Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Blaðsíða 8
8 Dv^emBxeuftYiJFÉgfttÆH 1984/: Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglysingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Arvakur hf„ Skeifunni 19. Askriftarverðá mánuði 250 kr. Verð í lausasölu 22 kr. Helgarblað25kr. Stutt skrefírétta átt Flest bendir til, aö stjórnmálamaðurinn og alþingis- íiiaðurinn Lárus Jónsson fái ekki hina lausu stöðu banka- stjóra við Búnaðarbankann. Þrír af fimm bankaráös- i íönnum hafa lýst stuðningi við bankamanninn Jón Adolf ? 'uðjónsson. Að vísu er hugsanlegt, aö forustu Sjálfstæðisflokksins t ikist aö snúa upp á handlegg einhvers hinna þriggja bankaráðsmanna, sem allir eru í öðrum stjórnmálaflokk- um. En sinnaskipti af því tagi verða að teljast ótrúleg. Ef Lárus nær ekki stöðunni, er það í annað sinn á skömmum tíma, að stjórnmálamaður og alþingismaður erður að víkja fyrir bankamanni. Þá átti Framsóknar- okkurinn í hlut og bankinn var hinn sami og nú, Búnaöarbankinn. Það var stjórnmálamaðurinn og alþingismaðurinn ; tefán Valgeirsson, sem fyrir áramót beið lægri hlut í samkeppni við bankamanninn Stefán Pálsson um stöðu bankastjóra. Þau úrslit mörkuðu tímamót í samdrætti pólitískrar spillingar. Sem betur fer þykir ekki lengur sjálfsagt, að þreyttir slþingismenn hafi forgang að stöðum bankastjóra. Þetta er í sama dúr og í utanríkisþjónustunni, þar sem ekki þykir lengur sjálfsagt, að þreyttir ráðherrar veröi að sendiherrum. Að vísu er enn litið svo á, að embætti bankastjóra séu eign stjórnmálaflokka í hefðbundnum hlutföllum. Stefán Pálsson var ráðinn sem framsóknarmaður og Jón Adolf Guðjónsson verður ráðinn sem sjálfstæðismaður. Það, sem gerist, er, aö fulltrúar hinna stjórnmálaflokk- anna, sem ekki „eiga” hina lausu stöðu, koma sér saman i!m að ákveða sjálfir, hver skuli vera fulltrúi eignar- flokksins. Og þeir taka fagmenn fram yfir þingmenn. Þetta er minnkun spillingar, en ekki afnám hennar. Enn er næstum útilokað fyrir bankamenn að verða að hankastjóraefnum, nema með stuðningi valdamikils stjórnmálaflokks, helzt annaðhvort Sjálfstæðisflokks eða Framsóknarflokks. Þá eru einnig mjög fá dæmi um, að menn, sem hafa get- iö sér gott orö í starfi úti í þjóðlífinu, annars staðar en á alþingi, komi til greina, þegar bankaráð velja nýja bankastjóra. Væri slík tilfærsla þó mjög heilbrigð. Og ekki má gleyma því, að stjórnmálamenn helztu flokka á alþingi telja sig hafa forgang að kosningu í oankaráð. Þaö eru enn alþingismenn, sem persónulega á- kveða, hverjir verði bankastjórar og helztu deildarstjór- ar banka. Eðlilegra væri, að flokkarnir á alþingi kveddu til starfa í bankaráðum séfróða flokksmenn utan úr bæ. Þá yrði lík- legt, að fagmenn yrðu jafnan ráðnir í mikilvæg embætti, annaöhvort úr röðum bankamanna eða utan úr bæ. Bezt væri, að niður legðist hugmyndin um, að stjórn- málaflokkar eigi ákveðin sæti í bankaráðum og banka- stjórnum, svo og hliðstæð sæti í Framkvæmdastofnun og ýmsum sjóðum, sem skammta fé eins og bankarnir gera. Alþingismenn