Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Síða 6
6
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS1984.
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
Sæmundur
Guðvinsson^
Nú erhátío sterka
biórsins í Miinchen!
Víst er greinin
góð landkynning
Umsjónarmanni Feröasíöu er ljúft
aö játa að ekki haföi hann lesið grein-
ina í Sunday Express Magazine tii
hlítar, er sagt var frá henni, enda
vöktu hinar frábæru myndir fyrst og
fremst athygli undirritaös.
Eftir aö hafa fengið bréfið frá Ara
Trausta ias ég hins vegar umrædda
tímaritsgrein i heild og sá lestur
breytti í engu því áliti aö hér væri um
góða landkynningu aö ræöa.
Þessi atriði, sem Ari Trausti bend-
ir á sem vísvitandi blekkingar og
þvætting hagga því ekki aö mynd-
skreytt grein sem þessi í jafnvíð-
lesnu tímariti er fyrst og fremst góö
landkynning. Hún vekur áhuga á Is-
landi og náttúruundrum þess. Ekki
er vafi á að hún getur orðið mörgum
lesendum hvati til aö afla sér upplýs-
inga um Islandsferðir. Þá á ég ekki
við að þaö fólk hafi áhuga á aö feta í
fótspor þessara ævintýramanna
heldur hafi greinin, og þá ekki síst
myndirnar, vakið áhuga á landi og
þjóö.
Ekki efa ég að Ari Trausti hafi
fuEkomlega rétt fyrir sér varðandi
missagnir í umræddri grein. Þær eru
þó hvorki meira né verri en gengur
og gerist í Islandsgreinum sem ég
hefi lesið í erlendum blöðum og tíma-
Nymphenburgarhöll í Miinchen var fyrrum sumaraðsetur bæverskra þjoðhofðmgja en er nu
uð til meiriháttar tónleikahalds. Hallargarðurinn þykir mjög fagur og er skreyttur listaverk-
Sumarhúsahverfi í EIFEL.
Borg Hsta og leikvanga
I Miinchen eru 27 söfn sem
varðveita minjar liðins tíma og í
listaverkasöfnum og sýningarsölum
getur að líta listaverk jafnt frá fyrri
tímum sem samtímaverk. Nefna má
Alte Pinakothek, sem hefur að geyma
málaraiist 14.—18. aldar, meðal ann-
ars verk eftir Diirer og Rubens, og í
hinu heimsfræga Deutsches Museum
er rakin þróun náttúruvísinda og
tækni.
Þrátt fyrir list og sögu er Miinchen
langt f rá því að vera dautt safn, held-
ur þvert á móti. Stór hluti miðbæjar-
ins er lokaður allri bílaumferö og
prýddur blómum og trjám. Á þess-
um göngusvæðum versla allir
Miinchenbúar. Þá hefur Olympíu-
garðurinn sérstakt aðdráttarafl með
sínum risavöxnu leikvöngum.
Margir iíta hýru auga til þeirra sex
risabrugghúsa sem eru í borginni og
brugga árlega um 5 milljónir hektó-
lítra af bjór.
Hér veröur látið staðar numið í
frásögn af Miinchen, en þeir sem
vilja fá upplýsingar um feröamögu-
leika þangaö eða til annarra staða í
Þýskalandi geta leitað til ferðaskrif-
stofa eða söluskrifstofa Flugleiða.
-klp
ritum gegnum árin. A sama hátt
hafa birst í hérlendum blöðum grein-
ar og fréttir af erlendum vettvangi
sem eru uppfullar af rangfærslum og
rugli. Ef elta á ólar við allar villur í
erlendum blaðagreinum um Island
og senda leiðréttingar er ég hræddur
um að til þess þyrfti aö ráða sérstak-
an starfsmann og undir hælinn lagt
hvort leiðréttingar hans kæmust
nokkum tímann á prent í viðkom-
andi blööum. En ég þakka Ara
Trausta Guðmundssyni fyrir tiiskrif-
ið. Báðir yrðum viö jafnánægðir ef
alltaf mætti treysta því sem stendur
á prenti. -SG
---------0, O----- * * J
Þýska ferðamálaráðiö var með
umfangsmikla Þýskalandskynningu
á Hótel Loftleiðum á dögunum í sam-
vinnu við Flugleiðir. Þar voru mættir
fulltrúar víðs vegar að úr Þýskalandi
og kynntu ferðamöguleika í heima-
landi sínu fyrir fréttamönnum og al-
menningi. Þjóðverjamir voru mjög
ánægðir með þær undirtektir sem
þeir fengu hér, en aðalstjórnendur
þessarar kynningar vom Klaus Mull-
er frá höfuöstöðvum þýska ferða-
málaráðsins og Hanns P. Nerger,
sem er fyrir skrifstofu ráösins í
Kaupmannahöfn.
Meðal þess sem kynnt var á Hótel
Loftleiðum voru sumarhúsin í Daun-
Eifel, sem er skammt frá mótum
ánna Mosel og Rínar. Þaðan er stutt
til hinnar sögufrægu borgar Trier,
sem heldur upp á tvö þúsund ára af-
mæli sitt með pomp og prakt í sum-
ar. Þá er stutt að fara til Bonn, Köln-
ar og Frankfurt frá Daun-Eifel, svo
dæmi séu nefnd. Fleiri sumarhús-
hverfi vom kynnt, til dæmis Missem
í þýsku ölpunum, Arrach í Austur-
Bæheimi og Todtmoos í Svartaskógi.
