Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1984, Blaðsíða 12
dv.taogárd'agur ‘i 1: februar i384:
ÚTHAFSRÆKJA
Þeir útgerðarmenn sem hug hafa á föstum viðskiptum á
komandi sumri hafi samband við okkur sem fyrst i síma
95 - 5458 millikl. 19 og 21.
Rækjuvinnslan Dögun hf.,
Sauðárkróki.
LAUSSTAÐA
Staöa fulltrúa á Skattstofunni í Vestmannaeyjum er laus til
umsóknar. Æskilegt er aö umsækjendur hafi lokið prófi í lög-
fræði eða viðskiptafræði. Umsækjendur með haldgóða bók-
haldsþekkingu koma einnig til greina.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf sendist skattstjóranum í Vestmannaeyjum fyrir 10. mars
nk.
Fjármálaráðuneytið, 8. febrúar 1984.
BRONC01982
6 cyl.f beinskiptur, sem nýr. Þessi glæsivagn er til
sýnis og sölu á Bílasölunni Skeifunni.
Símar 84848 — 35035.
Urval
LEIKFÉLAG ÓLAFS-
F JARBAR1LEIT
AD MORSINGJA?
Þad hvílir mikil leynd yfir starfsemi Leikfélags Ólafsfjardar þessa dagana. Bœjar-
búar hafa vissulega haft spurnir af því að í Tjarnarborg kemur hópur fólks saman
reglulega til aö œfa leikverk undir stjórn Audar Jónsdóttur. Flestir vita líka að
Músagildran heitir það og Agatha Christie er höfundurinn en svo er það ekki meira.
Allir eru sem lokuð bók þegar reynt er uð grafast fyrir um efni verksins. Morðgáta er
þar ráðin en hver drap hvern og hvers vegna?Ekkert fœst upp gefið umþað nema fara
á leikritið. Frumsýningin er um nœstu helgi.
Ómar Aðalbjörnsson smiðar leikmyndina við Músagildruna.
Leikfélag Olafsfjarðar var endur-
vakiö meö þessu nafni áriö 1961 en áö-
ur höfðu ýmsir hópar stundað leik-
starfsemi í bænum. Síöan hefur veriö
sýnt aö meöaltali eitt leikhúsverk á
ári.
Sveinn Stefánsson er núverandi for-
maöur Leikfélags Olafsfjaröar. Hann
var kosinn til þess embættis í fyiTa.
Sveinn sagöi aö þetta félag byggi viö
góöa aöstööu miöað við mörg svipuð fé-
lög í nágrannasveitarfélögum. ,,Viðer-
um sjálfum okkur nóg meö kastara og
erum smám saman aö bæta viö annan
tækjakost. I fyrra fengum viö ný leik-
tjöldtildæmis.”
I ekki stærri bæ en Olafsfiröi þýöir
lítið fyrir leikfélag aö hafa margar
sýningar. Sveinn sagöi aö 600 manns
teldist hámarksaösókn heimamanna
og félagsheimiliö Tjarnarborg tekur
um 300 manns. Til að uppsetning gæti
borið sig yröi því aö leita út fyrir
byggöarlagiö. I þetta skiptiö væru uppi
hugmyndir aö fara eitthvaö vestur fvr-
ir, líklega í Skagafjöröinn. Sýningarn-
ar á undanförnum árum hafa annars
gengiö ágætlega og þaö leyndi sér ekki
aö þar var leikstjóranum, Auöi Jóns-
dóttur, þakkaö mikiö. Nú er þriöja áriö
í röö sem hún kemur til aö sviðsetja
fyrir Olafsfiröinga. Ariö 1982 færöi hún
líf í Þorlák þreytta og í fyrra Karlinn í
kassanum. Alls sáu um 1300 manns
Þorlák þreytta og var þar slegið met.
Þrir skálkar höföu haft metið með
milli 800 og 900 manns.
Þetta var í fyrsta skipti á æfingu sem handritinu var sleppt. Hvíslarinn var
þvi auðvitað i stóru hlutverki, hann heitir Sigurlaug Hrafnsdóttir.
I þetta skipti skoöar Leikfélag Olafs-
fjaröar heim sakamálanna og sýnir
Músagildruna eftir Agöthu Christie.
Leikaramir eru 8 og hófust æfingar 15.
janúar. Frumsýningin verður 18.
febrúariTjamarborg.
„Þaö hefur gengiö mjög vel aö fá
fólk til aö taka þátt í þessu,” sagöi
Sveinn Stefánsson. ,,Að vísu er þetta
fámennt stykki en viö stefnum að því
aö hafa fjölmennari sýningu næst. Viö
erum sérstaklega ríkir af kvenfólki
núna, tel ég, og áhuginn er yfirleitt
mikill hjá fólki. Uti í bæ er okkur líka.
sýndur vemlegur áhugi. Viö auglýst-
um fyrir tveimur árum eftir fatnaöi og
munum og höfum fengiö geysimikiö. Á
því sviöi erum viö eiginlega oröin for-
rík. I þessu stykki er til dæmis allur
fatnaður fenginn á þennan hátt. ”
Olafsfiröingar hafa sýnt leiklistinni
áhuga á fleiri vegu. Fyrr í vetur stóö
leikfélagiö fyrir námskeiöi í framsögn
og leikrænni tjáningu. Þátttakendur
voru ekki aðeins félagar í Leikfélagi
Olafsfjarðar því námskeiðiö var aug-
lýst fyrir almenning. Mikiö fjölmenni
lét skrá sig og var kennt í tvennu lagi.
Tókst þetta meö ágætum, sagöi Sveinn
formaður og sum atriðin af námskeiö-
inu voru notuð á kabarettsýningu sem
leikfélagið og Iþróttafélagiö Leiftur
stóöu sameiginlega að um jólin. Þaö
fylgdi með aö fullur áhugi væri fyrir
frekara námskeiöahaldi af þessu tagi
til eflingar leiklistar í Olafsfiröi. Vafa-
laust á mikið eftir aö leika í Tjamar-
borg á komandi árum og ekki þarf aö
kvarta undan kaffileysinu á æfingum.
Hún Jóna Antonsdóttir hefur séö um
kaffið síöan 1963 og það hefur ekki fall-
iö niður eitt einasta ár. Ekki er aö sjá
aö hún láti neinn bilbug á sér finna,
skrítin væri líka kaffilaus leikæfing.