Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Page 3
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS1984.
3
Verðmætt f rímerkjaumslag á uppboði í Frankf urt f dag:
Stolið úr Þjóð-
skjalasafninu?
Frímerkjaumslag, sem fullyrt er aö
horfiö hafi úr Þjóðskjalasafni Islands,
veröur boöiö upp hjá fyrirtækinu Ebel í
Frankfurt í Vestur-Þýskalandi í dag.
Lágmarksverð er 25 þúsund V-þýsk
mörk eöa um 280 þúsund krónur.
„Þessu var einhvem tíma, ég veit
ekki hvenær, stoliö úr Þjóðskjalasafn-
inu. Eg er sannfærður um þaö. Tengsl-
in eru augljós,” sagði frímerkjasafn-
ari í Reyk javík sem ekki vill láta nafns
sínsgetið.
í'
y
7190 S1
Umslagiö var sent frá Noregi til Is-
lands sennilega áriö 1872. Þaö er stílað
á Gustav Johannesen á Seyöisfirði en
komst aldrei til skila. Á umslagið hefur
verið skrifuð athugasemd: Oborg 10,
sem þýöir að tíu skildingar hafi veriö
óborgaðir.
Sama athugasemdin, Oborg 10, er
meö sömu rithönd á öðru umslagi sem
sendiráð Islands í Washington.
fyrir atbeina utanrikisráðuneytisins,
hafi afskipti af fyrir áratug, árið 1974.
Sendiráöiö lét stöðva uppboð á umslag-
inu vegna grunsemda um að því hefði
verið stolið af Þjóðskjalasafninu. Um-
slagið var dregið til baka en ekkert
gerðist frekar og málið f éll í gleymsku.
Bæði þessi umslög eru talin tilheyra
vanskilapósti. A öldinni sem leið og
fram á þessa endaði slíkur póstur á
Þjóðskjalasafninu.
Ums/agið sem boðið verður upp i Frankfurt i dag. Það er talið sent frá
Noregi tii ísiands árið 1872.
Jhm// </’yú/), • /t •
Q./e/c/^‘77rt.á
/cl. t/- /Úíf
/Z<7/
Utanrikisráðu-
neytið iót stöðva
uppboð á þessu
umslagi árið 1974
vegna grunsemda
um að þvi hefði
verið stolið af
Þjóðskjalasafninu.
Mynd af bakhlið-
inni er fyrir neð-
an.
Útf lutningsfyrirtækið Selnes gerir
dilkakjötssölusamning við bandarískt fyrirtæki:
Tíu þúsund
tonn á næstu
f imm árum
— á mun hærra verði en Sambandið hefur fengið
Utflutningsfyrirtækið Selnes hf.
hefur náð samningum við banda-
ríska fyrirtækið O. Jónsson Inter-
national Corporation um sölu á tíu
þúsund tonnum af dilkakjöti sem á
að afgreiða á næstu fimm árum. Þar
af eiga þúsund tonn að fara til út-
landa á næstunni og síðan tvö þúsund
tonn á ári.
Að sögn Andrésar Þorvarðarson-
ar í Selnesi á varan að fara niður-
skorin og vacumpökkuð og verða
allir hlutar dilkanna seldir.
Ef tilskilin útflutningsleyfi fást
mun Eimskip sjá um flutningana.
Andrés sagði í viðtali við DV i gær að
samningurinn væri upp á 700 milljón-
ir króna í heild þannig að kílóverðið
væri talsvert hærra en Búvörudeild
Sambandsins hefur fengiö fyrir út-
flutt kjöt til Bandaríkjanna hingað
til.
Er hann var spurður hvort slátur-
húsin þrjú, sem fullnægja kröfum
Bandaríkjamanna um útflutning til,
hefðu möguleika á að sinna þessu
verkefni taldi hann ekkert til fyrir-
stöðu að sláturhúsið á Selfossi fengi
slíkt leyfi til viðbótar og þá væri það
vandamál úr sögunni.
Andrés hefur að eigin sögn undir-
búið þetta mál í samvinnu við Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins, Slátur-
félag Suðuriands, sláturhúsin í
Borgamesi, á Sauðárkróki og
Húsavík, auk landbúnaðar- og við-
skiptaráðuneytis. A næstu dögum
hyggst hann sækja um útflutnings-
leyfi.
