Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Síða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS1984.
Spurningin
GG, KS, AD í starfskynningu.
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur)
bjórnum?
Agnar Þorláksson: Mér finnst allt í
lagi aö bjór komi, annars drekk ég
hann ef ég kemst í hann.
Inga Vilhjálmsdóttir: Eg held aö þaö
sé ekkert verra aö hafa hann og ég
drekk hann ef ég kemst í hann.
Fríða Júlíusdóttir: Eg er meö honum
og ég drekk hann hiklaust.
Björn Valdimarsson: Eg er mjög
hlynntur honum og ég drekk hann ef ég
næ í hann.
Gísli Valdimarsson: Eg er hlynntur
honum, drekk hann ef ég næ í hann.
Bárður Pálsson: Eg er meö honum en
ég drekk ekki mikið af honum.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Keppendur i Eileen Ford keppninni 1982sem Vikan stóð fyrir.
Miss World og Ford Eileen keppnin:
Því gef ur sjónvarpið
ekki viðhlítandi svör?
Vestriskrifar:
Það eru nú margar vikur síðan fyrst
var fariö aö ýja aö því í lesendabréfum
og víðar aö sjónvarpiö heföi átt aö fá til
sýningar Miss World keppnina á
síöasta ári og eins aö sýna frá Eileen
Ford keppninni.
Nú, eina svariö sem sjónvarpiö gaf
var á þá leið að sjónvarpið heföi ekki
fengið þennan þátt til sýningar (hér er
átt viö Miss World keppnina), þannig
aö hann yrði ekki sýndur hér — eins og
þaö var orðað í svari sjónvarpsins í
einhverju blaöanna.
En sjónvarpsmanni þeim
(einhverjum dagskrárgeröarmanni)
sem sVariö gaf láöist aö geta þess,
hvort þátturinn hefði ekki fengist, þótt
um heföi veriö beöiö af hálfu
sjónvarpsins, — eöa hvort sjónvarpið
heföi ekki fengið þáttinn vegna þess aö
þaö heföi ekki beðið um hann.
Nú er þaö svo með opinbera starfs-
menn aö þeir starfa fyrir almenning og
það eru skattborgarar sem greiöa laun
þeirra. Þess vegna er þaö ekki úr vegi
aö starfsmenn sjónvarpsins, en þó
helst sá aðili sem er ábyrgur fyrir
viökomandi deild svari sjálfur en láti
ekki t.d. einhvern dagskrárgeröar-
mann eöa aöra svara spurningum sem
beint er til stofnunarinnar.
Þaö er áreiöanlega ósk margra
aö forstööumaöur lista- og skemmti-
deildar svari (sjálfur) þeim spurn-
ingum sem beint hefur verið til
sjónvarpsins vegna tregöu þess að
koma þættinum um Miss World keppn-
ina á framfæri viö áhorfendur, þótt
eftir honum hafi veriö óskaö og hann sé
vinsæll eins og fyrirspurnir bera meö
sér.
Eins er það meö Eileen Ford
keppnina. Einhvers staöar fréttist þaö
að sá þáttur heföi veriö boðinn
sjónvarpinu til sýningar, en honum
heföi veriö hafnaö, — ekki endilega af
viökomandi ráðamanni lista- og
skemmtideildar eöa þeim sem
ákvaröanir tekur um slíkt, heldur
kannski af einhverjum öörum, kannski
almennum starfsmanni eöa dagskrár-
gerðarmanni (en þeir eru víst fleiri en
einneða tveir).
Ef sjónvarpið hefur ekki efni á aö
kaupa svona þætti á þaö hreinlega aö
koma fram í svari þess. En vita mega
ráöamenn sjónvarps þaö aö léttir
þættir og annað skemmtiefni á borö við
fegurðarsýningar, kvikmyndir og aöra
afþreyingarþætti eru miklu vinsælla
sjónvarpsefni en þaö efni sem
sjónvarpið hefur aö uppistööu nú og
ávallt áður.
Sá taprekstur sem sagður er vera á
sjónvarpi okkar (einhver segir um 150
millj. króna á árinu ’82) yröi mun
minni ef hætt væri aö kosta upp á gerö
innlends efnis, sem yfirleitt er mis-
heppnaö og leiðinlegt.
DV haföi samband viö Elínborgu
Stefánsdóttur og Hinrik Bjarnason hjá
lista- og skemmtideild sjónvarpsins og
sögðust þeu ekki kannast viö að
stofnuninni heföi verið boöin fyrrnefnd
Eileen Ford keppni til sýningar.
-SigA.
Prýðilegir
prúðu-
leikarar
Erhægtað
sýna meira?
Ariskrifar:
Ægiiega er ég farinn að sakna gömlu
góöu Prúöu leikaranna. Eg er nú búinn
að bíöa þolinmóöur í nokkuð langan
tíma eftir að sjónvarpiö hefji sýningar
á þessum frábæru þáttum aftur.
Eg man eftir ööru löngu bili sem
varö á sýningum þessara þátta en ég
minnist þess ekki aö hafa saknaö
þeirra tiltakanlega þá, því ég skildi
ekki alltaf húmorinn sem lá á bakviö.
Þegar svo þeir voru teknir til sýningar
aftur þá fór mér skyndilega aö líka
stórvel viö þessa þætti.
