Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Side 2
DV. LAUGARDAGUR11. FEBRUAR1984.
Skólabillinn, lítill Merzedes Bens-kálfur, niðri í EHiðavatni. / biinum voru eiiefu krakkar og bílstjóri. Enginn
slasaðist alvarlega. Þykir það ótrúleg mildi. D V-m ynd S.
SKÓLABÍLL MEÐ ELLEFU
KRÖKKUM ÍSTEYPTIST
OFAN íELUÐAVATN
Skólabíll með ellefu krökkum og
bílstjóra valt ofan í Elliðavatn upp úr
hádegi í gær. Enginn meiddist alvar-
lega og veröur það að teljast sérstök
mildi miðaö við aðstæöur.
Bíllinn, sem er af gerðinni
Mercedes Benz, var áð koma úr Ar-
bæjarskólanum og var á leiðinni að
Elliðavatnsbænum. Við brú rétt hjá
bænum kom mikil vindhviða og
skipti engum togum aö bíllinn fauk
út í vatnið.
Vatnið var ísilagt þar sem þetta
gerðist og skall bíllinn harkalega
á hliðina á ísinn. Geysileg hræðsla
greip um sig í bílnum sem skiljanlegt
er. Eftir því sem DV kemst næst
tókst öllum krökkunum aö komast af
sjálfsdáðum upp úr bilnum.
Þau voru öll mjög köld, blaut og
hrakin er sjúkralið og lögreglu dreif
að. Þótt ótrúlegt kunni að virðast
reyndist aðeins einn krakkanna
meiddur. Tönn hafði losnað og
sprungiö fyrir á vörinni.
Flestir krakkanna eiga heima á
bæjum og húsum í nágrenni Elliða-
vatnsins. Þeir eru allir í Árbæjar-
skólanum.
-JGH
ENDARNIR NA EKKISAMAN
— ársútgjöld vísitöluf jölskyldunnar 690 þúsund, árstekjurnar aðeins 515 þúsund
Vísitöluf jölskyldan á ekki sjö dag-
ana sæla. Miöað við að útgjöld henn-
ar séu sambærileg og 1979—1980 eru
þauíallt 57.500 krónur á mánuði. En
Fullfermi í súginn íjanúar
Hin geysilega loðnuveiði undan-
farna daga gefur tilefni til að ætla aö
útgerðir loðnubátanna séu að gera
þaö gott. Ef síðustu dagar eru skoö-
aöir einir og sér er útkoman mjög
góð.
Hins vegar héldu margir bátanna
til veiöa fyrstu daga janúarmánaöar
og fengu ekkert allan þann mánuö
þrátt fyrir miklar tilraunir. Þessi
hrota nú byrjaði ekki fyrr en í þess-
um mánuði og laun sjómanna miðast
við mánuð í senn. Því voru þeir allir
á kauptryggingu hjá útgeröunum all-
an janúarmánuð.
Af viðtölum við útgerðarmenn í
gær áætla þeir aö beinn útlagður
kostnaður í janúar í aðeins olíu og
mannalaun nemi 600 til 700 þúsund
krónum á hvem stærri loönubát án
þess að bein hafi fengist úr sjó.
Lauslega áætlaö er það eitt fullfermi
sams konarbáts.
-GS
tekjumar eru ekki nema 42.900 krón-
ur á mánuði, samkvæmt formúlum
Þjóðhagsstofnunar. 34% vantar upp
á að tekj ur nægi f yrir útg jöldum.
Líklegt er þó, aö flestra mati, að
fjölskyldan hafi tekið upp æöi stífan
sparnað undanfarna mánuði og aö
útgjöld hennar séu því ekki jafnmikil
og þau vom þegar Hagstofan kann-
aði neysluna 1979—1980. Þó þykir
þaö með ólíkindum ef hún getur
sparað þriðjung útgjaldanna. Og sé
svo ekki þarf hún annaðhvort að
leggja á sig meiri vinnu en áður, sé
hana aö fá, ganga á eignir ellegar
safna skuldum.
