagði ennfremur að rútan hefði verið að koma niður brekku að Elliðavatnsbrúnni. Bíllinn hefði far- ið mjög hægt en vegna mikillar vind- hviðu þá fauk bíllinn til, fór á brúar- stólpann og valt hægt ofan í vatnið. „Við duttum öll á milli sætanna í veltunni.” „Við klifruðum síðan upp úr bíln- um, öll blaut. En það hjálpaði mikið að bóndinn á Elliðavatnsbænum sá óhappið og kom strax til okkar og viö f órum inn í hlý jan bílinn hans. ’ ’ Þess má geta að nokkuö var af systkinum í bílnum. Þannig var systir Ásgeirs, Diana, 12 ára, í bíln- um. -JGH Elliðavatn í gær—sjá nánar á bls. 2 Rútan á hvolfi niðri í Elliðavatni í gær. I rútunni voru ellefu krakkar úr Arbæjarskóla auk bílstjórans. Engan sakaði alvarlega og verður það að teljast ótrúleg mildi. DV-mynd S.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.