Til samanburöar flutti Búvöru-
deild Sambandsins út 30 tonn af
dilkakjöti til Bandaríkjanna í fyrra
og áformar 200 tonna útflutning í ár.
-GS
Smáauglýsingadeildin er
íÞverholti 11
og síminn þar er27022 U
,,Eg get ekki sannað á nokkurn hátt
að þessi frímerkjaumslög hafi
nokkum tíma verið hér,” sagði Bjarni
Vilhjálmsson þjóðskjalavörður í sam-
tali viðDV.
Bjarni sagði að árið 1914 hefði miklu
af vanskilapósti verið brennt en þó
ekkiöllu.
„Við eigum talsvert af frímerkjum.
Þau eru tryggilega geymd,” sagði
þjóðskjalavörður.
-KMU.
Tilboðífram-
kvæmdirvið
Blönduvirkjun
opnuð:
Lægsta tik
boðið nam
tæpum 316
milljónum
Opnuð hafa verið tilboð hjá Lands-
virkjun í gerð jarðganga og byggingu
stöðvarhúss neðanjarðar fyrir Blöndu-
'virkjun. Alls bárust 11 tilboð og nam
hið lægsta þeirra 315,7 milljónum
króna. Hæsta tilboðið nam ríflega 733
milljónum króna. Kostnaðaráætlun,
sem Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen vann fyrir verkið, nemur
486.4 milljónum króna.
Lægsta tilboðið reyndist komið frá
Jernbeton AS og Ellert Skúlasyni hf.
Næstlægsta tilboðið var frá Fum-
holmen AS og Hagvirkja hf. og nam
það 367,5 milljónum króna. Hið þriðja
var frá Hoyer Ellefsen AS, ABV og
Vörðufelli hf. og hljóðaði það upp á
368.5 milljónir króna.
I frétt frá Landsvirkjun segir að
bæði ofangreindar svo og aðrar tilboðs-
tölur geti breyst við nánari athugun til-
boða og einingarveröa þeirra. Meðan
slík athugun hafi ekki fariö fram ríki
því óvissa um niðurstöðutölur og röð
tilboða.
Nl:
NISSAN MICRA
Billinn sem Ómar Ragnarsson sagði að væri nánast útilokað að
fá til að eyða nokkru bensíni. Yfirskrift greinar Ómars í DV 29/12
um Micra var svona: „Fisléttur, frískur bensinspari sem leynir á
sér." En Nissan Micra leynir ekki bara á sér því Micra er gullfall-
egur og svo hlaðinn aukahlutum að sumir verða að taka upp
vasatölvuna til að geta talið þá alla.
WARTBURG PICKUP
Sumt verða menn að sannreyna til að trúa. Eitt af því eru hinir
frábæru aksturseiginleikar Wartburg. Er það aðallega að þakka
sjálfstæðri gormafjöðrun á hverju hjóli, miðstyrktri grind og
framhjóladrifi.
WARTBURG FÓLKSBÍLL KR. 140.000,-
WARTBURG STATION KR. 153.000,-
WARTBURG PICKUP KR. 115.000,-
NISSAN SUNNY COUPE
Nissan Sunny — sólskinsbíllinn — er fáanlegur i 14 gerðum. Ein
af þeim er Sunny Coupé fyrir þá ungu og ungu i anda. Sunny
Coupé er sportlegur og rennilegur með 84 hestafla vél, fram-
hjóladrifi og 5 gíra eða sjálfskiptur.
NISSAN SUNNY COUPÉ KR. 332.000,-
NISSAN SUNNY FÓLKSBÍLL, 4 DYRA, KR. 315.000,-
NISSAN SUNNY STATION KR. 331.000,-
NISSAN MICRA GL 259.000,-
NISSAN MICRA DL 249.000,-
TRABANT - 20 ÁR Á ÍSLANDI
Hinn sívinsæli Trabant með ýmsum endurbótum eins og t.d.
höfuðpúðum, sportlegr: felgum, 12 volta pottþéttu rafkerfi, betri
hijóðeinangrun o.fl.
TRABANT STATION KR. 105.000,-
TRABANT FÓLKSBÍLL KR. 102.000,-
" —"'i j ■"i","".ii'iw. i. . n v ■■ — ■ .. .. i VERIÐ VELK0MIN 0G AUÐVITAÐ VERÐUR HEITT A KÖNNUNNI:
EQ INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.
-JSS