Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1984, Blaðsíða 31
.j>8ei juha .æ huoaoutmmi'? .va
DV. FIMMTUDAGUR 26. APRlL 1984.
nn
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
fíaquel er sÖgð iðka leikkúnstír i Eyj-
um þessa dagana.
Raquel á
Íslandi
Ymiskonar sögusagnir
hafa orðiö til vegna kvik-
myndatöku þeirrar er nú
stendur yfir í Vestmannaeyj-
um á vegum Twentieth
Century Fox. Enda ekki oft
sem slíkur stórjöfur í kvik-
myndaheiminum nemur hér
land.
Sú saga gengur til dæmis
fjöllunum hærra að sjálf
Raquel Weich leiki í um-
ræddri kvikmynd. Dveiji hún
í svítunni á Hótel Loftleiðum
og fljúgi með einkavél út i
Eyjar tU vinnu sinnar.
Þessi saga mun hafa orðið
tU úti í Vestmannaeyjum en
siðan borist tU meginlandsins
með leifturhraða.
Vont nafn
Sú mikla f jölgun sem orðið
hefur á bjórkrám að undan-
förnu virðist hafa mælst vel
fyrir. í það minnsta segja
kunnugir að langar biðraðir
séu fyrir utan þær um helgar
og ógjörningur að komast inn
mæti menn ekki tímanlega.
Sú síðasta, sem opnuð var í
þessum rykk, mun hafa verið
Skálkaskjól i Stúdenta-
kjaUaranum. Munu stúdent-
ar hafa fagnað mjög þeirri
hugmynd að þarna yrði opn-
uð bjórkrá. Aftur á móti voru
þeir afar óhressir með nafnið
og þótti sem verið væri að
kaUa þá, sem kæmu tU með
að sækja staðinn, skálka.
Nafnbótin þótti þeim hið
versta mál og hófu því að
safna undirskriftum tU að
mótmæla henni. Einnig
hugðu þeir á bjórbindindi tU
að undirstrika kröfur sínar.
En að iokum sættust þó
aðUar. Kráin heitir því
Skálkaskjól, stúdentar sötra
öUð og aUir una glaðir við sitt.
BjórííkiÖ fíœðir nú um landið.
Húsvísk
löggæsla
Eftirfarandi guUkorn er
fengið „að láni” úr Víkur-
fréttum:
Það gerðist síðastliðlnn
föstudag i miðdegistraffík-
inni. Faðir og sonur áttu leið
um miðbæinn í bU. Er þeir
voru staddir við bakariið
skaust skyndUega svart-
klædd mannvera þvert yfir
akbrautina. Ekki veitti öku-
maður því athygU hver þar
var á ferð, en sendi guði sín-
um hljóða þökk og lof fyrir að
hafa sloppið við aö aka yfir
mannveru þessa. í sömu
andrá gaU í þeim litla í aftur-
sætinu:
„Nei, sjáðu, pabbi, það var
lögregluþjónn sem hljóp
þarna yfir götuna.”
Faðirinn var fljótur að
svara þessari fuUyrðingu
drengsins og sagði glottandi:
„Nei, sonur sæll, það getur
ekki verið því að lögreglu-
þjónar ganga ekki á Húsavík,
Laganna voróir þykja stundum þungir
tilgangs.
þeir bara keyra.”
Stráksi meltl þessa athuga-
semd þöguU um stund.
En brátt færðist bros yfir
andUtið og hann sagði með
barnslegri einlægni: „Jú,
pabbi, þetta var víst gang-
andi lögregluþjónn. Og ég
veit hvers vegna hann gekk.
Hann komst nefnUega ekki
inn i bakarUð á bilnum sín-
um.”
Óvelkomin sjoppa
tbúar við Stekkja- og
Bakkahverfl i Breiðholti eru
heldur óhressir um þessar
mundir. Astæðan er sú að nú
er verið að reisa sjoppu eina
viðamikla við Stekkjar-
bakka.
Einhver jir myndu nú halda
að fólk yrði ánægt með að fá
aukna þjónustu í hverfið sitt.
En máUö er bara það að
sjoppan mun risa i næsta ná-
grenni við skólagaröa sem
starfræktir eru á sumrin.
Einnig eiga fjöldamörg böm
leið framhjá sætindabúðinni
þegar þau sinna daglegu ver-
aldarvafstri, svo sem skóla-
göngu, sendiferðum og fleiru.
Því óttast foreldrar nú
mjög þessa freistingu, steini
klædda, og telja hana mjög af
hinu ilia. Ihuga þeir aðgerðir
af einhverju tagi tii að vekja í
þaö minnsta athygU á ósóm-
anum.
