Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Page 17
DV. FIMMTUDAGUR16. FEBRUAR1984
17
Lesendur
Lesendur
Bifreiðakaup
öryrkja
Rikkihringdi:
Nú á næstunni fer fram úthlutun
leyfa til öryrkja aö fá felld niöur ýmis
gjöld vegna bifreiðakaupa. Fyrir
marga öryrkja eru bílakaup gífurlegur
baggi og reyndar aðdáunarvert aö
fólk meö skerta starfsgetu skuli geta
keypt svo dýra hluti sem bíla. Þaö er
hægt meö góðri aðstoð nánustu
ættingja og vina.
Oryrkjar geta ekki bara labbað inn í
næstu bifreiðaumboö og keypt sér bíl.
Þaö henta ekki allir bílar öryrkjum,
þeir þurfa aö hafa ýmsan útbúnaö sem
auðveldar þeim aksturinn. Auk þess aö
vera samgöngutæki þá eru bifreiðar
oft eini starfsmöguleiki öryrkja. Þaö
er því miklu meiri nauösyn en
munaöur fyrir öryrkja aö eiga bíl.
Sumir eru svo heppnir aö fá eftirgjöf
af kaupveröi bifreiöarinnar en sú
eftirgjöf er ekki nema brot af þeirri
eftirgjöf sem ráöherrar fá þegar þeir
kaupa sér bíla. Það væri því ekki mikið
aö fara fram á meiri eftirgjöf af kaup-
veröi bíla til öryrkja. Þetta er þaö
mikiö spursmál um möguleika öryrkja
til framfærslu aö þessi eftirgjöf sé
nægjanleg. Hún kemur þó aö góöum
notum en þaö þurfa sem flestir
öryrkjar aö hafa bíl til umráða. Einnig
ættu þeir aö fá aö gefa upp rekstrar-
öryrkjar eiga oft í erfiðleikum með að
komast feröa sinna. Þá getur verið
gott að eiga bíl til aö vera ekki of háður
öðrum. En þaö hafa ekki allir öryrkjar
efni á aö kaupa sér bíla.
kostnaö bifreiða sinna til frádráttar
skatti. Eg vona aö þeir sem geta
komiö þessu hagsmunamáli öryrkja í
betra horf taki viö sér og geri allt sem í
þeirra valdi stendur. Allt veröur aö
gera til aö bæta hag þessa fólks sem
getur ekki setið viö sama borö og viö
hin, allavega hvaö vinnu snertir.
Auðgildi ofar
manngildi?
Baldur Garðarsson skrifar:
I DV1. febrúar er kjallaragrein eftir
einhvern Hannes Gissurarson sem
nefnist „Otímabærar athugasemdir”.
I greininni eru færð rök fyrir því aö
kjöroröin „manngildi ofan auögildi”
séu vitleysa og stefna Framsóknar-
flokksins sé þar meö byggö á misskiln-
ingi.
Hannes vill aö auðgildi sé ofar
manngildi og rökstyöur þaö með því
aö fólk eigi aö hafa rétt til aö selja ást
sína, tilfinningar og böm.
Eg er ekki framsóknarmaður og ætti
ekki aö halda uppi neinum vörnun fyrir
þann flokk (framsóknarmenn eru full-
færir um þaö ef þeim finnst grein
Hannesar þess viröi). Hins vegar sé ég
fulla ástæöu til að vara fólk viö þeim
hugmyndum sem Hannes setur fram
um forgangsrööun „gilda” (mann-
gildi, auðgildi). Rök mín eru þessi;
vændi er ekki þekkt á Islandi og veröur
vonandi ekki. Þeir Islendingar sem
vilja kaupa þá þjónustu veröa aö leita
annaö. Þaö er misskilningur Hannes-
ar, sem ef til vill stafar af ókunnug-
leika, aö skyndikonur þessar stundi
iðju sína af einhverri hugsjón eöa af
umhyggju fyrir körlum. Langflestar
þessara kvenna eru ómenntaöar
og/eða atvinnulausar og gjarnan eitur-
lyfjaneytendur.
I öðru lagi þá kemur sálfræöiþjón-
usta ekkert viö því sem Hannes er aö
réttlæta. Og í þriðja lagi þá er verslun
meö börn óréttlætanleg meö öllu.
Hannes stingur upp á „hvítri verslun”,
þaö er löglegri verslun meö fólk. Eg vil
Þaö er misskilningur aö skyndikonur
stundi iðju sina af einhverri hugsjón
eöa af umhyggju fyrir körlum. Lang-
flestar þessara kvenna eru ómenntað-
ar og/eða atvinnulausar og gjarnan
eiturlyfjaneytendur.
benda Hannesi á kennslubækur í
mannkynssögu fyrir byrjendur, er þar
rakiö hvenær þrælahald var aflagt í
hinum ýmsu löndum.
Grein Hannesar er slíkt endemisbull
aö mér ofbýöur. Eg vil aö hann biöji
lesendur DV afsökunar opinberlega.
DV bið ég aö hlífa lesendum viö slikum
sóöaskrifum framvegis. Aö lokum
krefst ég þess að DV upplýsi hvaö þessi
Hannes Gissurarson hafi greitt fyrir
birtingu á umræddri grein (eða öfugt).
Hannes H. Gissurarson fær greiösl-
ur fyrir sínar greinar, rétt eins og allir
fastir kjallarahöfundar sem skrifa
fyrir DV.
UPPGERÐIR GÁMAR
FYRIR KÆLI- OG FRYSTIVÖRUR
LEIGA EÐA SALA
Hentugt fyrir: skipaféiög, bændur, fisk-
verkendur og verslanir. Einnig sem bala-
og beituklefar. Ef þig vantar frysti/kæli-
gám getum við útvegað hvort. heldur
sem er: Trailer, skipagáma, dráttarvagna
eða frystikæli sem getur staðið hvar sem
er, jafnt utan sem innan dyra.
Einnig bjóðum við hraðfrystiklefa'með
afköstum eftir þörfum hvers og eins.
STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR
Kynntu þér kjörín. — Sendum upplýsingabæklinga. —
Við höfum lausnina.
FRYSTI-OG KÆLIGÁMAR hf.
SKÚLAGÖTU 63. SÍMI 25880.
Fallegur sófi á daginn
--------------------------------->
Gott rúm á nóttunni
MARKMIÐ OKKAR ER AÐ SELJA BESTU HÚSGÖGNIN Á
BESTA VERÐINU.
Opið laugardag kl. 10-12
og 14-17.
Húsgagnasýning sunnudag kl. 2-5 e.h.j
TM-HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - sími 86822
Síðumúla 4 — sími 31900