Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1984, Blaðsíða 26
26
DV. MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER1984.
i ÍNGLAND 1 ■NGLAND 1 •NGLAND ENGLAND |
,Þeir hreinlega
myrtu okkur”
— sagði Graham Taylor, framkvæmdastjóri Watford, sem tapaði
Frá Sigurbirni Aöalsteinssyni, frétta-
manni DV í Englandi:
— Ég er mjög stoltur yfir hvernig
viö komumst inn í leikinn í seinni hálf-
leiknum. Viö áttum ekki möguleika
gegn Arsenal í þfcirn fyrri — þeir hrein-
lega myrtu okkur, sagöi Graham
Taylor, framkvæmdastjóri Watford,
eftir að Arsenal hafði lagt Watford að
velli 4—3 í frábærum leik. — Arsenal er
með frábært lið — það verður í einu af
fjórum efstu sætunum þegar upp
verður staðið, sagði Taylor.
21.320 áhorfendur sáu leikinn sem
var frábærlega vel leikinn — opinn og
skemmtilegur. Charlie Nicholas fór á
kostum á í leiknum — lék sinn besta
leik með Arsenal og skoraði tvö falleg
mörk.
• Nicholas opnaði leikinn á 27. mín.
þegar hann lék skemmtilega á Steve
Sherwood, markvörð Watford og skor-
aöi. Á 31. mín. átti Paul Davies skot að
marki Watford, sem Sherwood varöi,
en missti knöttinn til Tony Woodcock
sem skoraði — 2—0.
— Eg sagöi strákunum í leikhléi aö
þeir yrðu að berjast til að koma í veg
(JRSLIT
Urslit urðu þcssi í Énglandi á laugar- daginn:
l.DEILD:
Coventry—Leicester 2-0
Ipswich—Man. Utd. 1-1
Liverpool—QPR. 1-1
Newcastle—Aston Villa 3-0
Nott. For,—Sunderland 3-1
Southampton—West Ham 2-3
Stoke—Sheff.Wed. 2-1
Tottenham—Norwich 3-1
Watf ord—Arsena 1 3-4
WBA-Luton 4-0
Föstudagur:
Chelsea—Everton 0-1
2. DEILD:
Barnsley—Oldham 0-1
Birmingham—Wimbledon 4-2
Blackburn—Carlisle 4-0
Brighton—Huddersfield 0-1
Charlton—Notts C. 3-0
Leeds—Wolves 3-2
Man. City—Fulham 2-3
Middlesb.—Grimsby 1-5
Oxford—Portsmouth 1-1
Sheff. Utd.—Cardiff 2-1
Shrewsbury—C. Palace 4-1
3.DEILD:
Bristol R.—Preston 3-0
Cambridge—Millwall 1-0
Derby—Bolton 3-2
Doncaster—Burnley 2-0
Hull—Bournemouth 3-0
Newport—Bristol C 0-0
Orient—Gillingham 2-4
Plymouth—Reading 1-2
Rotherham—Lincoln 0-0
Swansea—York 1-3
Walsall—Brentford 0-1
Wigan—Bradford 1-0
4. DEILD:
Aldershot-Chester 1-2
Blackpool—Exeter 3-0
Bury—Halifax 3-0
Hartlepool—Swindon 2-2
Hereford—Petersborough 1-0
Mansfield—Rochdale 5-1
Northampton—Chesterfield 1-3
Scunthorpe—Colchester 2-2
Southend—Darlington frestaö
Torquay—Stockport 0-0
Tranmere—Crewe 3-1
Wrexham—Port Vale 1-1
3-4 fyrir Arsenal
fyrir stórtap og það geröu þeir, sagði
Taylor, framkvæmdastjóri Watford.
Þegar aðeins 8 mín. voru búnar af
seinni hálfleiknum var staðan orðin 2—
2. David O’Leary skoraði sjálfsmark á
49. mín og síðan jafnaði „Mo” John-
ston með glæsilegri hjólhestaspyrnu á
53.mín.
