Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Blaðsíða 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS1984.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
TENNIS OG
TRABANT
„Þriðjudagur til þægileghcita,” segjum við í Dægradvölinni, vitandi það
að nú eru aðeins 29 dagar til sumars. Sumardagurinn fyrsti er jú fimmtu-
daginn 19. apríl og í tilefni þess: „Komiði sælir, féiagar og vinir góðir.”
Við tökum okkur ti! að þessu sinni og fjÖllum um tennis og Trabant.
Þetta með Trabantiun er nokkuð sérstakt. Hann er aðeins tvítugur og cr
ekinn 725 kílómetra. Aðeins.
Eigandi hans, Kristbjörn Hauksson, sem einnig er tvítugur, á Trabant-
inn einvörðungu vegna þess að hér er um antik-Trabant að ræða.
Verðmæti Herra Trabb-trabb cru mæld með öðrum hætti en notagildi til
daglegs brúks.
Frá Trabantinum förum við í Þrekmiöstöðina í Hafnarfirði og fylgjumst
með frísklegu fólki spiJa tennis. Já, þetta eitiihressa fólk lætur það ekkert
á sig fá þó enn vanti nokkra daga isumariö.
Er þá nokkuð annað að gera en nota tennisspaðann fyrir punktinn okkar
víðförJa?
„Ekki slá fast,” segir hann og við förum að ósk hans og laumum honum
með hakhöndinni á sinn stað.
Texti: Jón G. Hauksson
Myndir: EinarOlason
Ótrúlegt en satt. BiHinn eraðeins ekinn 725kilómetra. Megnið af þeim kiló-
metrafjölda er tilkomið er bilnum var ekið norður. ,,Já, fé/agi, ertu kominn
með bilinn i 1000 kílómetra skoðunina?"
Trabant „delúx" með öskubakka var eitt sinn sagt. Þessi öskubakki hefur
aldrei á sinum 20 ára ferli fengið ösku. A/drei verið reykt ibílnum.
OV-myndir: Einar Ólason,
Sest i aftursæti Trabantsins í fimmta skiptið. „Rúmgóður, þægilegur og
hátt til lofts," myndu bilasérfræðingar segja. „Það var siðastliðið haust að
ég eignaðist gripinn. A fiþurftiþá að losa sig við hann úr skúrnum þvihann
ætlaði að setja hefilbekk þar inn istaðinn."
Kristbjörn Hauksson, 20 ára húsasmiðanemi. Hann og Trabantinn hans eru á sama aldri. Þeir eru þó ekki
,, fæddir" á sama árinu. Við sjáum hér hvar Kristbjörn tyllir sér upp á húddið og ekki er annað að sjá en
Herra Trabb-trabb sé ánægður.
Kann auðvitað að segja
nafnið sitt, blessaður
—Trabantinn hans Kristbjörns Haukssonar er árgerð 1964
og ekinn 725 kflómetra. íaftursætið hefur verið sest 5
sinnum og „delúx”-öskubakkinn aldrei notaður
„Afi minn, sem býr norður á Akur-
eyri, keypti Trabantinn nýjan fyrir
tuttugu árum. En eitthvað leiddist hon-
um bílamenningin, því hann setti bíl-
inn eftir nokkurra daga notkun inn í
skúr, þar sem hann hefur svo dúsaö
síðustu tvo áratugina. Það var svo
síðastliðið haust að ég eignaðist grip-
inn. Af i þurfti þá að losa sig við hann úr
skúmum því hann ætlaöi að setja
hefilbekk þar inn í staðinn. ’ ’
Já, hún er með ólíkindum, sagan af
Trabantinum hans Kristbjörns Hauks-
sonar, 20 ára húsasmíðanema, sem
býr úti á Seltjarnamesi. Trabantinn
hans er splunkunýr en þó orðinn tvítug-
ur. Hann er ekinn alls 725 kílómetra,
aðeins. I öskubakka bílsins hefur
aldrei farið sígaretta og í aftursætið
hefur verið sest um fimm sinnum.
Hér með er sagan ekki sögð. Því
hvað mundir þú segja sem bifreiða-
eftirlitsmaður ef þú þyrftir að skoða
þennan „20 ára gamla Austur-Þjóð-
verja” sem síðast var skoðaður árið
1965? „Heyrðu, vinur, hefur þú ekki
trassað að koma meö bílinn í skoðun?”
er ekki ólíklegt að einhver myndi láta
út úr sér. Sennilega færi kaskeitið h'ka
á Jireyfingu.
Samtal Kristbjöms við stúlku í Bif-
reiðaeftirlitinu um þennan trausta
Trabant segir ef til vill allt sem þarf að
segja.
