Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Qupperneq 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20 MARS1984.‘
35
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
Að eiga „smass”
í bakhöndinni
—fylgst með þeim hjónum Steini Sveinssyni og Ólínu
Jónsdóttur í tennis
„Viö erum eingöngu í tennisinum til
aö leika okkur og fá holla hreyfingu,”
sögöu þau hjón Olína Jónsdóttir og
Steinn Sveinsson er viö hittum þau á
öörum tennisvellinum sem Þrek-
miðstööin í Hafnarfirði hefur komið
upp.
Þaö er ekki hægt aö segja annað en
þau séu lífleg og skemmtileg hjón. Að
minnsta kosti er tennisinn spilaöur
meö smössum, bakhandarsveiflum og
greinileg ekkert gefið eftir.
Steinn mátti þó til meö aö koma meö
stríönislegt „tennisskot”. „Eg held aö
ég sé öllu kurteisari en hún. Þaö er
ósjaldan sem ég gef henni mjög góöa
bolta en hún svarar þá bara með því aö
lemjaáfulluámóti.”
•
W r: ■
■ ■
: '
Ekki var aö sjá aö Olína tæki þessari
athugasemd illa. — Er þetta rétt?
spuröum við blátt áfram. „Það held ég
ekki. Eg veit ekki betur en ég gefi
honum þessa fínu bolta, en hann kvart-
ar stundum yfir því aö tennisspaðinn
hans gæti veriö betri.”
Tennisinn ýtir gremiiega undir létt-
leikann í fólki. Þaö var í fyrrasumar
sem þau læröu þessa íþrótt. „Viö
f órum þá í tíma til Christan Staub, sem
kennt hefur hér í Þrekmiöstööinni.
Ahugi okkar haföi vaknaö á feröalög-
um erlendis er viö kynntumst íþrótt-
innilítillega.”
Olína sagöi okkur aö þaö væri upp-
lagt fyrir konur ekki síður en karla aö
stunda tennisíþróttina. Þetta væri
skemmtileg aöferö til þess aö trimma.
„Eg hef spilað racketball hér í vetur
og finn þaö núna hve nauðsynlegt er
fyrir alla aö hreyfa sig svolítiö. Aöur
en ég fór í tennisinn í fyrrasumar haföi
ég ekki hreyft mig í mörg ár.
Til gamans má geta þess aö Steinn
spilaöi körfubolta meö Iþróttafélagi
stúdenta í mörg ár. „Eg hætti í körfu-
boltanum fyrir f jórum árum en byrjaði
aftur í vetur í „lávarðadeildinni” svo-
kölluöu, 1. flokki.”
— Og hvemig fer körfuboltinn og
tennisinn saman?
„Prýðisvel. Báöar íþróttirnar eru
mjög skemmtilegar en körfuboltmn er
í fyrsta sæti hjá mér enda löngum
verið talinn mikiö körfuboltafan.” -JGH
1
Þennan fer ég létt með hvað sem raular og tautar.
Ólina mundar spaðann og slær erfiðum bolta yfir netið. ,.Það er ósjaldan
sem ég gef henni mjög góðan bolta, en hún svarar þá bara með þvi að
lemja á fullu á móti."
\
Hressilegum leik lokið siðastliðinn fimmtudag og að sjálfsögðu er tekist i
hendurá eftir. Lifleg hjón, þau Ólina og Steinn. DV-myndir Einar Ólason.
Spiluðum alveg f ram í desember
— rætt við tennisleikara sem láta veðrið ekki hafa nein áhrif á sig
Þeir félagar láta veörið ekki hafa
áhrif á sig. „Sé leiðindaveöur þá er
ekkert annað aö gera en galla sig upp,
klæöa af sér kuldann. Síöan er bara að
spila eins og menn séu í sólarlöndum.”
Þannig komust þeir aö oröi, félag-
arnir Guömundur Eiríksson þjóö-
réttarfræöingur, Arni Tómas Ragnars-
son læknir, Christian Staub banka-
starfsmaöur og Kolbeinn Kristinsson
verslunarmaöur, er viö trufluöum þá í
hörkutennisleik síöastliöinn fimmtu-
dag.
Aö vísu haföi Kolbeinn hlaupiö í
skaröiö aö þessu sinni. hann haföi
mætt með þeim hjónum Steini Sveins-
syni og Olínu Jónsdóttur. En þegar
Ijóst var aö þaö vantaði „fjórða mann-
inn” hjá þeim Ama, Guömundi og
Christian færöi hann sig yfir til þeirra.
Þeir Arni, Guðmundur og Christian
tilheyra hcpi tennismanna, sem spilar
reglulega saman allt árið. I hópnum
eru meðal annars menn eins og Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra, Einar Thoroddsen læknir, Þor-
steinn Blöndal, Kristján Baldvinsson
og Amar Arinbjarnar.
„Þetta er ákaflega hressandi. Þaö er
gott aö geta spilað úti,” sögöu þeir
þrátt fyrir að okkur þætti í þaö napr-
asta.
I ljós kom að þetta var fyrsti dagur-
inn sem þeir spila úti á þessum vetri.
„Þaö eru ekki margar íþróttir hérlend-
is sem hægt er aö spila eins lengi úti og
tennisinn.
Sé spilaö á upphituðum völlum, eins
og er hér, þá er hægt að spila úti í 10
mánuöi á ári. Og viö spiluðum á síö-
asta ári alveg fram í desember.”
Eftir þaö fóru félagarnir inn í hlýj-
una en þeir hafa spilað í Iþróttahúsi
Gerplu, nýja íþróttahúsinu á Digranes-
hálsi í Kópavogi, og Iþróttahúsi Selja-
skóla.
Flestir í hópnum hafa dvalist lang-
dvölum erlendis og þannig kynnst
íþróttinni. „Tennis er með vinsælustu
íþróttum erlendis. Mikið spilaður í
Bretlandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum,
svo örfá lönd séu nefnd. I Bandarikjun-
um er tennis til dæmis eins konar
tískufyrirbæri.”
I lokin má geta þess aö Christian
Staub, sem er Svisslendingur, hefur
kennt og kennir tennis hjá Þrek-
miöstööinni.
— En hvað haldið þiö aö margir spili
tennis hér á landi?
„I samtökum áhugafólks um tennis
em um hundraö, en ætli þaö séu ekki
um fjörutíu sem spila reglulega á
sumrin.”
-JGH
I
Kampakátir tennismenn. Talið frá vinstri: Guðmundur Eiriksson þjóðrétt-
arfræðingur, Árni Tómas Ragnarsson læknir, Christian Staub bankastarfs-
maður og Kolbeinn Kristinsson verslunarmaður (og þekktur körfuknatt-
leiksspilari). „Þetta er ákaflega hressandi. Og það er gott að geta spilað
úti."
Arni Tómas og Guðmundur Eiriksson. Þeir tilheyra hópi tennismanna sem
spila saman nokkrum sinnum i viku allan ársins hring. Á mánudags-
kvöldum i vetur spilaði Steingrimur Hermannsson forsætisráðherra með
þeim. Hann kynntist tennisíþróttinni á námsárum sinum erlendis. Sagan
segirað Steingrimur hafiátt gott „come back"i tennisinum.
DV-myndir Einar Ólason.