Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Side 2
2
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
Skákþing Islands í landsliösflokki
hófst aö Hótel Hofi í Reykjavík í gær.
Keppendur eru fjórtán og þar á
meðal flestir bestu skákmenn
þjóöarinnar. Urslit í fyrstu umferö
uröu þessi:
Helgi Olafsson vann Björgvin
Jónsson, Jón L. Arnason vann Lárus
Jóhannesson, Jóhann Hjartarson
vann Ágúst Karlsson, Guðmundur
Sigurjónsson og Sævar Bjamason
geröu jafntefli, sömuleiöis Dan
Hansson og Hilmar Karlsson og Mar-
geir Pétursson og Karl Þorsteins.
Pálmi Pétursson frá Akureyri for-
fallaðist á síöustu stundu og ekki
hefur enn tekist aö finna manna til aö
fylla hans skarð og tefla við Hauk
Angantýsson í fyrstu umferð.
Fátt varö því um óvænt úrslit í
fyrstu umferö, þeir félagamir og
þeir keppendur sem verður aö telja
Ásgeir Þ. Ásgeirsson
sigurstranglegasta; Helgi, Jóhann
og Jón L. Ámason, unnu sínarskákir
næsta auöveldlega en jafnteflis-
skákirnar voru tefldar til þrautar.
Hilmar tefldi traust með svörtu gegn
Dan og Sævar baröist eins og
grenjandi ljón gegn Guömundi og
hélt jafntefli í endatafli meö mis-
litum biskupum þrátt fyrir aö hann
væri peöi undir.
Viöureign Margeirs og Karls vakti
mesta athygli; Margeir fórnaöi
strax peöi í byrjuninni og leitaði eftir
sóknarfærum á kóngsvæng en Karl
fékk tvö samstæö frípeð á drottning-
arvæng. Helstu spámenn meðal
áhorfenda þóttust sjá vinning fyrir
Margeir meö biskupsfóm en honum
brást kjarkurinn, dró lið sitt til baka
og virtist standa höllum fæti um tíma
en náöi aö skipta upp í jafnteflis-
endatafl. Eftir skákina sýndi Mar-
geir viöstöddum góöa vöm fyrir Karl
gegn biskupsfórninni en hins vegar
átti hann vænlegan peösleik er heföi
e.t.v. nægt til vinnings.
Skák Jóns L. Ámasonar og Lár-
usar Jóhannessonar varö aöeins 22
magnaðir sóknarleikir, haföi Jón
hvítt og fer skákin hér á eftir:
Skákmennirnir i þungum þönkum skömmu eftir eömótið hófst i gær.
D V-mynd Kristján Ari.
1. ejl c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rf6 5. Rxf6 exf6 6. c3 Bd6 7. Bd3 0-0 8.
Dc2 He8+ 9. Re2 g6 10. h4 Rd7 11. h5
Rf8 12. Bh6 Be6 13. 0-0-0 b5 14. hxg6
fxg6 15. Bxf8 Bxf8 16. Bxg6 hxg6 17.
Dxg6+ Bg7 18. Rf4 Bf7
19. Hh8+! Kxh8 20. Dxf7 Bh6 21. Hhl
Hel+ 22. Kc2!! og svartur gaf.
I dag kl. 18.00 verður önnur umferð
tefld og má þá búast viö aö til tíðinda
dragi meö því aö Helgi og Jón L.
leiða saman hesta sína svo og Mar-
geir og Jóhann.
Aöstæður allar á skákstað eru
mjög góöar jafnt fyrir keppendur og
áhorfendur og mikiö til mótsins
vandaö af hálfu skáksambandsins.
Viröist mótiö ætla aö veröa stjórn
þess til sóma.
-ÁÞÁ.
TOSHIBA stærstir í örbylgjuofnum
BESTU KAUPIN
ÖRBYLGJUOFN
frá TOSHIBA Japan
9.450
stgr.
Góöir
greiösluskilmálar
• Bakar kartöflur á 5 mín.
• Steikir roastbeaf á 20 mín.
• Bakar sandköku á 6 mín.
• Steikir sunnud. læriö á 40 mín.
• Sýður fisk á 5—6 mín.
• Poppar á 3 mín.
Fáöu þér Toshiba örbylgjuofn, — ofn frá stærsta framleiðanda
heims á örbylgjuofnabúnaöi. Frá Toshiba koma nýjungarnar. Þaö
nýjasta, ofnar meö DELTAWAVE dreifingu, meö eöa án snún-
ingsdisks. Ofnar búnir fullkomnustu öryggjum sem völ er á.