Ársútgjöld vísitölufjölskyldunnar,
hjóna í launþegastéttum með tvö
böm, reiknuö 3,66 manneskjur, eru
592 þúsund krónur i neyslu, sé hún
sambærileg og kom fram í áður-
nefndri könnun Hagstofunnar, og
þar að auki skattar. Eftir á greiddir
skattar hjóna munu vera á bilinu
15—18% af tekjum og þá er milliveg-
urinn 98 þúsund í skatta á árinu. Alls
eru því útgjöldin 690 þúsund krónur á
heilu ári á núgildandi verðlagi.
Samkvæmt úrtaki Þjóöhagsstofn-
unar um tekjur hjóna árið 1982 og
framreikningi á þeim eftir þeim for-
múlum sem stofnunin notar um
stöðu launþega nú ættu árstekjur
vísitölufjölskyldunnar í ár að vera í
kringum 515 þúsund krónur, á verð-
lagi þessa mánaðar. HERB
Fiskverðið hækkaði um
fjögur prósent í gær:
Skopleg
niðurstaða
— segirformaður
Sjómannasambandsins
— sjómenn íhuga
aðgerðir
Yfimefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins ákvaö 4 prósent meðalhækkun
fiskverðstil31.maínk. Varþettasam-
þykkt með atkvæöum kaupenda og
oddamanns, en fulltrúar sjómanna og
útgerðarmanna lögðust gegn svo lítilli
hækkun.
Oskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambandsins, lét m.a. bóka eft-
irsér: „Þegar þorskafli minnkar niö-
ur í 220 þúsund tonn verður afkomu-
brestur hjá sjómannastéttinni. Þaö
vekur furðu og verður að teljast skop-
legt að vísindaleg markaðsviðmiðun
skuli gefa sömu niðurstöðu og launa-
rammi ríkisstjómarinnar. ”
Annars voru nefndarmenn sam-
mála um þær breytingar á verðhlut-
föllum sem breikka bil á milli fyrsta og
annars flokks, og á milli slægðs og
óslægðs fisks, lækkun á karfa- og
ufsauppbót en verðuppbætur á annan
fisk.
Sjómenn létu i veðri vaka að fisk-
verð hefði þurft að hækka mun meira
þar sem þeir hefðu dregist svo aftur úr
öðrum í launum og að ef þaö yrði ekki
nema fjögur prósent væri óhjákvæmi-
legt að grípa til aðgerða til að rétta
hlutsinn. ■GS.
r
„Avallt óvissa við
leiðtogaskipti í
einræðisríkjum”
— segirGeir Hallgríms-
son utanríkisráðherra
„Eg tel fráfall Andropovs auðvitað
áfall fyrir Sovétríkin,” sagöi Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra er DV
kannaöi viðbrögð hans við fráfalli for-
seta Sovétríkjanna.
„Það er ávallt óvissa bundin við
leiðtogaskipti i einræðisríkjum og von-
ir stóöu til í upphafi valdaferils
Andropovs að leið opnaðist til betri
samskipta austurs og vesturs. En á
síðari hluta hins stutta valdaferils
hans seig fremur á ógæfuhliðina. Það
verður þó ef til vill ekki skrifað á reikn-
ing Andropovs þar sem ekki er vitað
hve miklu hann réð um stefnu Sovétríkj-
anna er hann var svo alvarlega veikur
að hann lét ekki sjá sig á alfaraleiö.
En við skulum vona að Sovétríkjunum
auðnist aö fá þann leiðtoga sem snýr
sér með opnum hug að því að bæta
samskipti austurs og vesturs,” sagði
Geir Hallgrímsson. -GAJ.
©
, AUT*fiaAN°,,
^yjlMIM3K
Smids
TsltSo* 83722
o
suzuki BHiASYNING
OPIÐ í DAG FRÁ KL. 10-17
IMÝR SUZUKISA 310 É " M