Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Síða 34
t‘3et HAUaaa'í .ai hu oaqutmmi'h .va DV. FIMMTUDAGUR16. FEBRUAR1984 34 Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti Stjórnarfundir Hafskips haldnir út um allan bæ Stjóm Hafskips hf. hefur tekið upp þá nýbreytni að halda stjómarfundi í hinum ýmsu fyrirtækjum stjórnar- manna tU skiptist og skoöa rekstur viðkomandi í leiðinni. Að sögn Jóns Hákonar Magnússonar hjá Hafskip var fyrsti fundurinn haldinn fyrir skömmu í Sól hf. og þótti mönnum svo vel til takast aðákveðið er að halda þessu áfram. „Þetta em menn úr öllum greinum, innflutningi, iönaöi, verslun, útflutningi og fiskiðnaði, svo eitthvað sé nefnt. Tilgangur með þessum fundum er að stjórnarmenn- irnir kynnist hver öðmm betur og ekki síst rekstri hver annars,” sagði Jón- ■<------------------«T Innan um sendingu af nýjum vélum í herbúðum Davíðs Sch. Thor- steinssonar. Björgólfur Guðmunds- son hjá Hafskipi, Páll Jónsson í Pólaris, Víðir Finnbogason í Teppa- landi, Davíð Sch. Thorsteinsson í Smjörliki, bræðurair Gunnar og Ölafur Ölafssynir í Miðnesi og Ragnar Kjartansson b já Hafskipi.- Klakahallir Sambandsins — fiskverkunarstöð KASK á Höfn framleiðsluhæst Þróun vélataxta SKÝRR síðustu fimm árin: 24 prósent lækkun á ári Vélataxtar Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar, SKVRR, voru lækkaðir um 5 prósent um sl. áramót en þegar þróunin er skoöuö lengra aftur í tímann kemur í ljós að þessi þjónusta hefur að jafnaði lækkað um 24 prósent á ári undanfarin fimm ár. miöað viö vísitölu vöru og þjónustu. Raunvirði taxtanna hefur því lækkaö um 75 prósent á tímabilinu sem jafn- gildir því að þótt veröbólga hafi allan tímann verið 31,5 prósent hefðu taxt- amir ekkert hækkað. Stefán Ingólfs- son í Fasteignamatinu telur að lík- lega megi rekja þriðjung lækkunar. raunverðs til tækniþróunar og tvo þriöju til aukningar á verkefnum. Bjami JakobS' son áf ram for- maður Iðju Þar sem aöeins eitt framboö, listi stjórnar og trúnaöarmannaráös Iðju, barst áður en framboösfrestur rann út var stjórnin sjálfkjörin og Bjarni Jakobsson endurkjörinn for- maður, en hann hefur gegnt for- mennsku í Iðju frá 76. Talsverðar breytingar urðu á stjórn og trúnaðarmannaráði. I stjóm nú eru: Guðmundur Þ. Jóns- son varaformaður, Guðmundur Guðni Guðmundsson ritari, Sigurjón Gunnarsson gjaldkeri og Hannes Olafsson, Hildur Kjartansdóttir og Valborg Guðmundsdóttir meðstjórn- endur. Fjögur framleiösluhæstu Sam- bandsfrystihúsin á síöasta ári voru Fiskverkunarstöð Kaupfélags A,- Skaftfellinga á Hornafiröi með 3.400 tonn. Þá kemur Meitillinn hf. í Þor- tókshöfn meö 3.070 tonn, Kirkjusand- ur hf. í Reykjavík meö 2.950 tonn og Fiskiöjusamlag Húsavíkur hf. meö Skýrslutæknifélag Islands ætlar aö halda fund á miðvikudaginn kemur um erfiðleika á framsetningu ís- lensks máls á tölvum. Og það vanda- mál að nú, þegar þetta mál er að veröa æ framkvæmanlegra bæði tæknilega og fjárhagslega, kemur í ljós að margskonar tilbúinn hugbún- aður, sem hefur náð vinsældum hér, er þannig að breytingum til batnaðar verður vart við komiö. Hjá Plasteinangrun hf. á Akureyri voru á síöasta ári framleiddir um 103 þúsund fiskkassar úr plasti og af þeim voru 45 þús. kassar fluttir út. Þessi útflutningur fór í ýmsar áttir, m.a. til Noregs, Kanada, Grænlands, Færeyja, Suður-Afríku, Nýja-Sjá- lands og Bandaríkjanna. Gunnar Þórðarson frvkstj. sagði í viðtali við Sambandsfréttir að reiknað væri með aukningu í þessum útflutningi á næstunni, m.a. til Noregs og Kanada.