Fáöu þér ofn meö þjónustu: 190 blaösíöna matreiöslubók og
kvöldnámskeið fylgir. Fullkomin námskeiösgögn á íslensku. Opinn
símatími og upplýsingar frá sérfræöing okkar í matreiðslu í ör-
bylgjuofnum, Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara, menntaöri
frá Tilraunaeldhúsi Toshiba í Englandi.
Fullkomin þjónusta og þú færö fullkomið gagn af Toshiba
örbylgjuofnunum. 5 geröir fyrir heimili, 2 geröir fyrir hótel og
__________________ mötuneyti.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Jan Mayen-deilan:
VERDUR AÐ LEYSA
MEÐ VIÐRÆÐUM
— segir forsætisráðherra
„Eg lít svo á að Grænlendingar hafi
ekki heimild til aö semja svona við
Færeyinga. Efnahagsbandalagiö hefur
ennþá ráöstöfunarrétt yfir þessum
miöum,” sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráöherra.
, ,Þetta kom mér aö vísu ekki á óvart.
Ég hef alltaf verið viss um aö Græn-
lendingar myndu reyna aö sækja sér
þær tekjur sem þeir gætu fundið,”
sagöi forsætisráöherra.
Grænlendingar hafa úthlutað Færey-
ingum 27.900 íesta loðnukvóta á um-
deilda svæöinu viö Jan Mayen. Fær-
eysku fiskiskipin greiöa Grænlending-
um fyrir veiðileyfið, aö því er talið er.
Þaö er hins vegar ekki fyrr en um
næstu áramót sem Grænland gengur
úr Efnahagsbandalaginu.
„Ég tel aö þaö veröi aö leysa þetta
mál með viðræðum. Stefnt er aö viö-
ræðum þjóöanna þriggja í lok septem-
ber þegar Jonathan Motzfeldt kemur
hingaö til Islands í opinbera heimsókn.
Viö erum aö kanna hvort ekki sé hægt
aö fá lögmann Færeyinga hingað á
sama tíma,” sagöi Steingrímur.
-KMU.
Ólæti á ísafirði
Fjör var í hópi ölvaðra unglinga í
miðbæ Isaf jaröar í fyrrinótt. Mikil há-
reysti var höfö í frammi og þaö haft að
leik að skemma umferöarskilti. Þann-
ig var einstefnumerki rifiö upp úr jörö-
inni, gangbrautarmerki snúiö niöur og
strætisvagnamerki lá fyrir framan dyr
hótelsins um morguninn.
Aö sögn lögreglunnar var enginn
handtekinn en veriö er aö kanna hverj-
ir skemmdu umferðarmerkin.
-KMU.
Fylliri i miðbænum
Mikill fjöldi ungs fólks skemmti sér í
miöborg Reykjavíkur eftir aö dimma
tók á föstudags- og laugardagskvöld.
Bakkus var hafður meö í leiknum hjá
mörgum. Töluvert var drukkiö og
neyddist lögreglan tii aö færa marga í
gistingu í fangaklefa.
„Þaö var mikiö fyllirí en átaka-
laust,” sagöi varöstjóri hjá lögregl-
unni.
Hann taldi væntanlega byrjun skól-
anna skýringu á fólksfjölda í miöbæn-
um. Skólafólk væri aö koma úr vinnu
utan af landi meö fullar hendur f jár.
Skildi bílinn
eftir í gangi
Bíleigandi komst aö því um helgina
aö ekki er óhætt í Reykjavík að skilja
bílinn eftir í gangi meðan rétt er
skroppið inn í hús. Skynsamlegra er aö
drepa á bílnum og læsa honum.
Bíleigandinn átti stutt erindi inn í
hús við Þingholtsstræti síödegis á
laugardag. Hann taldi ekki taka því að
drepa á bílnum. En á meðan hann var
inni gekk fram hjá maður, sem stóðst
ekki freistinguna. Sá settist inn í bílinn
og ók af stað.
Nokkrum mínútum síöar var lögregl-
an komin í máliö. Hún fann bílinn 40
mínútum síðar í Háuhlíð, mannlausan
en óskemmdan. Ibúi viö götuna haföi
hins vegar séð pilt hlaupa frá bílnum
og gat gefiö góöa lýsingu á honum.
Lögreglan vonast til aö finna piltinn.
-KMU.