hafa nægilegt vald í löggjöfinni og með afskiptum sínum af framkvæmdavaldinu, sem felast í þingræðinu. Þeir eiga ekki að vera að vasast á öðrum valdasviðum til viðbótar, svo sem í fjármálum og fjöl- miðlum. Ráðning tveggja fagmanna sem bankastjóra Búnaðar- bankans er skref, en stutt skref, í rétta átt. Verulegum árangri verður ekki náð, fyrr en bankastjóraefni hætta að þurfa að veifa stuöningi við valdamikinn stjórnmála- flokk. Jónas Kristjánsson. Salt í grautinn salt í sárin ,,Eg aldist nú upp viö þaö að boröa hnausþykkan grjónagraut, og fékk kanilsykur út á hann á sunnudögum, þegar ég var strákur. Og mér þótti þaðbaragott.” Þessari yfirlýsingu sveita- mannsins var tekið meö algerri þögn. Velmeinandi háskólanemi viö borðsendann tók ofan gleraugun og pússaöi þau ótt og títt. Ihaldssamur viöskiptafræöingur, sem sat á móti mér, laut höfði og kleip meö þumal- fingri og vísifingri vinstri handar í nefbríkina, milli augnanna. Uti viö gluggann sat skáldlega sinnaður fríöleikspiltur, smyrsl augna vorra. Andlit hans var sem höggvið í stein nema hvaö (hnaus)þykk efrivörin titraöi ofurlítiö. I stuttu máli sagt, var andrúms- loftið rafmagnað. Sveitamaöurinn, sem eflaust hefur verið aö mestu leyti samsettur úr efnum sem ekki leiða rafmagn, hélt ótrauöur áfram. — Þaö er auövitað verra ef ekki eru til peningar fy rir salti í grautinn! Osaltaöur grautur er voöalegt óæti, bolla og sýndust engin merki þess að hún kæmi upp á yfirborðið á næst- unni. Háskólaneminn velmeinandi másaði mjög á gleraugu sín, meðan viöskiptafræöingurinn virtist alveg upptekinn af einhverju sem var að gerast utan viö gluggann, utan sjón- máls okkar hinna. Eg hóstaði ákaf- lega og lengi til þess aö þurfa ekki aðtakatilmáls. — Annars er óhollt aö boröa of mikiö salt. Eg las þaö einhvers staðar aö salt hækkaöi blóöþrýsting og ég held nú aö Islendingar hafi alveg nógu háan blóðþrýsting samt, þeir eru svo voðalega stressaöir. Svo þaö er kannski eins gott aö fólk fari aö borða ósaltan graut. Hann þagnaði aftur, en viö vorum engu f úsari aö taka til máls en áöur. — Finnst ykkur ekki Islendingar vera alltof stressaöir? Eg tek svo voöalega mikiö eftir þessu! Sjálfur legg ég höfuðáherslu á aö slappa alltaf vel af. Þaö er til dæmis voðalega gott fyrir sálina aö fara upp á fjöll ööru hverju og renna sér dálítið á skíöum. og svo kostar vegagerö og viðhald vega og snjómokstur auðvitaö sitt. En þaö kemur auövitaö á móti aö rík- iö hefur miklar tekjur af sölu á bílum og bensíni og þeim tekjum mætti sem best verja til niöurgreiöslu á inn- lendu satti ef neysla á því ykist viö þaö aö fólk slappaði af vegna skíða- iökana! Svo má ekki gleyma því aö fólk slasast gjarna þegar þaö er á skíðum og þjónusta viö slasaö fólk í heilbrigöiskerfinu er voðalega dýr. Þetta veröur auðvitað aö vega allt saman og meta og þar megum viö ekki gleyma mannlega þættinum því umfram allt veröum viö aö stefna að því að Islendingar njóti lífsfyllingar og hamingju á Islandi. Þaö er auövitaö voðalega mikilvægt og viö megum