,,Eg hringdi og spurði hana um bíl-
inn A-2231. Eg sagði við hana hvort hún
vissi hvaða tegund bíllinn væri. Eftir
dálitla stund svaraði hún: „Það er
Trabant 600 árgerð 1964.” Hann var þá
á skrá eftir allt saman hugsaði ég með
sjálfum mér Eg spurði hana því hvað
ég þyrfti að gera varðandi pappíra um
bíhnn. „Heyrðu, góöi, það fyrsta sem
þarf nú að gera er að finna bíhnn.”
— Líkaði afa þínum aldrei viðhann?
„Eg held að hann hafi kunnað ágæt-
lega við hann. Þetta var þó bara
þannig að félagi hans ók bílnum noröur
Skoðaður síðast árið 1965.
,,Heyrðu, vinur, hefur þú ekki
trassað að koma með bí/inn i
skoðun?"
og afhenti hann afa. Eftir nokkra daga
held ég að afa hafi einfaldlega þótt
orðið of mikil umferð og því lokaði
hann bíhnn inni í skúr. ”
En umferðin á Akureyri var samt
ekki meiri en svo að afi Kristbjörns
hefur síðan farið ferða sinna um bæinn
á mótorhjóli. Og til þess að upplýsa
fólk um þennan heiðursmann á Akur-
eyri, þá heitir hann Oskar Guðjónsson
og er elsti starfsmaður Akureyrar-
bæjar.
Kristbjörn segir okkur frá því er
hann fór norður th Akureyrar síðasthð-
ið haust til að ná í Trabantinn. „Eg
setti bUinn í skip og flutti hann þannig
suður. Fljótlega eftir að suður kom
leitaði ég aö skúr til að geyma hann í
og fékk inni hjá BílastUlingu Stjána og
Svenna í Hafnarfirði. Þar hefur hann
verið í aUan vetur.”
— Aekkertaðnotakaggann?
„Nei, hann þessi er aðeins spari.
Hann verður í mesta lagi notaður á
þjóðhátíðardaginn og sunnudögum y fir
sumarmánuðina. Maður rúUar á
honum rúntinn og í ísbúðina, svona í
ekta sunnudagaskapi.”
— Hefurðuhugsaðþéraöseljaþenn-
an antik-Trabant?
„Nei. Ef ég fæ að ráða þá sel ég
hann aldrei. Aldrei. Þessi bUl er mér
mikils virði. Hann er eiginlega eins og
einn af fjölskyldunni. Og ég hef áhuga
á fombílum, hví þá að selja þennan úr-
vals vagn?”
— HvaðmeðTrabant-klúbbinn?
„Jú, ég er kominn í Skynsemina.
(Skynsemin ræður, heitið á Trabant-
klúbbnum.) Lét innrita mig þar fyrir
um þremur mánuðum. Reyndar bjóst
ég við fleirum í klúbbnum miðað við
þann fjölda sem á Trabant. Mér finnst
ótækt annað en allir Trabant-eigendur
séu í Skynseminni. ”
— Nú hefur Trabant haft frekar
leiöinlegt orð á sér. Mönnum hefur
ekki þótt þessir bUar nógu fínir og sagt
hefur verið að menn hafi frekar gengið
en að þiggja far í Trabant. — Hvað
finnst þér, er Trabant nógu fínn bíU?
„Þetta er rétt. Flestir hugsa sem svo
að TraJiant sé ekki nógu fínn bíU. En
við verðum líka að gá að því að margir
líta á bUa sem stöðutákn. Þeir aka um
á stöðutáknum en ekki bílum. Og um
minn Trabant get ég ekki annað sagt
en að hann er þrumugóður.
Eg verð þó að játa að í gegnum árin
hefur orðið drusla oft komið upp í huga
minn er ég hef heyrt minnst á Trabant.
En það breytir samt ekki þeirri skoðun
minni að fólk á ekki að hafa þann
hugsunarhátt aö einhver bUl sé ekki
nógu fínn fyrir það.”
— Trabb, trabb og aftur trabb,
trabb. Síðan mikiU reykur og hávaði.
— Er þinn Trabant þannig?
„Já, já, hann kann auðvitað að segja
nafnið sitt, blessaður. Hann er með
þetta sígilda Trabant-hljóð.”
— En hvað heldurðu að skoðunar-
maöurinn segi í vor þegar þessi
heiðursfélagi í Skynseminni mætir til
skoðunar?
„Eg veit það ekki, það verður bara
að koma í ljós. En ætli honum bregði
ekkiaðsjá ’65-miðann.” -JGH