— Við héldum áfram í seinni hálf-
leiknum eins og við höfðum leikið í
þeim fyrri. Hraðinn var orðinn of mik-
ill og áður en við vorum búnir að átta
okkur á hlutunum voru leikmenn Wat-
ford búnir aö jafna. Þrátt fyrir það
gáfumst við ekki upp, sagði Don Howe,
framkvæmdastjóri Arsenal.
Arsenal gerði út um leikinn á 72. og
73. mín. þegar Nicholas og Brian
Talbot skoruðu 3—2 og 4—2, en rétt
fyrir leikslok náði Luther Blissett að
minnka muninn í 4—3 fyrir Watford.
Hann kom inn á sem varamaöur.
Arsenal lék mjög vel í leiknum og
var Charbe Nicholas maður leiksins.
-SigA/-SOS
„Nicholas var
stórkostlegur”
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Englandi:
— Charlie Nicholas fór á kostum
þegar Arsenal lagði Watford að
velli, 4—3, skoraöi tvö mörk og
sýndi snilldartakta. — Hann er
hreint stórkostlegur. Ég dái strák-
inn, sagði Don Howe, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, eftir leik-
inn. — Nicholas fyllir vel upp í það
svæði sem er fyrir aftan þá Paul
Mariner og Tony Woodcock. Hann
er kröftugur og útsjónarsamur og
gerir færri místök heldur en Michel
Platiní og Brasilíumaðurinn Zfco
sem leika sama hlutverk á ítalíu —
með félögum sínum — eins og
Nicholas leikur hjá okkur, sagði
Howe.
-SigA/-SOS
Charlie Nicholas—átti stórgóðan leik með Arsenal gegn Watford.
Norwich var auðveld
bráð fyrir Tottenham
— á White Hart Lane þar
' Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Énglandi: — Það var
geysileg stemmning hér á White Hart
Lane eftir að Tottenham hafði unniö
öruggan sigur, 3—1, yfir slöku liði
Norwich. Það voru leikmenn Norwich
sem voru betri í byrjun — John Deehan
fékk tvö gullin tækifæri til að skora en
honum brást bogalistin og þá bjargaði
Steve Perryman á marklínu — skoti
frá Dave Watson.
Eftir þessa byrjun Norwich fóru leik-
menn Tottenham smátt og smátt taka
leikinn í sínar hendur og sáu 24.947
áhorfendur Tony Galvin opna leikinn á
26. mín., eftir að Chris Wood, mark-
vöröur Norwich, hafði variö skot frá
John Chiedozie, en náði ekki að halda
knettinum sem fór til Galvin.
John Chiedozie, sem var maöur
leiksins, bætti viö öðru marki (2—0) á
53. mín. — skallaði knöttinn í netiö eftir
sendingu frá Mike Hazard og aðeins
þremur mín. seinna var Mark Falco
búinn að skora, 3—0, með þrumuskoti
af 25 m færi. Það var rétt fyrir leikslok
að Keith Bertschin náði að skora fyrir
Norwich.
Stórleikur Robson
Bryan Robson átti stórleik með Man.
Utd. á Portman Road, en þaö dugði þó
ekki United til sigurs gegn Ipswich.
20.434 áhorfendur sáu félögin skilja
jöfn, 1—1. Mark Hughes skoraði fyrir
United á 33. mín., meö giæsilegum
skalla, og síðan fékk Jesper Olsen tvö
gullin tækifæri til aö bæta mörkum viö
en honum brást bogalistin. Alan Brazil
fékk einnig gott tækifæri, en það fór á
sömu leið. Honum var skipt út af fyrir
Norman Whiteside í seinni hálfleik.
Þegar Alan Sunderland kom inn á
sem heimarnenn unnu 3-1 — Stórleikur Robson dugði United ekki gegn Ipswich
hjá Ipswich í seinni hálfleik breyttist
leikur liösins til hins betra og Ipswich
tók völdin. Það var svo á 73. mín. sem
Sunderland náöi aö jafna metin eftir
sendingu frá Eric Gates.
