Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 21
Allt
um
ensku
knatt-
spyrnuna
25
Víðir
íGarði
íl.deild?
Stórleikur
Nicholas
26
Frábærar
auka-
spyrnur
hjá Giresse
28
Brons Gísla
íGöppingen
22
Víkingur
mætir
Fram
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
— íkvöldá
Laugardalsvellinum
Víkingur fær Fram í heimsékn á
Laugardalsvöllinn kl. 18.30 í kvöld og
er það síðasti leikur 16. umferðar 1.
deildar keppninnar — og afar þýðing-
armikill leikur. Framarar eru í alvar-
legri failhættu — eru nú á botninum.
Þegar Skagamenn tryggðu sér ts-
landsmelstaratitilinn á laugardaginn,
þá færðu þeir Fram um leið farseðilinn
í Evrópukeppni bikarhafa næsta ár.
Þegar tvær umferðir eru eftir í 1.
deild eru þessir leikir eftir:
17. umferö: Fram—Valur, Breiöa-
blik—KA, Þór—Víkingur, Keflavík—
KR og Þróttur—Akranes.
18. umferð: KR—Þróttur, Akra-
nes—Breiöablik, KA—Fram, Víking-
ur—Keflavík og Valur—Þór.
Eins og sést hér á stöðunni fyrir ofan
þá keppa Keflavik og Valur um sæti í
UEFA-bikarkeppninni næsta ár.
• Sergej Bubka -
snjalli.
- stangarstökkvarinn
Staðan er nú þessi í 1. deildar keppu
inni eftir leiki helgarinnar:
Keflavík — Þór
KR—Akranes
Breiðablik—V alur
Akranes
Keflavik
Valur
ÞórA.
Víkingur
Þróttur
KR
Breiðablik
KA
Fram
16 11 2
8 3
6 6
6 3
5 5
4 7
4 7
3 8
4 4
4 3
1—2
0-0
1—1
29—16 35
19—16 27
22—15 24
24—23 21
24—24 20
17—17 19
16—23 19
15-16 17
8 23—34 16
8 15—20 15
Markahæstu menn:
Guðmundur Steinsson, Fram 7
Hörður Jóhannesson, Akranes 6
Næsti leikur: Víkingur mætir Fram
á Laugardalsvellinum kl. 18.30 í kvöld.
-SOS
r Akurnesingar íslandsmeistarar 1984:
I fyrsta sinn sem lið
sigrar bæði f deild
og bikar tvö ár í röð
— „Ánægjulegt að þetta er komið í höfn,” sagði Sigurður Lárusson, fyrirliði Skagamanna
„Það hefur verið miklu meiri pressa á okkur en í fyrra-
sumar — það var miklu erfiðara að verja báða meistara-
titlaua í deild og bikar nú í sumar en að sækja á eins og
var í fyrrasumar,’, sagði Sigurður Lárusson, fyrirliði ís-
lands- og bikarmeistara Akraness, eftir að þær fréttir
bárust frá Keflavík að Þór hefði sigrað þar. Akurnesingar
voru því orðnir Lslanclsmeistarar þó svo tvær umferðir séu
eftir á íslandsmótinu í 1. deild. Glæsilegur árangur það og
til hamingju, Skagamenn. Stórt ár hjá þeim — árið 1984.
íslandsmeistarar í 1. deild kvenna og karla og karlaliðið
einnig bikarmeistari.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu íslenskr-
ar knattspymu sem sama liö hefur
sigrað í deild og bikar tvö ár í röð. Það
hefur komið fyrir aö lið hafi áöur
sigraö í báöum stærstu knattspymu-
mótum Islands en aldrei áður tvö ár í
röö. KR hefur þó verið nálægt því en
eitt ár liðið milli slíkra stórafreka.
Akurnesingar uröu í 12. skipti Is-
landsmeistarar á laugardag eftir jafn-
teflisleikinn viö KR, 0—0, á Laugar-
dalsvelli. Þaö hefur skeð á aðeins 34
árum eða frá 1951 þegar Akumesingar
uröu í fyrsta skipti Islandsmeistarar.
Frá 1951 hafa Akurnesingar 12 sinnum
orðið Islandsmeistarar, KR sjö sinn-
um, Valur 6 sinnum, Keflvíkingar 4
sinnum, Fram og Víkingur tvisvar
hvort félag og Vestmannaeyingar einu
sinni.
Talsverð spenna
Það var talsverð spenna í herbúðum
Akurnesinga eftir leikinn við KR —
spenna hvort þeir væru orðnir Islands-
meistarar. Leiknum í Keflavík milli
IBK og Þórs lauk aðeins síðar og oft
var reynt að ná sambandi við völlinn
syðra. Alltaf á tali en Jón Magnússon
vallarvörður komst í gegn og færði
forustumönnum Akurnesinga frétt-
irnar af sigri Þórs. Það þýddi að sigur-
inn var í höfn á mótinu og forustu-
mennirnir voru fljótir að færa leik-
mönnum fréttimar. Þá heyrðust mikil
gleðihróp úr búningsherberginu.
