Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Síða 40
VISA ÍSLAND
Fyrir víðförla.
Austurstræti 7
Simi 29700
Clias Snæland Jónsson.
ElíasSnæland
Jónsson ráðinn
aðstoðarritstjóri
DV
Elías Snæland Jónsson hefur verið
ráðinn sem aðstoöarritstjóri DV frá
og meö 1. apríl nk. Elías mun hafa
með höndum fréttastjórn ásamt með
núverandi fréttastjórum DV, Jónasi
Haraldssyni og Oskari Magnússyni.
Elías Snæland hefur starfað sem.
blaðamaður frá 1963, lengst af á
Tímanum og Visi. Hann var rit-
stjórnarfulltrúi Vísis 1978—1981 og
ritstjóri Tímans frá vorinu 1981 til
síðustuáramóta.
Ritstjórn DV býöur Elias velkomin
til starfa.
....... ........... .........
Ríkið selur víxla
fyrirl9 milljónir
Tilboð í ríkisvixla að upphæö 30
inilljónir króna voru opnuð i gær.
Alis barst 101 gilt tilboð og fjögur
ógild. Gildu tilboðin voru í 238 sett af
víxlum, hvert að nafnvirði 500
þúsund krónur eða samtals 119
milljónirkróna.
Tekiö var tilboðum í samtals 19
milljónir að nafnvirði og er
kaupverðið tæpar 18 milljónir króna.
Þau tilboð, sem tekiö var voru á
bilinu 470 þúsund og 900 krónur til
475 þúsund krónur, hvert vixlasett.
-SþS
LOKI
Nú er það svart!
VIÐ
HÚFUM
KAFFIVAGNINN
GRANDAGARÐ110
30
Bakar: vörurnar
TEGUNDIR AF KÖKUM
OG SMURÐU BRAUÐI
0PNUM ELDSNEMMA
- LOKUM SEINT
Olfm AUGLYSINGAR
4./UU. SÍOUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLT111
i.íCCi 1 RITSTJÓRN
SlOUMÚLA 12-14
AKUREYRIsk,pagötu13
AFGREIÐSLA (96)25013
BLAÐAMAÐUR (96)26613
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS1984.
Sovésku olíuskipi seinkar:
SVARTOUA
Á ÞROTUM
Loðnubræðslur og togaraf lotinn þola ekki margra daga bið
Svartolíubirgðir eru nú meö al-
minnsta móti í landinu og hafa
forstööumenn ýmissa loönubræðsla
af því nokkrar áhyggjur þar sem
bræðslumar nota mikla svartoliu
þessa dagana. Þá brennir nær aUur
togaraflotinn svartoliu og ýmis>
starfssemi í landi notar einnig þessa
oliu.
Jón Reynir Magnússon, forstjóri
Síldarverksmiðja ríkisins, sagði í
viðtali við DV að ekki væru enn orðin
vandræði í verksmiðjunum og von-
uðust menn tU þess að með réttri
miðlun á milli verksmiðja mætti
koma í veg fyrir stöðvun.
Olíufélögin þrjú standa sameigin-
lega aö svartoliuinnflutningnum og
dreifingunni hér innanlands sem fer
ÖU fram frá Reykjavík.
Þórður Asgeirsson, forstjóri Olís,
sagði i viðtali viö DV að þessi skortur
stafaði annars vegar af því að mun
meira hefur verið brætt af loðnu
undanfarið en reiknaö var með og
hinsvegar heföi sovésku skipi með 19
þúsund tonna farm seinkað talsvert.
Það væri nú lagt af stað og væri
væntanlegt um næstu helgi.
Sagði Þóröur aö olíufélögin hefðu
að undanförnu dreift minni skömmt-
um á hvern stað tU aö eiga einhvern
slatta upp á að hlaupa í Reykjavík.
Enn væri lítUsháttar eftir í Reykja-
vík og vonuðust menn tU að það
dygði fram að næstu helgi.
Svartolíunotkunin hér var mjög
mikU í síðasta mánuði, eða um 17
þúsund tonn, en til samanburðar var
hún aöeins átta þúsund tonn í janúar.
-GS.
Þessa dagana má sjá töluverð umsvif röskra stráka við aö hengja upp skreið i skreiðarhjöllunum i Eyjum.
Vaknar þá sú spurning hvort Nigeriumarkaður só aftur að lagast en svarið er þvi miður neikvætt. Þarna er
aðeins verið að hengja upp smáa blálöngu, annan físk sem ekkiþykir hæfur iaðra vinnslu og hausa.
-GS. DV-mynd: GVA.