alls ekki gleyma því. Sveitamaöurinn þagnaði og beiö enn eftir svörum. En viö vorum allir eins og dáleiddir eftir þessa mögnuðu ræöu. Augnasmyrslið dró varimar andartak upp úr kaffi- bollanum til þess aö endurnýja súr- efnisbirgðirnar en flýtti sér aö kafa aftur. Háskólaneminn velmeinandi ^ " °- • ég viöurkenni það. En það er þaö sem ég hef alltaf sagt, aö þaö þýðir ekki aö reiða sig á fokdýrar innflutt- ar vömr. Þaö er þjóöhagslega óhag- kvæmt og beinlínis heimskulegt, þeg- ar viö getum framleitt þetta sjálfir hér heima. Þess vegna verður aö stækka saltverksmiðjuna, þarna, æ . . . hvar sem hún nú er, og gera Islendingum kleift aö kaupa alíslenskt salt í grautinn. — Þaö er alls ekki um þaö aö ræöa! Auk þess sem Lslenskt salt veröur aldrei neitt ódýrara en innflutt! Ihaldssami viðskiptafræöingurinn haföi nú litið upp og var voteygur, enda haföi hann klipið fast. — Nú, þá bara greiöum við þaö niöur! Annað eins hefur nú gerst! Og þaö er ekki hægt að ætlast til þess aö þjóðin lifi á saltlausum graut. Hann er svo voðalega vondur. Sveitamaöurinn þagnaöi og leit i kringum sig, bíðandi eftir svörum. En þau komu ekki. Efri vörin á augnasmyrslinu var á kafi í kaffi- Viöskiptafræöingurinn herti nú upp hugann og skaut inn athuga- semd. — Em skíöin ekki innfiutt? Væri þaö ekki óhagkvæmt? — Þetta verður auövitaö aö vega og meta, ég viðurkenni þaö. Allt orkar tvímælis þegar í ausuna er komið! Þaö má auðvitað segja aö ef fólkiö slappar almennt af, lækkar blóöþrýstingurinn, og þá er auövitaö meira svigrúm fyrir saltneyslu, sem kæmi þá minna aö sök! En salt kost- ar gjaldeyri. Og ef svo er tekið meö í reikninginn aö skíöi, bindingar og skíöafatnaöur er allt innflutt vara, og kostar þess vegna gjaldeyri, má auövitaö segja, aö þaö sé þjóöhags- lega óhagkvæmt aö hvetja fólk til þess aö stunda skíðaíþróttir! Svo er auövitaö ýmislegt í kringum þetta allt saman þar aö auki! Við megum ekki gleyma því aö menn þurfa aö komast til og frá skíöasvæðunum og þaö gera þeir á bílum sem eru innfluttir og kosta þess vegna gjald- eyri. Þaö sama má segja um bensín speglaöi sig í gleraugunum og þóttist alveg upptekinn. Eg lagði til atlögu viö þykka eplakökusneið af því þaö er dónaskapur að tala meö fullan munninn. Viöskiptafræðingurinn staröi á sveitamanninn, eins og gler- augnaslanga á óbóleikara, og vætti varir sínar ótt ogtítt meötungunni. I stuttu máli sagt játuðum viö allir uppgjöf meö þögninni. I rökræöum skiptast menn á skoðunum og reyna aö finna hugsanavillur í málflutningi andstæöingsins. En óráðshjali óupplýstra og ósvífinna oröháka veröur ekki svaraö meö rökum. Hann beiö enn um sinn eftir svörum og eftir því sem tíminn leið breikkaöi sigurbrosið sem lék um varir hans. Að lokum leit hann á klukkuna og tilkynnti aö hann yröi aö hafa sig á brott: — Eg þarf aö mæta á bankaráðsfund. Viö sátum þöglir nokkra stund eftir aö hann var farinn, en kvödd- umst síöan daprir í bragði, og héldum hver til síns heima, bugaöir menn. : FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.