Skiljanlega þó lengi hafi sigur Akur-
nesinga í 1. deild virst nokkuð öruggur.
„Það er ánægjulegt að þetta er
komið í höfn hjá okkur. Þetta hefur
verið mjög gott leiktímabil hjá okkur
— það er hreint frábært að vinna í deild
og bikar tvö ár í röð,” sagði Sigurður
Lárusson.
Leikurinn við KR?
„Það voru góðir leikkaflar í honum
en þess á milli hrein leikleysa. Stig er
alltaf stig þó skemmtdegra hefði verið
að sigra,” sagði Sigurður, hinn geð-
þekki fyrirliði, og það er ástæða til að
óska Akumesingum aftur til hamingju
með sigurinn. Mikið afrek sem leik-
mennirnir hafa unnið og að baki þeim
er frábær þjálfari, Hörður Helgason,
mikilhæfir forustumenn og svo auðvit-
að allir Skagamenn. -hsím.
• Besta færi Akurnesinga í leiknum gegn KR. Hörður Jóhannesson spymir á
markið innan markteigs en framhjá. Sjá nánar bls. 24. DV-mynd Brynjar Gauti.
r
I
ii
a
þar sem nýtt Evrópumet var sett
Miklð hástökkseinvígi var háð á
frjálsíþróttamóti í Rieti á Italíu í
gær þegar Rússinn Valery Sereda
og V-Þjóðverjinn Carlo Thraen-
hardt áttust vlð, en þeir settu báðir
nýtt Evrópumet — stukku yfir 2,37
m. Þar sem engin fljóðljós vom á
vellinum var farið að rökkva þegar
keppnin stóð hæst á milii kapp-
anna.
Sereda stökk 2,37 m i fyrstu
tilraun en rétt á eftir stökk Theran-
hardt sömu hæð — í þriðju tilraun.
Þeir félagar reyndu síðan við nýtt
heimsmet — 2,20 en felldu í öllum
þremur tUraunum sinum þannig að
beimsmet Kínverjans Jian Hua
Zhu,l,39,stendurenn. -SOS
• Sigurður Lámsson, fyrirliði Akur-
nesinga.
Mikið einvígi í stangarstökki í Rómaborg:
Heimsmetið tví-
bætt á 5 mínútum
— Frakkinn Vigneron stökk fyrst 5,91 m en Bubka síðan 5,94 m
— Reyndi þrívegis við sex metra en tókst ekki
Stórkostlegt einvígi var háð í stang-
arstökki á mUdu móti í frjálsum
íþróttum á ólympíuleikvanginum í
Rómaborg á föstudagskvöld. Tvívegis
voru heimsmet sett og það með fimm
mínútna mUlibUi. Fyrst bætti Frakk-
inn Thierry Vigneron heimsmetið í
5,91 metra en aðeins fimm minútum
síðar náði Sergei Bubka heimsmeti
sínu aftur þegar hann stökk 5,94
metra. Eldra heimsmet hans var 5,90
m, sett á Crystal Palace leikvanginum
í Lundúnum 13. júlí siðastliðinn. I Róm
reyndi Bubka við sex metra þrívegis
en tókst ekki þrátt fyrir mUtinn stuðn-
ing 52 þúsund áhorfenda sem fylgdust
spenntir með.
Einvígi kappanna hófst þegar þeir
fóru báðir yfir 5,80 m en fleiri kepp-
endur komust ekki yfir þá hæð. Frakk-
inn fór yfir 5,91 m í annarri tilraun
sinni en hinn tvítugi Bubka sleppti
þeirri hæð. Þá var hækkað í 5,94 metra
og Bubka fór aftur yfir í fyrstu tilraun.
Náði þar með heimsmetinu aftur frá
hinum 24 ára Vigneron. Frakkanum
tókst ekki að stökkva þá hæð en Bubka
reyndi síöan að verða fyrstur manna
til að stökkva yfir sex metra. Tókst
ekki.
Stangarstökkið var hápunkturinn á
þessu stórmóti í Róm. Þar kepptu 23
sem hlotið höfðu verðlaun á ólympíu-
leikunum í Los Angeles í síðasta mán-
uði og 30 heimsmeistarar frá Helsinki.
Veður var frábært til keppni, hiti og
logn og Edwin Moses, Bandaríkjunum,
hélt upp á 29 ára afmæli sitt meö því aö
sigra í 109.skiptiðí röð í 400 m grinda-
hlaupi. Sjá nánar um mótið á bls. 28.
hsím.