Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Page 3
DV: FEMMTUÐAGUR 16tFEBRÖAR 1984
3
c
Lausaskuldum bænda
breytt í föst lán
Skuldbreytingin nemur minnst 150 milljónum króna
Ríkisstjómin hefur lagt fram
frumvarp þess efnis að veðdeild
Búnaðarbankans verði heimilað aö
gefa út nýjan flokk bankavaxtabréfa
er notuð skuli til þess að breyta
lausaskuldum bænda i föst lán. Hér
er miðað við lausaskuldir bænda er
þeir stofnuðu til vegna f járfestinga á
jöröum sínum árin 1979 til 1983, að
báðum árum meðtöldum, svo og
lausaskuldum vegna jarðakaupa og
kaupa á vélum, bústofni og fóðri á
sama tíma.
I lagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir að lánabreytingar þessar fari
aðeins fram gegn veði í fasteignum
bænda á bújörðum og skulu ekki
nema hærri fjárhæð en 75% af mats-
verði veðsins. Ákvörðun um önnur
lánakjör skal tekin af stjórn
veðdeildar Búnaðarbankans ásamt
fulltrúm Búnaðarfélagsins og Stétt-
arsambands bænda í stjórn Stofn-
lánadeildar landbúnaðarins að
fengnu samþykki landbúnaðar-
ráðherra.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
auglýsti í nóvember síðastliðnum
eftir umsóknum þeirra bænda sem
óskuöu eftir aö breyta lausaskuldum
í föst lán. Alls bárust 605 umsóknir
vegna skulda að f járhæð 150 milljón-
ir króna. Áætlað er að sú fjárhæð
muni hækka þegar gögn berast um
skuldastöðu umsækjenda árið 1983.
-ÖEF.
Sjópróf um vegna
Fjallfossslyssins
að mestu lokið
Trúlega mun aldrei upplýsast hvað
raunverulega gerðist þegar fjórir
skipverjar af Fjallfossi drukknuðu í
höfninni á Grundartanga í Hvalfirði í
síðustu viku.
Landgangurinn, sem féll í sjóirjn,
hefur veriö rannsakaður. Að sögn
Hauks Bjarnasonar rannsóknarlög-
reglumanns fannst ekkert athuga-
vert við landganginn.
Sjóprófum er að mestu lokið. I frétt
frá sjódómnum segir að líkur bendi
til þess aö skipverjar hafi ætlað sér
aö ganga betur frá landfestum aftur
af skipinu og hafi þá einn þeirra
þurft að fara í land. Slys hafi þá orðið
með þeim hætti að landgangur
skipsins hafi fallið í sjóinn með
skipverjann sem í land ætlaöi að
fara. Hinir skipverjarnir þrír hafi
svo fallið í sjóinn er þeir reyndu
björgun og allir fjórir farist. Mjög
hvasst var á þeim tíma sem slysið er
taliöhafaorðið. -KMU.
ANNRIKIHJA
LOFTFERÐA-
EFTIRLITI
Loftferðaeftirlit Flugmálastjómar
hefur átt óvenju annríkt að undanfómu
við rannsóknir á óhöppum, slysum og
öðmm atvikum tengdum flugi. Þetta
bætist ofan á önnur dagleg störf sem
em meðal annars eftirlit með flug-
vélum, flugliðum og flugrekstri, út-
gáfa skírteina og prófun flugmanna.
Rannsóknin á þyrluslysinu í Jökul-
fjörðum hefur tekið mestan tíma.
Ohapp á Stykkishólmsflugvelli, þegar
Arnarflugsvél rakst utan í snjó-
ruöning, og annað á Olafsfjarðarflug-
velli, þegar vél hjá Flugfélagi Norður-
lands rann út af, hafa þurft sinn tíma.
Flugmenn Flugleiða hafa einnig
verið iðnir við að skapa loftferðaeftir-
litsmönnum meiri vinnu að und-
anförnu. Þeir hafa veriö yfirheyrðir
vegna Boeing-þotu sem þrjár tilraunir
þurfti til aö lenda í Kaupmannahöfn
fyrir nokkm, vegna DC-8 þotu, sem í
byrjun þessa mánaðar fór undir lág-
markshæð í aöflugi að Keflavík, og
loks vegna DC-8 þotunnar sem rann út
af flugbraut í Keflavik síöastliöinn
sunnudag.
-KMU.
Kaupmátturinn
minnkað um 24,9%
Kaupmáttur kauptaxta hefur
minnkað um 24,9% að meðaltali frá
desembermánuði 1982 til jafnlengdar
1983 miðað viö vísitölu framfærslu-
kostnaðar. Þetta kemur fram í nýút-
komnu fréttabréfi Kjararannsóknar-
nefndar.
Þar er einnig greint frá kaupmáttar-
breytingum nokkurra lífeyris-
tryggingabóta almannatrygginga
miðað við vísitölu framfærslu-
kostnaðar. Frá síðasta ársfjórðungi
1982 til síðasta ársfjórðungs 1983 hefur
kaupmáttur elli- og örorkulifeyris
minnkað um 23,4%, kaupmáttur
barnalifeyris hefur minnkaö um
23,47% en kaupmáttur mæðralauna
miðað við 3 börn eða fleiri hefur
minnkað um 7,85% á þessu tímabili.
-OEF.
Umræðufundur
um bókmenntir
I kvöld, 16. febrúar, stendur Félag
bókmenntafræðinema við HI fyrir
umræðufundi um íslenskar bókmennt-
ir. Matthías Viöar Sæmundsson
bókmenntafræðingur, Silja Aðalsteins-
dóttir bókmenntafræðingur, Einar
Kárason rithöfundur og Sigurrós
Erlingsdóttir nemandi flytja fram-
söguerindi, en síðan verða frjálsar um-
ræður. -óbg.
OPID VIRKA DAGA 9—19
LAUGARDAG 10—17
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
BILL
ÁRSINS
UNO, ÞESSI
GAL VANISERAÐI
MEÐ6ÁRA
RYÐVARNARÁBYRGÐ
HVERGIBETRIIUÖR
1.
2.
3.
Þú semur um útborgun, alltniö-
ur í 75.000 kr. meöan viö seljum
þessa viöbótarsendingu.
Viö tökum gamla bílinn sem
greiöslu uppí þann nýja. Þaö er
sjálfsögö þjónusta, því bílasala
er okkar fag.
Eftirstöövarnar lánum viö og
reynum aö sveigja greiöslutím-
ann aö getu þinni.
UNO 45 SUPER, AÐEINS
KR.233.000.-Á GÖTUNA
Viö viljum aö sem flestir geti eignast þennan
frábœra bíl og höfum því barist hart í því aö
halda innkaupsveröinu niöri. Gengisþróun
undanfarinna mánaöa hefur einnig hjálpaö
til þess vegna kostar UNO ekki fleiri krónur
en raun ber vitni.