„Eg.veit ekki hvað hefur hlaupið í
karlinn, þetta hlýtur að vera einhver
innanflokkspirringur í Framsókn,”
sagði Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra um ummæli Olafs
Jóhannessonar á þingi í gær, þegar
Olafur ásakaði Albert um skollaleik
og að bregöast oröum sínum. Olafur
greiddi atkvæði gegn hækkun tekju-
skatts vegna launahækkana umfram
fjárlagaforsendur.
„Þessi breyting var borin undir
báða stjórnarflokkana og um hana
gerð bókun í ríkisstjórninni. I henni
felst staðfesting þess að skattbyrði
þyngist ekki á milli ára.
Um það hvort ég stend við orð mín
gegn skattahækkunum er þaö eitt að
Albert Guðmundsson um ummæli Ólafs Jóhannessonar:
„Einhver innan-
flokkspirringur”
segja að á þau hefur ekki reynt enn.
Og ég get fullyrt að fjármálapólitík
núverandi ríkisstjórnar stenst allan
samanburð við það sem gerðist undir
forystu Olafs Jóhannessonar. Viö
höfum ekki ennþá skipaö mönnum að
henda sér í sjóinn og látið það ráðast
hver kynni að synda.”
HERB
Viðræður
„Miðaríáttina”
— segir Guðmundur J.
„Þaö miðar í áttina,” sagði Guö-
mundur J. Guðmundsson, formaður
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar,
er DV spurði hann um gang viðræðna
viö Vinnuveitendasambandið.
Aðilar ræddust við um helgina og
komst þá umtalsverður skriður á
viðræðurnar. Sagði Guðmundur að
Dagsbrúnarmenn leggðu áherslu á
hversu gjörólík Dagsbrún væri
öðrum verkalýðsfélögum þar sem
félagið spannaöi svo mörg svið og
atvinnugreinar sem raun bæri vitni.
Viðræðurnar við VSI hefðu að undan-
fömu snúist um ýmis samræmingar-
atriði og i dag yrði rætt um einstök
atriði þar að lútandi. Hófust
viðræður aðila kl. 10 í morgun.
Varðandi samning Dagsbrúnar við
fjármálaráðherra sagði Guðmundur
að hann hefði veriö undirritaður.
Væri nú unnið að nánari útfærslu á
honum.
„Það er of snemmt að spá í niður-
stöður viðræðna Dagsbrúnar og VSI
nú,” sagöi Guðmundur, „en þaö er
hreyfing á þessu eins og er”. -JSS.
Blaðamenn
sömduínótt
Samkomulag náöist í nótt í kjara-
deilu Blaðamanna og útgefenda og
voru samningar undirritaðir um
fimmleytið í morgun með venju-
legum fyrirvara. Samkvæmt upplýs-
ingum DV eru samningarnir á sama
grundvelli og kjarasamningar ASI
ogVSI.
Deiluaöilar komu saman til fundar
í húsnæöi ríkissáttasemjara síðdegis
i gær. Stóöu viðræður í nótt, eins og
áður sagði. Blaðamenn hafa verið
boöaöir til félagsfundar ó hádegi i
dag þar sem samningarnir veröa
kynntir og bornir undir atkvæði. -JSS.
Færeyjar:
Leynileg radar-
stöð ameríska
flughersins
Fró Eðvarði T. Jóussyni, frétta-
ritara DV í Færeyjum.
Fréttir þess efnis að leyniþjónusta
bandaríska flughersins (National
Security Agency) reki radarstöð á
Somfeili í grennd við Þórshöfn í
Færeyjum, hafa valdið miklu upp-
námi. Fram til þessa hafa menn
haldiö aö stöðin heyrði undir
Atiantshafsbandalagið.
Upplýsingar um þetta komu fram í
danska blaðinu Forsvar f síðustu
viku. Færeyska landstjómin hafði
ekki hugmynd um þessa starfsemi
og hvorki Nató né rétt yfirvöld i Dan-
mörku hafa vitneskju um þær
upplýsingar sem stööin tekur ó móti
eðasendirfrásér. -GB.
Tefltafkrafti
Alþjóölega skókmótið i
Neskaupstað hófst i gær og tefldu
skákmenn af miklum krafti eftir aö
Logi Kristjánsson bæjarstjóri hafði
sett mótið. Fjórum skákum lauk með
sigri en tveim með jafntefli. Margeir
Pétursson vann bandaríska meistar-
ann MeCambridge, Harry Schussler
vann Benóný Benediktsson, Helgi
Olafsson vann Róbert Harðarson og
Jóhann Hjartarsonn vann Dan
Hansson. Jafntefli gerðu Knezevic
og Wedberg, og Guðmundur
Sigurjónsson og Lombardy. -óbg.