Þeir eru frábærlega vel geröir, enda
engir aukvisar við stjórnvölinn á þeim
bæ. Eg held aö þetta sé húmor fyrir
fólk á öllum aldri. Krakkar hafa
gaman af brúðum sem dilla sér en
fyrir þá sem lengra eru komnir á
þraskabrautinni þá er hin djúptækari
hlið þáttanna (oröaleikjabrandarar
o.fl.) hin besta skemmtun.
Því vil ég beina þeirri kurteislegu
ósk til forráðamanna sjónvarpsins aö
þeir athugi þann möguleika að taka
þættina til sýningar aftur.
Prúðuleikaramir glaðir á góðri stundu. íslenska s/ónvarpið hefur nú sýnt alla
þættina sem hafa verið fram/eiddir með þessum vinsælu figúrum.
Kveðja
Guðrún Þorleifsdóttir skrifar:
Skýldi raaöurinn hafa verki
meö þessu? var setning er ég
heyrði oft á æskuárum mínum er
einhver hafði látiö frá sér fara
í ræðu eöa riti eitthvað eindæma
heimskulegt. Eg get ekki aö því
gert að setning þessi leitar oft á
huga minn er ég les klausur
Skuggabaldurs þess ér Dagfari
nefnist og eys reglulega úr brunni
geövonsku sinnar í DV. Nýveriö tók
kempa þessi (sem auðvitað þorir
ekki að auglýsa heimsku sína undir
fuliu nafni) nýafstaðið Búnaöar-
þing til umfjöllunar. Allur er pistill
þessí uppfullur af hroka og illgirni í
garö bænda sem vænta má úr þeim
herbúðum.
I fyrsta lagi telur Dagfari
Búnaöarþing ekki lengur eiga rétt
á sér, vegna þess að landsmenn
-hafi nú orðið útvarp og síma. Ef
þessir fjölmiðlar geta leyst
Búnaðarþing af hólmi, ættu öll
önnur stéttarfélög og landssamtök
aö geta sparaö þjóðinni öll funda-
höld og þing, þar meö talið
Fiskiþing og Kirkjuþing, því flestir
landsmenn eiga greiðari aögang aö
fjölmiðlum en bændur. Dagfari
segir m.a. að landbúnaðurinn hafi
veslast upp sem atvinnugrein, en
lifi á ríkisstyrkjum og niöur-
greiöslum í skjóli skrifstofubákns i
Reykjavík. Ennfremur aö fjöl-
mennur hópur bænda gisti nú
höfuðborgina, í sínu eigin hús aö
vísu, eti þar og drekki á kostnað
samborgara sina og klæðist spari-
fötum kaupfélagsins. Nú verö ég að
viðurkenna að ég hef aldrei séð
spariklætt kaupfélag og veit því
ekki hvernig sá klæðnaður lítur út,
en spariklædda bændur hef ég séð.
Þeir hafa yfirleitt sómt sér vel,
unnið höröum höndum fyrir sínum
sparifötum og komiö fram undir
fullu nafni, enda oröiö aö bera
ábyrgð á orðum sínum og gerðum.
Þaö a- vægast sagt mótsagna-
kennt aö tala í ööru oröinu um fá-
menna forréttindastétt sem ráði
lögum og lofum og skammti sjálf
kjör sin af mikilli óbdgirni en í hinu
orðinu er þessi sama stétt að
veslast upp í þvílikri eymd að
bændur geti ekki skroppið til
Reykjavíkur einu sinni á ári nema
eta þar og drekka á kostnað sam:
borgara sinna.
Hvernig er búiö aö homrekum
þess þjóðfélags sem leikur for-
réttindastétt sína svo hart? Nei,
Dagfari góöur. Bændur þurfa ekki
aö blygðast sín fyrir tUveru sína
eöa sinn skerf til þjóðfélagsins. En
eitt má vera þeim áhyggjuefni. Það
er sú úrkynjun sem kemur fram
hjá þér og þínum líkum, sem því
miður eigið rætur ykkar í
sveitunum. Islensk borgar-
ómenning er tiltölulega ung, en
íslensk bændamenning er gömul og
rótgróin og hefur staðið af sér
harðari hríð en níðskrif blekbuUara
sem fara hamförum viö aö afneita
upprunasínum.
Elínborg Stefánsdóttir hjá lista- og
skemmtideUd sjónvarpsins sagði, er
DV haföi samband viö hana, aö
sjónvarpið heföi sýnt aUa þætti meö
Prúöu leikurunum sem framleiddir
heföu veriö. Þetta væru vel yfir 100
þættir og stærsta þáttaröö sem
sjónvarpið heföi sýnt.
Er Elínborg var spurö hvort ttt stæöi
að kaupa hina nýju þætti sem fram-
leiöendur Prúðuleikaranna hefðu nú
hafið framleiðslu á sagöi hún aö
þættirnir væru mun dýrari en þaö sem
sjónvarpið gæti hæst boöið.
Þessir þættir njóta nú gífurlegra
vinsælda í Bretlandi.
-SigA.
Um orðið Art
Therapist
Kennari hringdi:
og haföi uppástungu fram aö færa
um starfsheitið Art Therapist.
Sagði hann að best væri að nota
oröiö listmeðferðarfræðingur eöa
myndmeöferðarfræðingur.
Það væri annars ákaflega erfitt aö
þýða orðiö Therapy nema þá meö
orðinu lækning eöa meöferð.
Sá sem er listmeðferðarfræðingur
fæst við aö hjálpa viðfangi aö tjá sig
með myndum í stað máls.