Umsjóu:
( Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Regnboginn
— Heimkoma
hermannsins:
GÓD
Alan Bates leikur hermanninn sem
kemur að hluta tU minnislaus heim
úr stríðinu.
Heiti: Return of a Soldier
Pjóöerni: Bresk
Leikstjórn: Alan Bridges
Handrit: Hugh Whitermore
Kvikmyndun: Stephen Goldblatt
Aðalhlutverk: Glenda Jackson, Julie Christie,
Ann Margret, Alan Bates og lan Holm.
Chris Baldry (Bates) var einn af
þeim mönnum sem tóku þátt í
styrjöldinni miklu, 1914—18, og
komst Ufandi út úr þeim mikla
hildarleik.
En hann slapp ekki alhedl frekar
en flestir aðrir. Chris missti hluta
minnisins og hann mundi ekkert
hvaö gerðist síöustu 15 árin eöa svo í
lífi sínu.
Þetta leiöir það af sér aö hann man
ekkert eftir konu sinni, Kitty
(Christie). Hann man hinsvegar eftir
Margaret (Jackson) sem hann
elskaði sem ungur maður og hann
elskar hana líka nú.
Margaret er gift og á heima í litlu
húsi, æpandi andstæöa við hiö rík-
mannlega heimiU sem Chris á.
En Kitty vUl fá eiginmann sinn
aftur og ræður til þess verks sál-
fræöing sem leikinn er af Ian Hohn.
Hann segist geta gert Chris heU-
brigðan aftur, en spurningin sé sú
hvort þaö sé nokkurt gagn í því.
Chris er ánægöur eins og hann er.
Leikstjóranum Alan Bridges hefur
tekist að hnoöa góöa styttu úr þeim
leir sem hann haföi úr að moða viö
gerð þessarar myndar.
Enda er þaö ekki svo mjög dóna-
legt aö fá Alan Bates, JuUe Christie
og Glendu Jackson saman í eina
mynd. Þau skUa ÖU hlutverkum
sínum meö stökustu prýði en ef
einhver skaraði fram úr þá er þaö
JuUe Christie. Ann-Margret, sem
leikur frænku Chris, er þarna í riUlu
lífs síns. Hún kemur skemmtilega á
óvart og stendur sig mjög vel.
Það er hinsvegar Ian Holm í hlut-
verki sálfræöingsins sem stendur
upp úr. Hann leikur mjög skermnti-
legan karakter og alveg frá því að
hann birtist á tjaldinu í fyrsta
skiptiö sýnir hann frábæran leik.
Eg held að ég hafi sjaldan séö
mynd sem fer eins fínt í smáatriði og
Return of a Soldier gerir. Þetta er
feikilega vönduö mynd í alla staöi og
hún á allt gott skUið.
Mig langar svona rétt í lokin til aö
kvarta aðeins um textana í mynd-
unum. Þaö er grátlegt að þurfa að
horfa upp á það mynd eftir mynd
hversu hræðUega iUa þeir eru
þýddir. Þetta á ekki bara við um
Regnbogann heldur flest bíóhúsin
hérumslóðir.
Annaðhvort eru þarna á ferð menn
sem eru að ná sér í auöveldan auka-
pening eða þá að þeir kunna hreint
ekki ensku almennilega. Þetta
verðuraðbæta.
Sigurbjörn Aðalsteinsson.
1984 1985
Nýtt happdrasttisár
með §ölda stórra vínnínga
fiútim öldruðum
áhyggfqlattst ævíkvöld
Á rúmum þrem síðustu áratugum hefur Sjómanna-
dagsráð unnið þrekvirki í velferðarmálum aldraðra
með byggingu Hrafnistu í Reykjavík fyrir um 400 vist-
menn og Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir 190 vistmenn.
Þökk sé viðskiptavinum Happdrættis DAS svo þetta
hafi áorkast. Þrátt fyrir þennan góða árangur eru
langir biðlistar er bíða úrlausnar og ástand víða
hörmulegt, sérlega í hjúkrunarmálum aldraðra. Sjó-
mannasamtökin vinna jafnt og þétt að þessum málum
eftir megni og veittri aðstoð ykkar.
En þau eru heldur ekki ein um það og ber þar fyrst
að minnast hins merka brautryðjendastarfs Gísla Sig-
urbjörnssonar á elliheimilunum Grund í Reykjavík og
Áss í Hveragerði. Og á seinustu árum ýmissa félaga,
margra bæj ar- og sveitafélaga og Reykj avíkurborgar
og Akureyrar.
En málefni aldraðra eru svo stór í sniðum að allir
sé.
Verum því með í Happdrætti DAS
Jafnframt er hver MIÐI MÖGULEIKI til stór-vinnings
dT %
I Happdrætti
Happdrættí '84-'85
1