Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS1984. 21 Organistinn, Ami Tryggvason, skoðar skáldskap Benjamins, Barði Guðmundsson. issyni, og Ugla, Tinna Gunnlaugsdóttir. Arlands, leikin af Sigrúnu Eddu Bjömsdóttur, dansar við kærastann, ipeight. Ugla hjálpar eldri syni Búa Arlands, Aragrími, leikinn af Helga Björassyni, sem hefur fengið sér einum of mikið. Lelk- stjérinn Þorsteinn Jónsson er leikstjóri Atómstödv- arinnar. Hann er fœddur í Reykjavik 1946. Hann lauk prófi frá kvik- myndaskólanum í Prag 1971 og hélt þá í fram- haldsnám í greininni við Nippon háskóla í Tokýo. Hann hefur gert all- nokkrar heimildamyndir en Atómstödin er önnur kvikmynda hans í fullri lengd. Sú fyrri var Punktur punktur komma strik frá árinu ’81. ÍVIKMVVIi SEM RIÐ AISLANDI” Hannes Ottósson leikur Þórð, yngri soninn á heimilinu. sem það hafði toppmeðmæli fengum við það til að vinna með okkur. Baker hefur til dæmis fengið verðlaun fyrir klippingu í Bandaríkjunum og Kramer, sem er einn af þekktustu hljóðupptökumönnum Bretlands, sá meöal annars um hljóð í myndunum „Gregory’s Girl” og „Local Hero” eftir BillForsythe.” — Og hvernig hefur svo tekist til með hljóðið? „Hljóðið er mjög skýrt, það heyrist hvert orð en myndin er í dolhy-stereo. ” Það var undarleg tilviljun að þegar Þórhallur var að tala um hljóð mynd- arinnar hringdi síminn. Leikstjórinn sjálfur var á hinum enda línunnar. Hann var staddur í Kaupmannahöfn. Hann var í sjöunda himni. Myndin hafði verið prufusýnd í Höfn þennan dag að viðstöddu nokkru fjölmenni, meöal annars þó nokkrum Islendingum. „Myndinni var alveg rosalega vel tekið og hljóðið er alveg kristaltært,” sagði leikstjórinn i sím- anum. — Hvaö er leikstjórinn að gera í Kaupmannahöfn? „Filmuvinnslan fer fram í Höfn,” sagði Þórhallur. „Og svo var hljóövinnslan gerð í Hamborg.” Um 14 milljón króna útgerð — Hvaðkostarþessimynd? „Framleiðslukostnaður er áætlaður um 14 milljónir króna og er myndin sú dýrasta sem Islendingar hafa gert til þessa.” — Og hvað þurfið þið marga áhorf- endur? „Eg get ekki nefnt neina tölu í því sambandi en hins vegar er alveg ljóst að við náum aldrei inn þeim kostnaði nema dreifa myndinni erlendis. Reyndar höfum við góöar vonir um það.” ■’ - Nú? „Viö höfum gert samkomulag við breskt fyrirtæki um dreifingu mynd- arinnar erlendis.” — Er það þá bundið við Bretland? „Nei, alls ekki. Meiningin er að dreifa henni enn víðar. Meðal annars er ráðgert að myndin verði sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes i maí í vor. I þessu sambandi höfum við gert myndina í tveimur útgáfum, það er á íslensku og ensku. Er þetta jafnframt fyrsta íslenska myndin þar sem það hefur verið gert. Leikaramir töluðu ensku líka inn á myndina og við það tvöfaldaöist vinnan við frágang hennar.” Atómstöðin er önnur myndin sem kvikmyndafélagið Oöinn gerir. Sú fyrri var Punktur punktur komma strik, hvernig gekk hún? „Hún kom út á sléttu. Við fengum 75 þúsund áhorfendur. Svo var hún sýnd í sjónvarpi í nokkrum löndum.” Myndin gerist fyrir tæpum 40 árum Atómstöðin er 98 minútur að lengd. Hún gerist fyrir tæpum 40 árum og hefur verið leitast við að endurskapa umhverfi þess tíma í byggingu, hús- búnaði, farartækjum, fatnaði og svo framvegis. Myndin var tekin upp siöastliðið sumar og haust í Reykjavík, að Skaftafelli i Oræfum og í Hvalfirði. Inniatriði voru flest tekin upp í upptökusal Aðstööu í vöruskemmu viö Vatnagarða. Það voru byggö heil hús, ibúðir og aðrar vistarverur og allt búið húsmunum sem keyptir voru, smiðaðir, leigðir eða fengnir að láni. Listasöfn, stofnanir og einstaklingar lánuðu einnig mikinn f jölda málverka og annarra listaverka sem notuö voru í leikmyndina. Utvega þurfti yfir fjögur hundruð leikbúninga sem ýmist voru saumaðir, leigðir eða fengnir að láni. Þá lánuöu meðlimir Fornbílaklúbbs- ins, Þjóðminjasafniö og Byggðasafn Hafnarfjarðar þær bifreiðar sem not- aðar eru í myndinni. Þrjú ár í undirbúningi — Utiatriðin, sem tekin voru í sumar, hvernig heppnuöust þau, lék veðriö ykkur ekki grátt? „Viö vorum alveg stálheppin með veðrið þrátt fyrir mikiö rigninga- sumar. Við þurftum þrisvar að fara .austur í Skaftafell og fengum þetta ljómandi veöur. Við þurftum til dæmis aö byggja heila kirkju þar og allt gekk aðóskum.” — Hversu lengi hefur myndin veriö í undirbúningi? „Um þrjú ár en takan sjálf hófst í lok júní og stóð nær óslitið fram í október.” — ErAtómstööinfjölskyldumynd? „Það ætla ég að vona. Þetta er saga fjölskyldu sem ég held aö allar fjöl- skyldur ættu að hafa gaman af. ” — Ertuánægðurmeðárangurinn? „Já, ég er mjög ánægður. Myndin er gullfalleg. Við lögöum mikið upp úr lýsingum við kvikmyndatökuna sjálfa og blærinn á myndinni er mjög skemmtilegur og á Karl Oskarsson heiðurinn af þvi. Svo standa leikar- amir sig með afbrigðum vel.” — Hvert er næsta verkefni kvik- myndafélagsins? Eruð þið farin að huga aðþví? „Já, reyndar, það er ýmislegt í gangi en of snemmt að segja frá þvi. Frumsýning Atómstöövarinnar er mikið átak og nóg i biii,” sagði Þór- hallurSigurðsson. -KÞ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.