Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Side 16
16
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS1984.
Ævintýrið
um
Öskubusku
—i uppfærslu íslenska
dansflokksins
Öskubuska. Ásdís Magnús-
dóttir hefur þurft að œfa ein
hlutverk Öskubusku þar
sem mótdansari hennar,
Lormeau, hefur verið upp-
tekinn við Parísaróperuna
og kemur ekki til landsins
fgrr en á mánudagskvöld.
Þórhildur Þorleifsdóttir er
aðstoðarleikstjóri. Fyrir
aftan hana er Ólafía Bjarn-
leifsdóttir sem fer með hlut-
verk góðu dísarinnar.
Veislan í höllinni.
(DV-myndir Bj.Bj.)
Belinda Wright og Yelko
Yurésha ásamt Erni
Guðmundssyni dansara.
Allir þekkja ævintýrið um ösku-
busku og vondu stjúpsystumar tvær,
en á miövikudag, sjálfan öskudag,
veröur frumsýndur ballett við ævintýr-
ið í Þjóðleikhúsinu.
Það eru dansarar Islenska dans-
flokksins sem dansa, en gestur
sýningarinnar er einn fremsti dansari
Frakka, Jean-Yves Lormeau. Hann
fer með hlutverk prinsins en Ásdís
Magnúsdóttir dansar titilhlutverkið.
öskubusku sjálfa. Tónlistina við ball-
ettinn samdi Serge Prokofév fyrir um
fjörutíu árum, en danshöfundur er
Yelko Yurésha og stjómar hann
uppfærslunni ásamt eiginkonu sinni,
Belindu Wright. Hún var fyrr á árum
ein fremsta dansmærBreta.
Ballett Prokofév um Oskubusku var
frumsýndur í Bolshoi í Moskvu árið
1945 og hefur veriö sviösettur af öllum
helstu balletthúsum heimsins síðan,
enda telst hann meðal klassískra
verka. Prokofév byrjaöi að semja
verkið árið 1940, en stríðiö raskaði öll-
um áætlunum hans og lauk hann ekki
við verkið fyrr en ’44. önnur þekkt
verk eftir hann em óperan Stríð og
friður, ballettarnir Rómeó og Júlía,
Glataöi sonurinn og Steinblómið. Einn-
ig samdi hann barnaævintýrið Pétur
og úlfinn fyrir sögumann og hljóm-
sveit.
Við litum inn á æfingu á öskubusku.
-KÞ