Sem dæmi um verð fyrir sumarhúsin
í Daun-Eifel má nefna að 14 daga
dvöl í 75 fermetra húsi miðað við
fjóra kostar um 15 þúsund krónur á
mann og er flug til Luxemborgar og
heim ásamt rútuferö að sumarhús-
unum innif alið í verði.
Góð tílboð frá Munchen
Það er langt frá því að þeir sem
vilja feröast til Vestur-Þýskalands
þurfi að binda sig við sumarhúsin.
Þjóðverjar eru frábærir skipu-
leggjendur eins og allir vita og hægt
er að velja milli alis konar sértilboða
frá hinum ýmsu borgum og bæjum,
allt eftir efnum og ástæöum hvers og
Landlygarí stað landkynningar,f
Ferðasíðunni hefur borist eftirfar-
andi bréf frá Ara Trausta
Guðmundssyni:
Landlygar
I ferðamáladálkum DV er sagt frá
ákveönu tölublaði Sunday Express
Magazine meö frásögn af leiðangri
sem beitti vélknúnum svifdrekum og
kajökum til ferðar á Vatnajökul og
niður Jökulsá á FjöUum. Var ritinu
dreift í um 3 milljónum eintaka og
kvikmynd gerð um leiðangurinn.
Telur Sæmundur Guðvinsson, um-
sjónarmaður ferðamálasíöunnar,
þetta góða landkynningu.
Þessari staðhæfingu vil ég ein-
dregið mótmæia og tel reyndar að
Sæmundur geti varla hafa lesið
bresku greinina. Hún er uppfull af
þvættingi og vísvituðum blekking-
um, til þess eins, að því er virðist, að
slá leiðangursmenn til riddara. Hér
erunokkurdæmi:
Sagt er að engar þekktar ieiðir séu
upp Breiðamerkurjökul og að ís-
skriðið geri alla kortagerð ómögu-
lega. Samt notuðu mennirnir snjóbíl
„Jöklaferða” á Homafirði til þess að
láta aka sér upp í hlíðar öræfajök-
uls; en fyrirtæki þetta stundar fastar
ferðir upp Breiðamerkurjökul!
Auðvitað kemur það ekki fram.
Sagt er að allir áttavitar hafi
reynst ónothæfir, til marks um hve
gífurlega hættulegar Vatnajökuls-
ferðir eru og villur aðsteöjandi.
Flestir vita að þetta er rangt. Hvað
ætti enda aö geta ruglað áttavita á
jöklinum?
Isheliarnir í Kverkfjöllum eru
sagðir „algjörlega óþekkt veröld” og
leiðangursmenn síga niður um gatiö
í þekjunni í staðinn fyrir að labba inn
eftir voiga læknum eins og hundruð
ferðamanna gera á hverju sumri.
Strokkinn segja þeir mörg hundruð
feta djúpan, en í raun er dýptin um 30
metrar (rúm 100 fet). Auðvitað
minnast þeir hvorki á aðalinngang-
inn né þá staðreynd að íshellarnir
uppgötvuðust fyrir rúmum tveimur
áratugum. Þó kastar fyrst tólfunum
þegar Mick Coyne, annar leiðangurs-
foringja, segir: „.. . Við höfum
fundið upptök árinnar”! Þau eru nú
reyndar í Dyngjujökli, þótt svo
lækurinn renni í eina kvísl Jökulsár.
Tröllasögur um sjóðandi vatn í
hellunum og annaö eftir því bæta
ekki úr skák.
Hér eru aöeins tiltekin nokkur
dæmi um vinnubrögö „ævintýra-
mannanna”. Auðvitað verka svona
skrif hvetjandi á einhverja, en þeir
sem hingað hafa komið og munu
koma öðlast margir hverjir vitn-
eskju um íslenskan veruleika og
telja sig blekkta. Ábyrgöin er vissu-
lega hjá höfundum ýkjusagnanna, en
einnig hjá þeim sem vinna að feröa-
málum og kynna landið. Ferðamála-
ráð ætti að leiörétta svona missagnir
eftir því sem unnt er. Þær eru vond
landkynning.
eins. Við getum tekiö hina sögufrægu
borg Miinchen sem dæmi.
Þjónusta við ferðamenn er í sjö-
unda sæti af atvinnugreinum borgar-
innar. Gistirými er 26 þúsund rúm og
fjöldi gesta um 2,5 milljónir á ári.
Munchen er því ein helsta ferða-
mannaborg Þýskalands. Tjaldstæði
er þar nýtískulegt og búið öllum þæg-
indum á rólegu og fallegu svæði við
ána Isar. Auk þess eru tvö farfugla-
heimili og tvö gistihús ætluð ung-
mennum auk unglúigatjaldbúða með
400 svefnpokaplássum. Auk þess eru
gistihús og hótel af öllum stærðum og
gerðum.
Ferðamáladeild Múnchenborgar
stendur fyrir kynningu á ýmsum sér-
tilboöum fyrir ferðamenn og má þar
nefna bæöi helgarpakka og viku-
pakka sem fela í sér gistingu með
morgunverði á sérveröi auk afslátt-
ar í almenningsfarartæki og ókeypis
aðgangíöllsöfn.
Þrisvar á ári er hvað fjörugast í
Munchen. Nú í mars er hátíð sterka
bjórsins (Starkbierzeit), þá er hin
víðfræga októberhátíð, en á síöustu
hátíð skoluðu 6,6 milljónir gesta nið-
ur 45.760 hektólítrum af bjór, og síð-
ast en ekki síst er það svo kjötkveðju-
hátiöin í janúar/febrúar.