Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR11. FEBRUAR198'
Álviðræðurnar í Ziirich:
Skiptust á
skoðunum
Gögn vegna endurskoðunar samn-
ings ríkisins og Alusuisse um Isal og
vegna samnings um tvöföldun álvers-
ins voru til umræðu í Ziirich í Sviss í
gær og fyrradag. Samninganefnd ríkis-
ins og fulltrúar Alusuisse, svo og full-
trúi Landsvirkjunar skiptust á skoðun-
um. Ekki dró til samninga um neitt
samningsatríðanna.
Rætt var um breytingar á ramma-
samningi aðila og verðtryggingu orku-
verðs til álversins, samkeppnisstöðu
Isals á álmarkaönum, stækkun álvers-
ins og skattakerfi.
Fram aö næsta fundi, í mars, munu
sérfræðingar fjalla sérstaklega um
viðmiðun vegna orkuverös og um
skattamál.
HERB
Ríkisútvarpið:
MÁLFAR
í MOLUM
Utvarpsráð hefur skipað nefnd til að
hressa upp á málfar í útvarpinu.
„Okkur er öllum ljóst að þessi mál eru
ekki í nógu góðu lagi og eru nokkrir
okkar á þvi að um þverbak keyri á rás
2 á köflum,” sagði Eiður Guðnason,
alþingismaður og fulltrúi í útvarps-
ráði, í samtali við DV. „Þetta verður
að laga og að þvi vinnum við.”
Hluti útvarpsráðsmanna er iðinn við
að hlusta á dagskrá rásar 2 og hefur af
henni miklar áhyggjur en Arni
Bjömsson, fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í ráðinu, segir hina nýju móður-
málsnefnd eiga ekki síður að snúa sér
að málfarinu á rás 1: „Það er skoðun
mín að engan eigi að ráða til starfa við
útvarpið nema sá hinn sami geti
sannað hæfiii sína í mæltu og skrífuðu
máli. Skólapróf ein duga ekki, Ríkisút-
varpið verður sjálft að prófa sitt fólk.”
Að sögn Þorgeirs Ástvaldssonar,
stöðvarstjóra á rás 2, liggja ekki fyrir
neinar sannanir um að málfar í bein-
um útsendingum hjá sjónvarpi eða á
rás 1 sé eitthvað betra en hjá sinu fólki.
„Vissulega höfum viö orðiö vör við
ýmsa vankanta, ambögur og dellur og
það verður leiðrétt. Hjá okkur hafa
unnið um 30 manns við þáttagerð á
aldrínum 18 ára til fertugs. Þetta er
allt fólk sem hefur gengið í gegnum
islenska skólakerfið i lengri eða
skemmrí tíma og tali þetta fólk jafn-
óvandað mál og sumir vilja vera láta
þá segir það meira um stöðu íslenskrar
tungu í dag en fólkið sjálft.”
-Em.
Grásleppuhrogna-
framleidendur:
Ein sam-
tök á ný?
Samtök grásleppuhrognaframleið-
enda halda aöalfund sinn í dag i húsi
Slysavarnafélagsins á Grandagarði og
hefst hann klukkan 14. A fundin-
um mun verða gerð tilraun til að sam-
eina alla grásleppuhrognaframleiö-
endur á landinu á ný i ein heildarsam-
tök en samtökin klofnuöu sem kunn-
ugt er f yrir rúmu ári.
öllum grásleppuhrognaframleið-
endum er því boðið á fundinn í dag því
það er talið öllum aðilum til hagsbóta
að hafa ein stór samtök frekar en mörg
smá.
-SÞS
25200
Stór-
BÍLASÝNING
LAUGARDAG og SUNNUDAG KL. 2-5
Sýnum framhjóladrifs - og fjórhjóladrifs bíla
Bíla sem láta ekki að sér hœða í ófœrðinni
IMISSAN MICRA
„Fisléttur, frískur bensínspari, sem leynir á sér“ sagði Ómar
Ragnarsson í yfirskrift á grein sinni í DV 29/12 sl. í greininni
segir m.a. „en mér fannst bíllinn betri, en ég átti von á,
þægilegri og skemmtilegri, en vonir stóðu til, og það virtist
vera erfitt að fá hann til að eyða bensíni svo nokkru næmi,
þótt frísklega væri ekið.“
NISSAN MICRA GL kr. 259.000.-
NISSAN MICRA DX kr. 249.000.-
NISSAN CHERRY
Einn vinsælasti og þrautreyndasti fjölskyldubíllinn á íslandi
í meira en 10 ár.
Fáðu þér NISSAN CHERRY nákvæmlega eins og þú hefur
óskað þér hann, þ.e. 4ra gíra, 5 gíra eða sjálfskiptan. Þú getur
valið milli þriggja vélastærða - þriggja eða 5 dyra og ótal lita.
NISSAN CHERRY 1000 DX kr. 261.200.-
NISSAN CHERRY 1500 GL sjálfsk. kr. 319.500.-
subaru Highroof Van,
fjórhjóladrifinn:
Þeir hjá Subaru eru þeirrar skoðunar að gróf torfærutæki eigi
engan einkarétt á fjórhjóladrifi. Subaru Highroof 4WD er
sparneytin, rúmgóð og þrælsterk sendibifreið. En hún ber
leynivopn innan klæða. Það er fjórhjóladrifið. Með einu
handtaki breytist þessi auðmjúki þjónn í ófærujötun sem gera
má enn sterkari með því að skipta í lága gírinn.
Subaru Highroof Van 4WD kr. 225.000.-
subaru Hatchback,
fjórhjóladrifinn:
Það kemur sér illa fyrir marga að komast ekki til vinnu þegar
færð er slæm. Ert þú kannski einn þeirra? Eða ert þú einn af
þeim sem hafa gaman af að takast á við ófærðina og bjóða
henni byrginn? Þú þarft ekki tröllvaxinn jeppa. Subaru Hatch-
back er svarið. Hann gerir ófærðina að spennandi leik og
þjónar þér þess á milli eins og viljugur og skemmtilegur
gæðingur.
Subaru Hatchback, beinskiptur með vökvastýri kr. 396.000.-
Loksins, loksins, loksins er komin ný sending af Trabant árg. ’84 og nú
er hinn sívinsæli Trabant með ýmsum endurbótum eins og t.d.
höfuðpúðum, sportlegri felgum, 12 volta pottþéttu rafkerfi, betri hljóð-
einangrun o.fl.
Trabant Station kr. 102.000.-
Trabant fólksbíll kr. 99.000.-
Tökum flestar gerðir eldri bíla upp í nýja.
VERIÐ VELKOMIN
OG AUÐVITAÐ VERÐUR HEITT Á KÖNNUNNI
Ingvar Helgason h/f.
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI ®33560