Glæsiknattspyrna
— Þetta var frábær leikur, sagði
Alan Mullery, framkvæmdastjóri
QPR, og kom skemmtilega á óvart
gegn Liverpool á Anfield Road. 33.982
áhorfendur sáu Wayne Fereday skora
fyrir QPR á 47. mín. og við það rökn-
uöu leikmenn Liverpool úr rotinu og
fóru að sækja. Síðustu 20 min. leiksins
var einstefna að marki Rangers og á
79. mín. náði Ronnie Whelan að jafna,
1—1, eftir sendingu frá Sammy Lee.
Kenny Dalglish átti stórleik með
Liverpool.
Fátt um fína
Aðeins 17.736 áhorfendur sáu
Everton leggja Chelsea að velli, 1—0, á
Stamford Bridge á föstudagskvöldið í
slökum leik sem var sjónvarpað beint
hér í Englandi. Þess má geta að 31 þús.
áhorfendur sáu leik liðanna fyrir
þremur árum á sama stað, þannig að
sjónvarpsútsendingin hafði sitt að
segja.
Kevin Richardson skoraði mark
Everton. Chelsea fékk mörg gullin
tækifæri til að skora í leiknum. Það
besta fékk Kerry Dixon þegar hann
átti stangarskot.
Mikil ólæti
á Highfield Road
— stöðva þurfti leik Coventry og Leicester
flO
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV í Énglandi:
— Stöðva þurfti leik Coventry og
Lcicester i 10 mín. á laugardaginn,
þegar 300 áhorfendur geystust inn
á völlinn. Bobby Gould, fram-
kvæmdastjóri Coventry, þurfti að
fara inn á völlinn til að stilla til
friðar og fór hann síðan í hátalara-
kerfi vallarins og bað áhorfcndur
að hafa sig hæga. — „Knatt-
spyrnan er í miklum vandræðum
min.
vegna óláta. Hún má ckki viö
þessu,” sagði Gould.
Eftir leikinn var ákveðið aö gera
breytingar á áhorfendasvæði High-
field Road en þar er aöeins boðið
upp á sæti. Það var tilkynnt aó
sætin fyrir aftan annaö markið
yrðu tekin burt og einnig aö giröing
yrði reist í kringum allan völlinn,
þannig að áhorfendur geta ekki
farið óhindrað inn á hann.
-SigA/-SOS
Newcastle heldur
sínu striki
Leikmenn Newcastle héldu sínu
striki á St. James Park þegar Aston
Villa kom þangaö í heimsókn. 31.497
áhorfendur fóru ánægöir heim — sáu
Chris Waddle sýna stórleik og skora
tvö mörk og Peter Beardsley skoraöi
þaðþriðja.
Þeir Sammy McDroy og Mark
Chamberlain áttu snilldarleik meö
Stoke þegar félagið lagði Sheff. Wed. að
velli, 2—1. 13.082 áhorfendur sáu
McBroy og Philip Heath skora mörk
stoke en Nigel Worthington minnkaði
muninn fy rir Wednesday.
-SigA/-SOS
Leeds með
fullt hús
— Wayne Clarke kominn
til Birmingham
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fráttamanni DV í Englandi: — Tommy
Wright, hinn 19 ára leikmaður Leeds,
skoraði tvö mörk þegar félagið lagði
Wo'.ves að velli, 3—2. Peter Lorimer
skoraði þriðja markiö. 17.843
áhorfendur.
Wayne Clarke, sem Birmingham
keypti frá Ulfunum á 80 þús. pund,
skoraði tvö mörk fyrir sitt nýja félag í
4—2 sigrinum yfir Wimbledon. 10.445
áhorfendur. Mike Ferguson og Robert
Hopkins skoruðu hin mörkiö en Alan
Cork skoraði bæöi mörk Wimbledon.
-SigA/-SOS
ENGLAND i iNGLAND ENGLAND