- Plasteinangrun hf. flytur líka út 2.820 tonn. Mesta aukning varð hjá Meitlin- um, 760 tonn, þá hjá Búlandstindi hf. á Djúpavogi, 560 tonn, og loks hjá Hraðfrystihúsi Breiðdælinga, 550 tonn. Alls framleiddu Sambands- frystihúsin öll samtals 39.600 tonn sem er 15 prósent aukning frá í fyrra. Framsöguerindi veröa flutt' bæði frá sjónarmiöi notenda og seljenda. Framsögumenn veröa: Baldur Jóns- son dósent, forstöðumaöur máltölv- unar HI, dr. Oddur Benediktsson, prófessor í tölvufræði, Olafur Engil- bertsson, frvkstj. Microtölvunnar, Vigfús Asgeirsson, þjónustustjóri KOS hf., og Orn Kaldalóns, kerfis- fræðingur IBM. Fundurinn hefst kl. 11.30 í Norræna húsinu. trollkúlur sem fara mest til Kanada og Frakklands og svolítið af neta- hringjum hefur farið til Noregs. A síöasta ári var útflutningsvelta fyrir- tækisins um 14 millj. kr. á móti 4,5 millj. áriðl982. UMSJÚN: GISSUR SIGURDSS0N OG ÓLAFUR GEIRSSON. Ætla íslenskan og tölvurnar aldrei að sættast? — Skýrslutæknifélagid efnir til f riðarráðstef nu ínæstu viku Plasteinangrun hf. á Akureyri: 45 þúsund f iskkassar fluttir út í fyrra Öra Ingólfsson, Oskar Eggertsson og Asgeir Erling Gunnarsson, fulltrúar Pólsins, taka við viðurkenningu úr hendi Karls Friðriks Kristjánssonar. — Verðlaunasjóður iðnaðar- ins heiðrar Pólsmenn Nýlega voru í sjötta sinn veitt heiöursverðlaun úr Verðlaunasjóöi iönaðar- ins sem Kristján Friðriksson, kenndur við Ultíma, hafði forgöngu um aö stofna í þeim tilgangi aö örva til dáöa á sviði iðnaðarmála og vekja athygli á þeim afrekum sem unnin hafa verið á því sviöi. Rafeinda- og tölvufyrirtækiö Póllinn hf. á Isafiröi, sem stofnaö var ’66, hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir þróun tölvuvoga og ýmiss konar annars hagræöingarbúnaðar fyrir fiskiðnaðinn. Um 500 . cgir hafa verið framleiddar fyrir yfir 60 frystihús víðs vegar um land auk samvalsvéla og flokkunarvéla sem talið er að auki nýtingu um 1 til 1,5 prósent. Þegar sjóðurinn var stofnaður sagði Kristján m.a.: „En mesta auðlind okkar tel ég aö sé fólgin í fólkinu sjálfu, hugviti þjóðarinnar.” — Húsnæöi Sparisjóösins í Keflavik að Suðurgötu 6. A innfelldu myndinni er Páll Jónsson sparisjóðsstjóri. Sparisjóðurinn íKefla- vík orðinn sá stærsti Þær breytingar hafa nú orðið á stærðarhlutföllum sparisjóða að Spari- sjóöur Keflavíkur mun nú vera orðinn stærsti sparisjóður landsins. Heildar- innstæöur hans eru um 530 milljónir króna en 440 milljónir króna hjá Spari- sjóði Hafnarfjarðar, sem lengi hefur verið stærsti sparisjóðurinn. Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis er svo í þriðja sæti og vaxandi umsvif Sparisjóös vélstjóra hafa nú lyft honum upp í f jórða sæti. Sparisjóður Keflavíkur hefur útibú í Njarðvík og í Garði. Sparisjóðsstjóri er Páll Jónsson. — Höfðabakkaafgreiðslunni er ætlað að þjóna ört vaxandi athafnahverfi Artúnshöfðans. Landsbankinn opnar Höfðabakkaafgreiðslu A föstudaginn var opnaöi Landsbankinn afgreiðslu að Höfðabakka 9, Aöal- verktakahúsinu og er þetta tíundi afgreiðslustaður bankans í Reykjavík. Jafnframt er þetta þriöja afgreiðslan sem bankinn opnar á tæpum tveim árum en áður hafði ekki ný afgreiðsla verið opnuð frá árinu ’68. Afgreiöslan verður starfrækt í tengslum við Arbæjarútibú Landsbankans og undir stjórn Richards Þorlákssonar, útibússtjóra þar. Sex til sjö manns munu starfa í nýju afgreiðslunni og þar verður öll al- menn bankaþjónusta veitt. Við innréttingu á Höfðabakkaafgreiöslu voru haföar í huga miklar framfarir í afgreiðsluháttum sem unniö verður að í öllum Landsbönkunum á næstu tveim árum. —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.